Morgunblaðið - 09.04.1988, Side 45

Morgunblaðið - 09.04.1988, Side 45
45 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988 Minninfr: Helgi Þorsteins- son — Keflavík Fæddur 22. janúar 1905 Dáinn 8. febrúar 1988 Útför Helga Þorsteinssonar fór fram frá Keflavíkurkirkju 16. febr- úar síðastliðinn, eftir stutta sjúkra- húslegu, en hann var búinn að þjást af sykursýki í áratugi. Helgi var fæddur í Höfnunum. Foreldrar hans voru Gíslína Gísla- dóttir og Þorsteinn Ámason er bjuggu á Kirkjuvogi í Höfnum. Helgi stundaði sjósókn á yngri árum og þóttu Helgi og bræður hans miklir átakamenn, svo að til þess var tekið þegar þeir báru afl- ann á herðum sér úr Qörunni og upp í land. Lengst af ævinni bjó hann í Keflavík, nánar tiltekið á Skólavegi 4. jlann var einn af stofiiendum Aðalstöðvarinnar hf. í Keflavík og stundaði hann leigubílaakstur upp frá því. Helgi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans hét Sigþóra Sveinsdóttir, en hana missti hann árið 1963. Seinni kona hans heitir Bergþóra Guð- laugsdóttir, ættuð frá Dalvík, og lifír hún mann sinn. Helgi eignaðist tvö böm, Ástráð Hermann, radar- og flugmeistara í fiugher Banda- ríkjanna, en hann lést í flugslysi, og Ester, ljósmóður, gifta Davíð Davíðssyni, lækni. Mig, sem þetta ritar, langar að þakka Helga órofna tryggð og vin- áttu sem hann sýndi okkur frænd- fólki sínu, sem aldrei bar skugga á. Dagfarsprúður maður var Helgi og með eindæmum bamgóður og nutu bömin hér á heimilinu þess í ríkum mæli. Hann kom fyrst í heim- sókn til foreldra minna þegar ég var um fermingu og ætíð síðan hefur hann komið og dvalið hjá okkur í lengri eða skemmri tíma, ýmist einn eða með Bergþóm, konu sinni. Nú síðast á milli jóla og ný- árs hafði hann mikinn hug á að komast austur, en heilsa hans leyfði það ekki. Við heimilisfólkið sendum Bergþóm innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu hans. Þú Jesús ert lífið sem dauðann fær deytt lát dauðann úr sálunum vikja en lífið sem eilífan unað fær veitt með almættis krafti þar ríkja. Vigdís Þorsteinsdóttir Minninff: Antonía K. Eiríks- dóttir, Hafnamesi í dag verður til moldar borin frá Kolfreyjustaðarkirkju í Fáskrúðs- fírði Antonía Katrín Eiríksdóttir. Antonía var fædd að Krosshjá- leigu, Krossþoipi á BemQarðar- strönd hinn 6. janúar 1903. Hún var dóttir hjónanna Ingibjargar Sig- urðardóttur og Eiríks Ámasonar er þar bjuggu. Antonfa var næstyngst sinna 9 systkina og var í foreldrahúsum fram að tíu ára aldri, að faðir henn- ar brá búi og fluttist í Breiðdal v/Breiðdalsvík. Var Antoníu þá komið fyrir á bænum Innri-Kleif, í Breiðdai og dvaldi hún þar næstu Ijögur árin. Að þeim tfma liðnum liggur sfðan leið hennar að Kömbum v/Stöðvar- fjörð þar sem hún dvelur um tíma. Síðan flyst Antonía að bænum Hvalnesi, sem er næsti bær þar við. Þaðan flytur hún svo til systur sinnar að bænum Gripalda sem var innsti bær í gamla Reyðarfjarðar- hreppi. Þar dvelur hún svo um skeið, hjá systur sinni er þar bjó. Þar næst liggur svo leið hennar í Hafíiames v/Fáskrúðs^örð og ræðst hún þangað sem vinnukona til hjónanna Jóhönnu Halldórsdótt- ur og Bergs Ásgrímssonar, er þar bjuggu. IHafíiamesi stöðvast sfðan flutn- ingur Antoníu því þar kynnist hún svo væntanlegum eiginmanni sínum, Guðmundi Níelssyni, er þar bjó ásamt systur sinni, Þuríði, og mági sínum, Sigurði EiríkssynL Antonía flytur sfðan ásamt eigin- manni sínum Guðmundi Níelssyni í nýbyggt fvemhús er þau hjón höfðu reist sér í Haftiamesi og þau köll- uðu Nýjabæ. Antoníu og Guðmundi varð ekki bama auðið, en þau ólu upp bróður- dóttur Guðmundar, Bám Jónsdótt- ur, er býr í Hafnarfirði, gifta undir- rituðum. Guðmundur maður An- tonfu andaðist árið 1966, og bjó Antonfa þá um skeið á jörð þeirra hjóna. Þar kom þó til að hún varð að yfírgefa býli sitt og fluttist hún þá suður til HafnarQarðar til fóstur- dóttur sinnar þar sem hún dvelur svo um skeið ásamt því er hún þurfti að liggja á sjúkrahúsum sök- um veikinda. Síðustu tólf árin hefur Antonía svo dvalist á Dvalarheimil- inu Ási f Hveragerði við góða að- hlynningu starfsfólks. Var henni ljúft um staðinn svo og allan viður- gjöming. Antonía var mikil hannyrðakona og liggja eftir hana margir fallegir munir víðsvegar. Hún var mikil húsmóðir og hafði hún unun af því að taka á móti gestum sfnum, er bar að garði. Eftirlifandi bróðir Antoníu, Einar Eiríksson, dvelur nú sem vistmaður ásamt eiginkonu sinni, Filipíu Krist- jánsdóttur, á vistheimilinu Seljahlfð í Breiðholti Reykjavík. Að lokum vil ég þakka fyrir þær góðu stundir sem við fengum að njóta hennar. Blessuð sé minning Antoníu. „Far þú i friði, friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Br.) Sigurður Hjartarson Minninff: Asgeir Sigurðs‘ son frá Bæjum Ásgeir Sigurðsson, jámsmíða- meistarí, ftá Bæjum á Snæfjalla- strönd, andaðist á heimili sfnu á ísafirði þann 25. mars sl. Foreldrar Ásgeirs vom hjónin Sigurður Ólafs- son bóndi í Bæjum og kona hans, María Ólafedóttir, og með þeim ólst hann upp. . Þann 30. október 1941 kvæntist Ásgeir Önnu Hermannsdóttúr frá Ögri í Ögursveit, en hún lifír mann sinn. Foreldrar hennar vom hjónin Hermann Hermannsson útvegs- bóndi þar og kona hans, Salome R. Gunnaredóttir. Þau Anna og Ásgeir eignuðust þijú böm. Þau eru: Hermann Jón, tannlæknir í Kópavogi, kvæntur Guðfinnu Gunn- þórsdóttur, þau eiga 4 böm. Næst er Sigríður Borghildur og er hennar maður Ólafur Þórarinsson, trésmið- ur. Þau eiga 5 böm. Þriðja bamið er Kristín Anna og er hennar mað- ur Gísli Jón Hjaltason, skrifstofu- maður. Þau eiga 2 dætur. Ásgeir var jámsmiður að at- vinnu, hann vann við iðn sína í 40 ár hjá Mareellíusi Bemharðssyni skipasmíðameistara. Síðustu árin vann hann við Raftækjaverksmiðju Pólsins hjá Óskari Eggertssyni. Ásgeir þótti jafnan mjög hæfur maður í iðn sinni og var því eftir-. sóttur til starfa. Atvikin höguðu því þannig, að sá sem þessar fáu línur ritar kynnt- ist Ásgeiri mjög vel. Skoðanir okkar á hinum ýmsu málefnum sem um var íjallað hveiju sinni vom oftast á einn veg. Með honum var ánægju- legt og uppörvandi að vinna að framgangi mála. Undirritaður telur sér það mikinn ávinning að hafa átt þess kost að kynnast og eiga samstarf við mannkostamanninn Ásgeir Sigurðsson. Jarðarför Ásgeirs var gerð þann 6. þ.m. að viðstöddu Qölmenni. Undirritaður vottar Önnu Her- mannsdóttur, bömum hennar og öðmm aðstandendum einlægrar samúðar. Jón Á. Jóhannsson t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON frá Dæli, Jörvabyggð 3, Akureyri, lést í Kristnesspítala aðfaranótt fimmtudagsins 7. apríl. Guðmundur Þórhalisson, Áslaug Freysteinsdóttir, Kristján Þórhallsson, Þórgunnur Ásgrímsdóttir, Aðalheiður Þórhallsdóttir, Alfreð Þórsson og barnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, HALLBERA HALLSDÓTTIR frá Neskaupstað til heimilis Álftalandi 7, Reykjavik, lést á Landakotsspítalanum 7. apríl. Jarðarförin fer fram frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 13. apríl kl. 13.30. Agnar Ármannsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Erla Armannsdóttir, Kolbrún Ármannsdóttir, Reynir Sigurþórsson, Randver Ármannsson, Kristjana Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, EYRÚN EIRÍKSDÓTTIR, Suðurgötu 12, Keflavik, er lést i Sjúkrahúsi Keflavikur 2. apríl, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag laugardaginn.9. apríl kl. 15.00. Þeir sem vilja minnast hinnar látnu láti Sjúkrahús Keflavíkur njóta Þess- ' Sigtryggur Árnason, börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, STEFÁNS GUÐNASONAR, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. apríl kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð. Anna Þórarinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móö- ur okkar, JÓHÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR, Skagabraut 44, Akranesi. Fyrir hönd aðstandenda, Karl Hilmar, Elísabet Karlsdóttir, Sigurður Jóhannsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför fööursystur okkar, SIGÞRÚÐAR MAGNÚSDÓTTUR, Borgarnesi. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Þorgerður Oddsdóttir. t Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, ÁRMANNS GUÐJÓNSSONAR, Akureyri. Ragna Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega samúð við andlát og útför mannsins míns, SVEINS GUÐMUNDSSONAR forstjóra. Fyrir mína hönd og annarra aöstandenda, Anna Erlendsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna fráfalls GRÍMS ENGILBERTS, Njálsgötu 42. Laufey Engllberts, Birgir Engllberts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.