Morgunblaðið - 08.04.1988, Blaðsíða 60
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
.3 GuðjónOthf.
1 / 91-27233 |
\ Ædi iriiiifs.ii* jj
\ (ÍJJ TBYGGINGAR / *
FOSTUDAGUR 8. APRIL 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Eining samþykkti:
7% kusu í tveggja
daga leynilegri
atkvæðagreiðslu
Akureyrarsamningarnir voru
samþykktir i Verkalýðsfélaginu
Einingu í Eyjafirði í gœr með
157 atkvæðum gegn 51. Þá voru
samningarnir einnig samþykktir
í Verkalýðsfélagi Húsavíkur i
gær og i Verkalýðsfélagi Norð-
firðinga á miðvikudag.
Leynileg allsheijaratkvæða-
greiðsla fór fram um samninginn í
gær og í fyrradag í öllum deildum
Einingar. I félaginu eru rúmlega
3000 manns, en af þeim greiddu
212 atkvæði, sem er um 7% kosn-
ingaþátttaka. í gærkvöldi var fund-
ur um samningana hjá Verkalýðs-
félagi Fljótsdalshéraðs.
Fundur hefur verið boðaður í dag
hjá ríkissáttasemjara með fulltrúum
vinnuveitenda og þeirra þriggja
verkalýðsfélaga sem gengu út af
Akureyrarsamningunum: Verka-
lýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfé-
lagi Akraness og Snót í Vestmanna-
eyjum. Sá fundur hefst klukkan 15,
en áður verður fundur í deilu Vö-
rubílstjórafélagsins Ökuþórs á Sel-
fossi hjá ríkissáttasemjara.
Fundur í deilu Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur og vinnuveit-
enda hjá ríkissáttasemjara stóð enn
yfir stuttu fyrir miðnætti í gær-
kvöldi og var þá óvíst hve iengi
hann myndi standa.
Sjá samtöl við verzlunarmenn
i miðopnu.
var
ísafjörður:
Eldur við Niðursuðu-
verksmiðjuna hf.
kviknaði í plastfiskikössum ut-
an við Niðursuðuverksmiðjuna
hf, sem er stærsta rækjuverk-
smiðja landsins. Þegar slökkvi-
liðið, um 25 manns, kom á stað-
inn um hálftíuleytið skiðlogaði
i kassastæðu utanvert við húsið
og eldur var kominn í stóra tré-
hurð. Þá voru kassar með
rækjudósum, sem stóðu innan-
vert við hurðina, byrjaðir að
brenna og reykur kominn viða
um húsið.
fsafirði.
ALLT tiltækt slökkvilið
kvatt út í gærkvöldi þegar
Loðnuver-
tíð er lokið
LOÐNUVERTÍÐ er nú lokið.
Síðustu skipin hættu veiðum á
miðvikudagskvöld, en engin veiði
var eftir páska. A þessari vertíð
var aflinn um 917.000 tonn og var
þessi vertið þvi sú fjórða bezta frá
upphafi loðnuveiða. Um 42.000
tonnum var landað erlendis.
Fyrsta farminum á vertíðinni var
landað 22. september, tveimur mán-
uðum eftir að veiðar máttu hefjast.
Vertíðin nú var því tveimur mánuðum
styttri en í fyrra. Á vertíðinni 1986
til 1987 veiddust 1.053.100 tonn,
1978 til 1979 1.023.500 og 1985 til
1986 986.600 tonn. Að auki tóku
Norðmenn 59.900 tonn hér í vetur
og 50.000 í fyrra vetur og síðastliðið
sumar 149.700 tonn, Færeyingar
65.400 tonn og aðrir 5.300. Sumarið
áður tóku aðrir en fslendingar
275.000 tonn úr norsk-íslenzka stofn-
Morgunblaðið/Ólafur Jóhann Sigurðsson
Gengið upp að Súlum
Svíar hætta
að styðja
söfnuð ís-
lendinga
Stokkhólmi. Frá Pjetrí Hafstein Lárus-
syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
UNDANF ARIN ár hafa íslending-
ar búsettir í Sviþjóð notið þeirrar
þjónustu að hafa starfandi
íslenskan prest í Uppsölum. Hefur
embætti þetta sem kostað er af
sænsku kirkjunni talist hálf staða.
Prestsembætti þetta var stofnað
árið 1985 og gegndi séra Hjalti
Hugason því fyrsta árið en þá tók
séra Helga Soffía Konráðsdóttir við
starfinu og hefur gegnt því síðan.
Messar hún reglulega, bæði í Upp-
sölum og í Stokkhólmi auk þess sem
hún skírir og vígir hjón út um allt
land. Hefur þjónusta þessi mælst vel
fyrir og má sem dæmi nefna að
kirkjusókn í Uppsölum, þar sem búa
tæplega íjögurhundruð íslendingar,
er yfirleitt í kringum fimmtíu manns.
Auk hins hefðbundna helgihalds
starfrækir séra Helga Soffia kristi-
lega bamafræðslu í Uppsölum.
Nú hefur sænska kirkjan ákveðið
að hætta flárhagslegum stuðningi
sínum við safnaðarstarf íslendinga
í Svíðþjóð og ber því við að þeir séu
heldur fáir. Þó eru u.þ.b. fjögur-
þúsund íslendingar búsettir í Svíþjóð
og er það meiri fjöldi en annarstaðar
erlendis. Vilja því ýmsir halda sínum
klerki. Vonast þeir til þess að Kirkj-
uráð íslensku þjóðkirlq'unnar hlaupi
undir bagga með þeim hætti að
stofnað verði íslenskt prestsembætti
í Svíþjóð með svipuðu sniði og
tíðkast í Kaupmannahöfn og Lon-
don. Kirkjuráð mun væntanlega af-
greiða beiðni það að lútandi innan
skamms.
Rjúfa varð þakplötur til að
slökkva eld sem kominn var í þak-
ið. Slökkvistarf tók einungis fáar
mínútur og var slökkvilið farið af
staðnum innan klukkutíma. Víst
má telja að fyrir snarræði góðs
slökkviliðs hafí verið komið í veg
fyrir mikið tjón á verksmiðjunni.
Eldsupptök voru ekki ljós í
gærkvöldi en líkur taldar á að
böm hefðu verið þama að leik
með eld. Þetta er í annað sinn sem
tjón verður hér vegna bmna á
fískikössum sem staflað hefur ver-
ið þétt við útveggi fiskvinnsluhúss.
-Úlfar
Borgarsljórn um ráðhús Reykjavíkur:
Samþykkt að hefja
grumiframkvæmdir
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
staðfesti í gær þá ákvörðun
bygginganef ndar Reykjavikur
að heimila byijunarframkvæmd-
ir við byggingu ráðhúss. Fulltrú-
ar minnihlutans í borgarstjóm
mótmæltu þessari ákvörðun.
í samþykkt borgarstjómar felst
heimild til handa verkefnisstjóm
Frystitogarinn Sjóli:
Gulllaxveiðar á stoppdögnm
Frystitogarinn Sjóli HF kom inn til Hafnarfjarðar í vikunni með
170 tonn af frystum fiski, þar af lítilsháttar af gulllaxi, en fimmtán
dagar af túraum voru notaðir til tilraunaveiða og vinnslu á þessum
lítt veidda fiski. Þráinn Kristinsson, skipstjóri, sagðist telja að þeir
hefðu verið á þessu á röngum tíma, en meðal annars hefði þetta
verið gert til að nýta þá daga, sem skipið yrði annars að vera frá
veiðum, stoppdagana.
Þráinn sagði, að farið hefði verið
yfir svæðið frá Vestmannaeyjum
vestur fyrir Litlabanka í Skeija-
dýpi. Tiltölulega lítið hefði fundizt
af fiskinum, þrátt fyrir 15 daga
leit og veiðar. Svo virtist sem gull-
laxinn væri við hrygningu og gæfi
sig því ekki. Bezti tíminn til veið-
anna væri á sumrin, en þá væri
talsvert af honum á grunnu vatni.
Nú hefði fengizt lítilsháttar af
stórum gulllaxi á 350 til 400 faðma
dýpi. Hann hefði hentað vel í vinnsl-
una, en þó hefði nýting ekki verið
mjög góð, reyndar vegna þess að
þeir hefðu viljandi ekki gengið mjög
nálægt fískinum til að fá betri af-
urð. Gulllaxinn væri flakaður og
síðan marinn þannig að roðið færi
ekki með. Mamingurinn væri síðan
fluttur utan til Japan til frekari
vinnslu. Þeir hefðu smakkað á
þessu um borð og fundizt ágætur
matur.
Við veiðamar var notað venjulegt
troll klætt með humarriðli. Þráinn
sagði, að þessi tilraun hefði ekkert
gefíð af sér af peningum, en nokk-
uð af upplýsingum. Hann væri
þeirra skoðunar að tilraunir sem
þessar bæri að styrkja af ríkinu,
þar sem þær gætu leitt til aðrbærra
veiða og vinnslu í framtíðinni. Ekki
veitti af að létta á sókninni í aðrar
tegundir.
ráðhúss Reykjavíkur að hefja
gmnngröft á ráðhúslóðinni, en ekki
er um endanlegt byggingarleyfí að
ræða.
Miklar umræður urðu um þetta
leyfi á fundi borgarstjómar og
lögðu fulltrúar minnihlutaflokk-
anna, að undanskilinni Sigrúnu
Magnúsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokks, fram bókun þar
sem því er harðlega mótmælt. Er
í bókuninni haldið fram að í bygg-
ingarlögum og reglugerð sé ekkert
það til sem heiti graftrarleyfi og
að teikningar af ráðhúsinu uppfylli
ekki skilyrði fyrir byggingarleyrfí.
Er í því sambandi bent á að ráð-
húsið sé 30% hærra og 28% að rúm-
taki en staðfesting ráðherra á deili-
skipulagi nái til. Einnig er því hald-
ið fram í bókuninni að ekki hafi
verið sýnt fram á að nauðsynlegar
varúðarraðstafanir verði gerðar til
þess að fyrirbyggja að framkvæmd-
imar valdi skaða á lffriki Tjamar-
innar.
Davíð Oddsson borgarstjóri fagn-
aði því að fulltrúar minnihlutans
skyldu vera viðstaddir fund borgar-
stjómar. Davíð benti á að stækkun
ráðhússins frá upphaflegum teikn-
ingum væri að flatarmáli 5,6% og
þvi langt fyrir innan leyfíleg mörk.
„Ráðhúsið verður einungis um
fímmþúsund fermetrar að flatar-
máli og þyrfti það að fara yfir átta-
þúsund fermetra til að fara út fyrir
mörk hins staðfesta skipulags."
Sagðist borgarstjóri aldrei hafa
þurft að búa við aðrar eins hártog-
anir og falsanir og fram hefðu kom-
ið hjá andstæðingum ráðhúsbygg-
ingarinnar um stærð ráðhússins.
Sendinefnd
frá Páfastóli
í heimsókn
SJO manna sendinefnd á vegum
Páfastóls er væntanleg til lands-
ins í dag til að kanna aðstæður
fyrir væntanlega heimsókn Jó-
hannesar Páls páfa til íslands á
næsta ári.
Fyrir sendinefndinni er Roberto
Tucci, sem hefur yfímmsjón með
opinberum heimsóknum páfa, en
með honum í för verða biskupar frá
Noregi og Danmörku, auk embætt-
ismanna frá Vatíkaninu. Sendi-
nefndin dvelur hér á landi fram á
sunnudag, en hún er nú á ferð um
öll Norðurlönd til að undirbúa heim-
sókn páfa þangað á næsta sumri.