Morgunblaðið - 08.04.1988, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
57
AKSTURSÍÞRÓTTIR / RALLI
Yfirburða-
akstur ítala
Lancia-liðið ítalska er er á góðri
leið með að tryggja sér heims-
meistaratitilinn í rallakstri. Lancia
hefur góða forystu í bæði keppni
BHHi bílaframleiðenda og
Gunnlaugur ökumanna, eftir
Rögnvaldsson fyrstu §ögur rallmót
skrifar ársins. Virðist fátt
ætlá að koma í veg
fyrir að titillinn fari aftur til Ítalíu.
Frakkinn Bruno Saby byrjaði á því
að vinna í Monte Carlo á Lancia
Delta HF 4WD, á meðan bílar
helstu keppinautanna, Mazda,
hrundu vegna óhappa og bilana.
Það sama var uppi á teningnum í
sænska rallinu, þá vann Finninn
Marrku Alen örugglega á Lancia á
meðan Mazda-bflarnir biluðu. Helsti
képpinautur Alen var heimamaður-
inn Stig Blomqvist á fjórhjóladrifn-
um Ford Sierra, en hann hafði ekki
erindi sem erfiði í baráttunni við
Finnann og varð annar.
Velgengni Lancia-liðsins reið ekki
við einteyming í Portúgalska rall-
inu, en Lancia Delta-bflar urðu í
þremur efstu sætunum. ítalinn Miki
Biasion kom fyrstur í mark, eftir
að hafa náð besta aksturstíma á
fímmtán sérleiðum af 26, en landi
hans Allesandro Fiorio varð annar.
Lancia notaði nýja tegund af ,Mic-
helin-dekkjum og felgum, sem
þýddu að aka mátti á fullu á
sprungnu. Finninn Marrku Alen
sprengdi einu sinni dekk, en hélt
ótrauður áfram á nýju felgunni og
kvaðst aðeins hafa haldið að demp-
ari væri að slappast.
Um páskana endurtók Biasion leik-
inn í hinu erfiða Safari ralli í Afríku.
Hann kom fyrstur í mark í fimm
daga langri keppninni, þar sem
aðeins 14 bílar af 54 sem lögðu af
stað komust í mark. Er Biasion þar
með kominn með talsverða forystu
í heimsmeistarakeppni ökumanna.
„Þetta er mikilkvægasti sigur minn
frá upphafi og sá erfiðasti. Það
dreymir alla um að vinna þessa
frumskógarkeppni," sagði Biasion,
kominn í endamark. Þjóðveijinn
Erwin Weber náði forystu á Volks-
wagen Golf GTi, en brotið drifskaft
og síðar árekstur við -viðgerðarbfl
varð til þess að hann hætti keppni.
En hann lenti í vélarbilun og á loka-
deginum ók Biasion grimmt á fjór-
hjóladrifsbflnum og vann með 12
mínútna mun. Í millitíðinni skutust
tveir Nissan 200 ZX-bílar í annað
og þriðja sætið undir stjóm Kenýa-
mannsins Mike Kirklands og Svíans
Per Eklund. Eriksson varð fjórði á
Toyotabflnum,
Ljósmynd/Martin Holmes
Twelr slgrar ítalanna Miki Biasion og Carlo Cassigna f heimsmeistarakeppninni veita þeim forystu í stigakeppninni.
Þeir unnu Safari-rallið í Afríku um páskana á Lancia Delta HF 4WD.
FORMULA 1 KAPPAKSTUR
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
fyrra, en náði því oftar öðru sæti og
Heimsmalstarinn Nelson Piquet fagnaði ekki oft sigri f Formula 1-mótum í
tryggði sér þannig titilinn.
„Ottumst ekkl neinn“
- segir heimsmeistarinn Nelson Piquet
KEPPNISTÍMABIL Formula I
ökumanna er nú komið í fullan
gang eftir fyrstu keppni ársins
í Rio de Janeiro í Brasilíu og
var það fyrsta mótið af 16 sem
gefur stig til heimsmeistaratit-
ils. Brasilíumaðurinn Nelson
Piquet hóf titílvörn sína en
hann vann í fyrra eftir mikla
keppni við Bretann Nigel
Mansell, en báðir óku Will-
iams-keppnisbfl.
að hafa orðið talsverðar breyt-
ingar á keppnisliðum, öku-
menn skipta oft um lið enda miklir
peningar í húfí hjá þeim bestu. Piqu-
et fór frá Williams
til Lotus og tók með
sér Honda-vélamar,
sem gerðu Will-
iams-liðið einstak-
lega sigursælt í fyrra. Breti að nafni
Judd sér nú Williams-liðinu fyrir
vélum sem eru án túrbóbúnaðar.
Túrbóvélamar réðu lögum og lofum
í kappakstri í fyrra en reglubreyt-
ingar gera það að verkum að þær
munu ekki verða alveg einráðar í ár.
Svíinn Stefan Johansson, sem þykir
með betri ökumönnum, var lánsam-
ur að fínna sæti hjá keppnisliði á
elleftu stundu. Hann komst að hjá
Ligier eftir að hafa vikið fyrir Ayr-
ton Senna hjá McLaren. Frakkinn
Alain Prost mun sem fyrr aka
McLaren en hann hefur unnið kapp-
akstursmót oftar en nokkur annar
eða 28 sinnum. Hann hefur heitið
að vinna 40 mót áður en tvö ár eru
liðin. Lotus, McLaren, Williams,
Ferrari og Etenetton ættu að verða
sterkustu liðin í ár.
Ferrari hefur hannað glænýjan bfl
handa þeim Gerhard Berger frá
Austurríki og heimamanninum
ftalska Michele Alboreto. Berger
tókst að vinna tvö af lokamótum
liðins árs þannig að liðið virðist á
réttri leið eftir mörg mögur ár.
Benetton verður með rísandi stjömu
innanborðs, ítalann Allesandro
Nanini, og Belgann Thierry Bouts-
en, sem ekið hefur vel en hefur
skort góðan bíl. Benetton hefur
ráðið bót á því með nýrri Ford-vél
og nýjum bfl.
Það eru horfur á mun jafnari keppni
en í fyrra þar sem Williams réð oft
gangi leiks vegna yfírburðabfls.
Sumar brautir munu henta keppnis-
bflum með túrbóvélar, • aðrar ekki,
þannig að mörg mót gætu orðið
tvísýn. En ríkustu liðin hafa í skjóli
vetrar endurhannað bíla sína og
stefna sem fyrr á toppinn.
„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að
ég nái í heimsmeistaratitilinn í
fjórða skipti. Við erum með nýjan
og mjög vel smíðaðan bíl. Honda-
vélamar voru bestar í fyrra og
munu henta Lotus-bflunum vel. Við
þurfum ekki að óttast neinn en
halda okkur við efnið. Það er mikil
barátta á toppnum," sagði heims-
meistarinn Nelson Piquet um kom-
andi tímabil.
Toppökumennlmlr og
bflarþelrra
Nelson Piquet Brasilíu, — Lotus Honda
Satouru Nakajima, Japan — Lotus Honda
Nigel Mansell, Bretlandi — Williams Judd
Riccardo Patrese, Frakklandi — Williams Judd
Alain Prost, Frakklandi — McLaren Honda
Ayrton Senna, Brasiliu — McLaren Honda
Micehele Alboreto, Ítalíu — Ferrari
Gerhard Berger, ftalíu — Ferrari
Rene Amoux, FVakklandi — Ligier
Stefan Johansson, Svíþjóð — Ligier
Dereck Warwick, BreU. — Arrows Megatron
Eddie Cheever, Bandar. — Arrows Megatron
Allesandro Nanini, Ítalíu — Benetton Ford
Thierry Boutsen, Belgiu — Benetton Ford
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
Alain Prost
vannfyrstu
keppnina
Þrúgandi hiti varð mörgum
Formula 1 ökumanninum að
falli í fyrstu keppni ársins, sem fram
fór í Rio de Janeiro í Brasilíu um
s.l. helgi. Frakkinn
Gunnlaugur Alain Prost vann
Rögnvaldsson keppnina á McLaren
skrifar Honda, Austurríkis-
maðurinn Gerhard
Berger varð annar og Brasilíumað-
urinn Nelson Piquet þriðji.
Brost fór framúr Bretanum Nigel
Mansell á Williams Judd í upphafí
keppninnar og leiddi hana til loka,
á meðan Mansell hætti vegna vélar-
bilunar. Hitinn í Rio reyndist vélum
skaðlegur og báðir Willimas bflam-
ir hættu keppni vegna ofhitunar í
vélarsalnum. Brasilúmaðurinn Ayr-
ton Senna lenti í vandræðum í ræs-
ingu, gírstöng festist og hann skipti
um bíl í hvelli og keyrði sig upp í
annað sætið, en var þá vísað úr
keppni. Bflaskiptinn reyndust ólög-
leg.
Prost hafði á tímabili 30 sekúndrilT'-
forskot og vann sinn 29. sigur á
ferlinum. Heimsmeistarinn Nelson
F*iquet ók á braut sem skýrð hefur
verið í höfuðið á honum, en gekk
ekki sem best. Hann átti í vandræð-
um með fjöðrunina.
Urslit í Brasilfska kappakstrinum
voru þessi:
1. Alain Prost, McLaren
2. Gerhard Berger, Ferrari
3. Nelson Piquet
4. Dereck Warwick, Arrows
5. Michele Alboreto, Ferrari
6. Satouro Nakajima, Lotus
1:36.06,857
1:36.16,330
1:37.15,438
1:37.20,205
1:37.21,413
hring á eftir.
Alaln Prost hefur oft haft ástæðu til að fagna sigri f Formula 1 kappakstrin-
um á síðustu árum. Hann sigraði f fysta mótinu sem fram fór í Brasilíu um
siðustu helgi. Hann er til hægri á myndinni.