Morgunblaðið - 09.04.1988, Síða 7

Morgunblaðið - 09.04.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988 7 Utanríkisráðherra í Washington: Hyggst ræða hvala mál og ýmis mál- efni varnarliðsins Þúog heima - Nýljóðabók eftir Sverri Pál ÚT ER komin ljóðabókin „Þú og heima“ eftir Sverri Pál Er- lendsson. Þetta er fyrsta frums- amda ljóðabók höfundar, sem er íslenzkukennari við Mennta- skólann á Akureyri, en hann hefur þýtt tvær bækur og sa- mið kennslubók í hljóðfræði og málsögu. Höfundur gefur bók- ina út sjálfur. Sverrir Páll þýddi bókina Kæri herra Guð, þetta er hún Anna eft- ir Fynn, sem kom út árið 1982 og söguna las hann einnig í út- varp. Þá þýddi hann eftir sama höfúnd Önnubók, sem kom út fyr- Aðalfimdur BÍ í dag Aðalfundur Blaðamannafé- lags íslands verður haldinn í dag, laugardag, í húsakynnum féiagsins að Síðumúla 23. Fund- urinn hefst kl. 14. Á dagskrá eru venjuleg aðalfund- arstörf og breytingar á siðareglum Blaðamannafélags íslands. Söfnunarfé JC af- hent Heilavemd: Viljum finna lausn áþvísem er dauða- dómur - segir formaður „Jákvæðu nefndar JC“ JÁKVÆÐA nefnd JC ís- lands afhenti í gær samtökun- um Heilavernd rúmar sex milljónir króna, sem nefndin safnaði í febrúar með aðstoð Bylgjunnar og Kvenfélaga- sambands Vestfjarða. Féð verður notað til eflingar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu. Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, formaður Jákvæðu nefndarinn- ar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að söfnunin hefði gengið vonum framar, en hún fór fram dagana 19. og 20. fe- brúar með þeim hætti að fólk gat hringt í Bylgjuna og beðið um að lag yrði leikið gegn greiðslu. Kvenfélagasamband Vestfjarða sá um söfnun á Vest- fjörðum og einstök aðildarfélög JC söfnuðu einnig þessa daga. Að sögn Vilhjálms eru 250-300 manns í hópi þeirra, sem eiga á hættu að látast úr ættgengri heilablæðingu. „Við viljum fínna lausn á því, sem nú er dauðadómur fyrir þetta fólk,“ sagði Vilhjálmur. „Það þarf að gera þessu fólki kleift að lifa við sama öryggi og við hin.“ Vilhjálmur sagði að Blóð- bankinn, Gunnar Guðmundsson, yfirmaður taugadeildar Lands- pítalans og ýmsir erlendir sam- starfsaðilar hefðu unnið að rannsóknum á sjúkdómnum. Heilavemd mun veija söfnunar- fénu til tækjakaupa og til þess að styðja við bakið á rannsókn- um, þar sem þess er þörf. ir síðustu jól. Hann hefur stundað íslenzkukennslu við Menntaskól- ann á Akureyri síðan 1974, en auk þess unnið að dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið, að undirbúningi Svæðisútvarps fyrir Akureyri og nágrenni og sinnt menningarmál- um nyrðra fyrir Morgunblaðið. Ekkert ljóðanna í bók Sverris hef- ur birzt opinberlega áður. Sverrir Páll sagði í samtali við Morgunblaðið, að bókin hefði verið í smíðum í fjögur til fímm ár og orðið til smám saman. Ljóðin í bókinni hefðu í upphafí verið mun stærri og meiri verk, en þau hefði hann sniðið og skorið niður í nú- verandi mynd. Segja mætti að ljóð- in væru þrenns konar; orðamyndir eða smáljóð, eins konar endur- minningar frá Siglufírði; myndir af svipuðu tagi, en óstaðbundnar og ljóð um tilfínningar og væntum- þykju- STEINGRÍMUR Hermannsson ut- anrikisráðherra mun hitta emb- ættismenn í bandariska utanrikis- ráðuneytinu i Washington í næstu viku og ræða hvalamál og ýmis mál tengd vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Meðal þeirra era olíulekinn sl. haust og flutn- ingar fyrir varnarliðið. Fundimir verða 12. og 13. apríl og sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið frá Zurieh í Sviss, þar sem hann situr nú fund Sambands ftjálslyndra flokka, að drög að þess- um fundi hefðu verið lögð þegar hann hitti George Shultz utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna í september sl. en þá hefði verið rætt um að ráðherramir hittust aftur til að ræða samskiptamál landanna. Steingrím- ur sagðist þó ekki gera ráð fyrir að hitta Shultz í þetta skipti en hann myndi ræða við varautanríkisráð- herrann John C. Whitehead, Roz- anne Ridgway aðstoðamtanríkisráð- herra, Willian L. Ball nýskipaðan flotamálaráðherra og hugsanlega fleiri embættismenn. Steingrímur sagðist væntanlega myndu ræða um olíulekann á Keflavíkurflugvelli og hættuna sem af honum stafaði fyrir vatnsból á svæðinu. Hann sagðist einnig æfla að ræða vamarliðsflutningana því hann hefði áhyggjur af því að vegna breytinga á útboðunum núna, þann- ig að flutningamir em ekki lengur bundnir við ákveðna stærð skipa, þá kunni flutningamir að færast alveg til Reykjavíkur frá Njarðvíkur- höfn. Þeir vom áður bundir við stærð skipa en það ákvæði hefur verið fellt út. Steingrimur sagði síðan að ekki væri nema mánuður í fund vísinda- nefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins og ársfund ráðsins í kjölfarið svo sér fyndist einnig ástæða til að ræða þau mál í Washington. FLUG, Bí LL OG HÚS Fríáls á fjórum hjólum og í»eigiir húsi! Að velja sér ferðamátann Flug og bfl er sjálfsagt mál fyrir hvem þann sem vill fá sem mest út úr ferðalaginu. Þessi möguleiki verður enn álitlegri ef þú velur sumarhús að auki, fyrir þig og fjölskylduna (eða ferðafélagana)! Auktu nýrri vídd í Mið-Evrópuferðina með því að ráða ferðinni sjálfur og búa í „eigin“ húsi! • Verðdæmi: LUXEMBORG: Flug + bfll í 2 vikur frá kr. 16.210 á mann.* SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki. WALCHSEE: Flug + íbúð í Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 25.920 á mann.* Flogið til Salzburg. Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst. Bfll í B-flokki í 2 vikur kr. 22.160; BIERSDORF: Flug + íbúð í 2 vikur frá kr. 18.490 á mann.* Flogið til Luxemborgar. Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki í 2 vikur kr. 17.940. SALZBURG: Flug + bfll í 2 vikur frá kr. 22.780 á mann.* Bfll í B-flokki. * Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja — 11 ára. FLUGLEIÐIR -fyrír þíg- AUar nánari upptýsingar á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum um aUt land og ferðaskrifstofum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.