Morgunblaðið - 09.04.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988
t
25
i f i * • Reuter
Oskar undirbuinn
Undirbúningur fyrir árlega afhendingu Óskarsverðlauna sem
fram fer á mánudaginn í Los Angeles stendur nú yfir. Verka-
menn unnu að því á fimmtudag að koma fyrir þessum átta
metra háu afsteypum af hinum eftirsótta verðlaunagrip framan
við Shrine hljómleikahúsið þar sem afhendingin fer fram.
Tékkólsóvakía:
Vandasamar forystu-
breytingar á döfinni
Prag, Reuter.
MIÐSTJÓRN tékkneska kommúnistaflokksins kom saman í gær, en
talið er að mannabreytingar í rikisstjórninni séu á næsta leiti. Enn
er óvist hversu víðtækar breytingar þessar verða, en embættismenn
flokksins sögðu ljóst að vegna áætlana um að fækka um þijú ráðu-
neyti væri Jjóst að einhveijir af hinum valdaminni ráðherrum þyrftu
að finna sér önnur störf þar sem hæfileikar þeirra nýttust betur.
Aðalritari flokksins, Milos Jakes,
flutti setningarræðu í upphafi fund-
arins og var það fyrsta ræða hans
frá því hann tók við embætti í des-
ember síðastliðnum. Ræða hans
hefur enn ekki verið birt opinber-
lega, en á flmmtudag sagði Jakes
að hann myndi fjalla um „endur-
byggingu efnahagskerflsins og þró-
un sósialísks lýðræðis."
Að undanfömu hafa vestrænir
stjómarerindrekar í Prag velt vöng-
um yfír hugsanlegum breytingum
og hefur mest verið rætt um framtíð
Lubomirs Strougals, forsætisráð-
herra. Hann þykir vera með fijáls-
lyndari mönnum í forystusveit
kommúnistaflokksins, en hann
kann að gjalda þeirra staðrejmdar
að hann er Tékki.
í Tékkóslóvakíu er vaninn sá að
helstu áhrifastöðum er skipt milli
Tékka og Slóvaka, en eftir að Ja-
kes var kjörinn aðalritari gegna
Tékkar nú þremur af fjómm æðstu
embættum landsins. -
Kommúnistaflokkurinn á við
nokkra valþröng að glíma í þessum
efnum, þvi ef Strougal verður færð-
ur rim neðar í valdastiganum mun
það varla hljóta góðar undirtektir
í Moskvu, en þar á bæ þykir mönn-
um sem Tékkóslóvakar hafi verið
tregir í taumi þar sem „glasnost"
og „perestrojka" eru annars vegar.
Japan:
Innflutningnr hafinn á japönsk-
um bílum frá Bandaríkjunum
Tókýó. Reuter.
HONDA-bílaverksmiðjumar jap-
önsku hafa hafið innflutning á
japönskum bílum, sem framleidd-
ir era í Bandarikjunum. Er talið
að hér sé fyrst og fremst um tákn-
rænan viðburð að ræða, en engu
að sfður mikilvægan áfanga í
þeirri viðleytni að grynnka á þeim
mikla gróða, sem Japanir hafa
haft af viðskiptum við Banda-
ríkin.
„Við vonumst til að þessi innflutn-
ingur verði til að draga úr spennu,
sem ríkt hefur milli stjómvalda í
Tókýó og Washington vegna við-
skipta ríkjanna, og stuðli að meiri
jöfnuði," sagði talsmaður Honda i
gær.
I fyrstu bílasendingunni voru 540
Honda Accord Coupe bílar, sem
framleiddir voru í verksmiðjum fyrir-
tækisins í Marysville í Ohio. Stefnir
Honda að því að flytja inn 5.000 bíla
í ár og um 50 þúsund bíla árlega
frá árinu 1991. Til samanburðar
má geta að allar bandarísku bíla-
verksmiðjumar seldu samtals aðeins
um 4.000 bifreiðar til Japans í fyrra.
Sú tala virðist ennþá lægri þegar
þess er gætt að Japanir seldu 2,2
milljónir bifreiða til Bandaríkjanna
í fyiTa. Japanskar bílaverksmiðjum-
ar seldu um helming framleiðslu
sinnar til Bandaríkjanna í fyrra og
á bílasalan einn stærsta þáttinn í
hinum mikla hagnaði, sem Japanir
höfðu af viðskiptum við Bandaríkin
í fyrra. Um síðustu áramót var hagn-
aður þeirra orðinn 52 milljarðar doll-
arar, eða jafnvirði tvöþúsund millj-
arða íslenzkra króna.
Avinningur Bandaríkjamanna af
innflutningi Honda er mikill. Fýrir
hvem seldan bíl aukast líkumar á
því að bandarískur launþegi haldi
vinnu sinni. Þar með eflist atvinnu-
og efnahagslífíð í Bandaríkjunum.
H U
I Ð
ÍSLENSKA ÖRBYLGJUPOPPIÐ er SUPER
POP, gæða popp-maís sem hefur 30 - falda
poppun. Það er pottþétt fyrir alla sem stefna
að frægð og frama í "poppheiminum".
Örbylgjupoppið átti við örðugleika að stríða í
upphafi, örbylgjupokamir voru ekki nógu góðir.
Nú er það komið í nýja og betri örbylgjupoka.
í nýju pokunum verður
poppið meira og betra
og við treystum því að
örbylgupopparar verði
ánægðir með árangurinn.
Þetta örbylgjupopp er
nú einnig til í ódýrari
pakkningum, - prófaðu.
Vatnagörðum 14,Reykjavík
Sími: 3 80 80
SPÁÐU í SK0DANN
G0TTAÐ KEYRANN
AUÐVELT AD BORGANN
Góö greiöslukjör.
Handhöfum VISA bjóöum viö 25%
útborgun og afganginn á
12 mánuöum.
Verð frá kr. 176.600.-
JÖFUR -ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL