Morgunblaðið - 09.04.1988, Side 46

Morgunblaðið - 09.04.1988, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988 félk í fréttum Stóra systir les sögu undir svefninn. Hugdjörf lítil stúlka býður lífinu birginn Ioktóber 1986 var Michael Volkman á ferð með 9- ara syni sínurn Avery og 4 ára dóttur sinni Sage í litlum þjóðgarði í New Mexíkó. Hann hafði lagt hjólhýsi fjölskyldunnar á þar til gerðu stæði og snemma um morgunin fór hann að veiða ásamt syninum, en litla hnátan vildi lúra lengur. Það var af- drifaríkt. Aðeins fimm mínútum siðar sáu feðgamir reykský stíga upp frá hjólhýsastæðinu og er þeir komu hlaupandi á vettvang sáu þeir að reykurinn stóð upp að þeirra húsvagni. Eldtungur umvöfðu hann og eirðu engu. Michael ruddist inn í eldhafið og kom augnbliki síðar út með dótt- ur sína meðvitundarlausa i bráðnandi svefnpoka. Svo bmnn- in var hún að allir héldu hana liðið lík, faðir hennar þarmeð- talinn. Hann vildi þó ekki una við þau málalok og hnoðaði dótt- ur sína svo fast að hún rifbrotn- aði við átökin. En það hreif. Hún fór að draga andann. En ef það hefði bara verið rifbrotið. Líkami hennar var þakinn 3 og 4. stigs bmnasáram, nefið og annað eyrað bmnnið burt, einnig báðar hendumar framanverðar. Siðan em liðnir 18 mánuðir og Sage litla er 6 ára. í fyrstu var henni vart hugað líf, en svo fór hún að braggast. Hún fór í átta húðgræðslur fyrstu dag- ana og fékk síðan lungnabólgu sem grandaði henni næstum. Mál henn- ar vakti athygli og samúð allra. Fólk brast í grát þegar það sá hana og vandamál fólks urðu eitthvað svo smávægileg við hliðina á henni. Það var ekki bara mein hennar, heldur bamið sjálft. Hún vakti sjálf at- hygli fyrir stóíska hugarorku sína. Greind hennar og raunsæi smitaði svo alla, að hún hreif með sér alla sem nærri henni komu. „Verst var að pabbi skyldi brenna sig þegar hann bjargaði mér. Nú er ég þakk- lát að geta gengið aftur," sagði Sage litla. En hún er bara lítið bam og hélt til skamms tíma að fíngur sínir myndu vaxa aftur rétt eins og tennur. Og oft segir hún við móður sína að hún vildi að líkama sínum „myndi batna". Hún kveinkaði sér aldrei í sársaukafull- um heitum böðum sem voru nauð- synleg vegna sótthreinsunar á milli aðgerða og þegar hún fékk fyrst að sjá sig í spegli eftir tveggja mánaða legu á sjúkrahúsi, sagði hún: „Já, það er rétt sem þið sögð- uð, nefíð er farið. Og annað eyrað líka. Jæja, það verður að hafa það.“ Nú er Sage komin heim. Húð henn- ar var í fyrstu svo strekkt að það var kvalræði fyrir hana að hreyfa sig. En þegar það átti að fara að hjálpa henni við eitthvað var það fyrsta sem hún sagði: „ég get þetta sjálf". Síðan er hún farin að hlaupa um og leika sér. Það háir henni þó enn, að annar fótur hennar er illa farinn eftir brunann og er í spelku. En bamið er lifandi og gætt því raunsæi og þeirri greind sem svo skaddað bam þarf í veganesti í harðri lífsbaráttu Með Denise móður sinni. COSPER — Gúmmísessu? Nei, takk. Ég nota karamellubúðinginn sem konan min bjó til. Elton John f lottur á því Eigi alls fyrir löngu átti Renata, eiginkona poppstjömunnar gamalkunnu Eltons John, 35 ára afmæli og sló John upp ógurlegri veislu með hundmðum gesta, eiginlega i trássi við konu sína, sem hafði óskað eftir því að aUt færi fram á rólegri nótunum. Elton mun hafa haft af þvi áhyggjur að hann kynni að móðga þá sem hann byði ekki og þegar hann var búinn að út- búa lista yfir þá sem varð að bjóða var sýnt að Renata fengi ekki afmælisboð óska sinna. En hún lét það svo sem ekki fara í taugamar á sér, það var ekki eins og þetta væri eitthvað sem skipti einhveiju fjárhagslegu máli og þetta var jú hennar dagur. Eins og sjá má á myndinni sem þessum pistli fylgir, var hún bara ánægð með daginn og kyssti bónda sinn fyrir. Það má einnig sjá, að hann hefur látið klippa sig í tilefni dagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.