Morgunblaðið - 09.04.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.04.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 9. APRÍL 1988 27 Lýsing bresku far- þeganna á ráninu: Grímu- klæddir ogmeð alvæpni * Lundúnum, Reuter. BRETARNIR átján sem voru um borð í flugvél ríkisflugfé- lagsins í Kuwait sem rænt var á þriðjudag komu til Bretlands í gær. Greindu þeir fréttamönn- um frá veru sinni um borð f vélinni eftir að henni var rænt. Bretamir voru að vonum glaðir að vera komnir í heila höfn en flug- ræningjamir létu þá lausa á flug- vellinum í Mashad í íran á fímmtu- dag. í samtali við blaðamenn á Heathrow-flugvelli sagði fólkið að ræningjamir hefðu komið vel fram við farþega vélarinnar sem þó hefðu verið óttaslegnir. „Þeir héldu allan tímann á handsprengju í annarri hendi og byssu í hinni og vom með grímur. Þeir gerðu engum mein en fólk um borð var óttaslegið," sagði David Carew Jones 32 ára markaðsfræðingur við fréttamenn. Susan Silcock sagði að flugræn- ingjamir hefðu virst ákveðnir í að Reuter Þreyttir en ánægðir Bretar komnir heim eftir að hafa verið í hönd- um flugræningja. láta lífíð fyrir málstað sinn. „Þeir kreflast þess að 17 félögum þeirra verði sleppt. Þeir em reiðubúnir að deyja fyrir félaga sína,“ sagði Susan. Hún gat ekki sagt til um hverrar þjóðar ræningjamir em en annar farþegi sagði að þeir hefðu sagst vera frá Kuwait. Sus- an sagði að mennimir hefðu talað arabísku og ensku, en þeir hefðu forðast að ávarpa hver annan með nafni. Bresku farþegunum bar saman um að ræningjamir hefðu skipu- lagt ránið vel. Þeir hafí verið róleg- ir og yfirvegaðir og að farþegun- um hafí liðið bærilega miðað við aðstæður. Þó hafí það vakið ótta þegar ræningjamir slökktu öll ljós í vélinni, skipuðu farþegunum að þegja og beindu vasaljósum í and- lit hvers og eins. „Ég hélt í hvert sinn sem þeir lýstu á mig að það hefði úrslitaþýðingu, þetta fram- ferði vakti ugg,“ sagði Carew Jo- nes. Kína: Aldinn hershöfð- ingi kjörinn forseti Peking, Reuter. KÍNVERSKA þingið kaus Yang Shangkun fyrrum hershöfðingja i embætti forseta í gær. Hann tekur við af Li Xiannian sem ver- ið hefur forseti frá því embættið var endurvakið árið 1983. Deng Xiaoping fyrrum flokksformaður hélt stöðu sinni innan miðstjórnar hermálanefndar kínverska UnmmnniqtnflnUUnms. Kínverski kommúnistaflokkurinn tilnefnir menn í allar æðstu stöður innan flokksins. Fulltrúar á þingi flokksins greiða stðan atkvæði um tillögumar. Aðeins er tilnefndur einn maður í hvert embætti. 2.883 fulltrú- ar greiddu atkvæði um útnefningar flokksins í gær og var þeim heimilt að breyta kjörseðli ef þeir voru ósátt- ir við útnefningu í einstök embætti, að sögn opinberu fréttastofunnar Nýja Kína. Erlendir fréttamenn og sendimenn erlendra rflqja fengu að vera viðstaddir þegar kosning fór fram í gær. Útnefning og kjör Yangs kom ekki á óvart. Hann er annar valda- mesti maður hersins, næstur á eftir Deng Xiaoping, og náinn vinur hans. Yang mun gegna embætti forseta næstu fimm árin. Hann er 81 árs að aldri og gekk til liðs við ungliða- hreyfíngu kommúnistaflokksins í heimahéraði sínu Sichuan 18 ára gamall. Yang hóf nám við Sun Yat- sen háskólann í Moskvu árið 1927 og sneri heim 1931. Sama ár gekk hann að eiga Li Bozhao leikritahöf- Reuter Yang Shangkun, nýkjörinn for- seti Kína. und, sem lést 1985. Hann hlaut skjótan frama innan Rauða hersins eftir heimkomuna en var dæmdur í 12 ára útlegð árið 1966 fyrir að. vera „and-byltingarsinnaður“. Eftir að Deng Xiaoping varð for- maður kommúnistaflokksins var Yang tilnefndur í miðstjóm flokksins og árið 1982 var hann skipaður hers- höfðingi og tók sæti í stjómmálaráði kfnverska kommúnistaflokksins. Hann var formaður kínverskrar sendinefndar sem fór til viðræðna við Bandaríkjamenn á síðasta ári. Varaforseti var kjörinn Wang Zhen. Ennþá elnu slnnl nýr og byltlngarkenndur HONDA CIVIC meö breytingum, sem gera HONDA CIVIC tvfmaelalaust fremstan I flokkl mlnni bíla. Allar geröír koma nú með vól úr léttmálmí og 16-VENTLA, ýmist með elnum eða tveimur kambásum, sem þýdlr meiri orku og minnl eyðslu. Ný frábaar fjöðrun, sem á sór enga hliðstaaðu I sambaerlegum bílum og óvenju mlkll lengd á milll hjóla gefur bílnum mjög góða aksturseiginlelka og aukln þaegindi í akstrí. Með þessu hefur HONDA sannað enn einu sinni, að þeír framleiða „litla bílinn" með þaagindl og rýmí stóru drekanna en aðalsmerki HONDA í fýrlrrúmi: SPARNEYTNI, GÆÐI OG ENDINGU. BÍLASÝNING í DAG KL. 13-17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.