Morgunblaðið - 09.04.1988, Page 53

Morgunblaðið - 09.04.1988, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, IAUGARDAGUR 9. APRÍL'198R r 53 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS nr ytfrgian Þjóðminjasafn íslands og byggðasöfnin Til Velvakanda. Fyrir skömmu var þess minnst, að 125 ár voru liðin frá stofnun Þjóðminjasafns íslands. Ýmislegt hefur verið gert til að minnast þess- ara tímamóta. Meðal annars var haldin sérstök dagskrá • í Há- skólabíói, sem starfsmenn Þjóð- minjasafns önnuðust að miklu leyti sjálfir. í baksýn, á sviði Háskóla- bíós, voru til hliðanna leikmyndir eftir Sigurð Guðmundsson, er hann málaði fyrir frumuppfærslu á Skugga-Sveini, líklega 1862. Var skemmtilegt að bregða upp þessum myndum, sem eru afar merkilegar í íslenskri menningarsögu. Senni- lega eru þær upphaf að innlendri leikmyndagerð. Trúlega eiga fáar þjóðir slíkt í fórum sínum. Eg hygg t.d. að Englendingar gæfu mikið fyrir að eiga eitthvað af hinum fá- brotnu og einföldu leiktjöldum, sem notuð voru á timum Elísabetar I. er þeir voru upp á sitt besta, Sha- kespeare og Ben Jonson. En þeir sömdu leikrit sín fyrir afar fátækleg leikhús, þó þessi verk séu í dag sýnd með fullkomnustu tækni, sem völ er á. Eðlilegt er að staldra við á svona tímamótum og hugleiða hlutverk minjasafna í landinu. Ný lög um slík söfn eru í deiglunni. Ég hef ekki séð þau lög og veit ekki hvem- ig byggðasöfnum er markaður bás í þeim. En eins og allir vita eru þau söfn bæði smá og vanmegnug fjár- hagslega. Eins og aðrar menningar- stofnanir eiga þau undir högg að sækja. Ég hef heyrt raddir, sem eru t.d. andvígar því, að setja söfnin alfarið undir stjóm misviturra sveit- arstjóma. Hagir safnanna eru mjög mismunandi. Sum em betur stödd en önnur, einkum þau er átt hafa ötula forvígismenn. Þeir hafa unnið baki brotnu við söfnun og ekki síst því að afla málefninu fylgis almenn- ings og ráðamanna. Þessir menn hafa fyrst og fremst stuðlað að því að byggðasöfnin hafa hlotið varan- legan sess í nútímasamfélagi. Róð- urinn hefur oft verið þungur á þess- um miðum. En nú má svo telja að almennt sé viðurkennt, a.m.k. í orði, að söfnin eigi rétt á sér. En þetta var ekki svo. Þarf ekki að fara lengra aftur en tvo áratugi til að sjá hvert álit manna var. Um og eftir 1970 urðu miklar umræður um vemdun gamalla húsa. Komu þar einkum til miklar deilur um Bemhöftstorfuna í Reykjavík, sem lauk á farsælan hátt. En þessar hræringar ýttu við mönnum um allt land. Jafnvel menn í sveitar- stjómum tóku víða við sér og létu gera merkilegar athuganir á húsum og fomum mannvirkjum í byggðum sínum. Af þessu nutu byggðasöfnin góðs vegna þess að athyglin beind- ist að þeim um leið. En þetta kost- aði mikil átök og stundum þarf mikið að ganga á til að breyta ríkjandi hugsunarhætti á hverjum tíma. Efla þarf kynningu á byggðasöf num Eitt mesta nauðsynjamál byggðasafnanna er íjárhagur þeirra og hvemig ber að treysta hann. Ljóst er, að I jafnlitlu samfélagi og okkar hlýtur hann að hvfla að mestu á ríki og sveitarfélögum. Vegna fámennis er og sýnt að í náinni framtíð verða íslensk söfn enn að styðjast við áhugasama einstakl- inga. Byggðasöfnin þurfa fyrst og fremst á velvild almennings að halda. Án þess eru söfnin dauða- dæmd. Um byggðasöfnin á aldrei að vera hljótt. Alls konar kynning- arstarf er nauðsynlegt. Ekkert fer þeim verr en að véra stjómað eins og þau væru eign lítils hóps manna. Slíkir menn slíta sundur líftaug safna sinna. Akkeri safnanna og kjölfesta er áhugi almennings. Söfnin eiga sjálf að vekja áhuga, bæði á sögu einstakra héraða og landsins alls. Byggðasöfn þurfa helst að vera stöðugt á dagskrá. Almenningur má ekki líta á þau sem stofnanir er geymi gamla rykfallna muni í dimmum skotum. Þau eiga að vera lifandi og andrúmsloft tutt- ugustu aldar þarf að leika um þau. Um söftiin eiga að vera umræður í blöðum, birta þarf fréttir af starfí þeirra, húsnæðis- og fjármálum. Fjalla þarf um einstaka muni í eigu þeirra og varpa ljósi á tengslin við heimabyggðir. Segja á frá nýjum munum, gestakomum og aðsókn. Helst að birta reglulegt yfírlit yfír starfíð ár hvert. Allt þetta er nauð- syn í starfí hvers safns. Skattgreið- endur fá þá innsýn í starfíð — og sveitarstjómamenn, sem ráðstafa fjármunum almennings, fá um leið að sjá hvemig þeim peningum er varið. Auk þess má hafa ýmsar sérsýningar, jafnvel upplestra og smáleiksýningar, eða annað eftir því sem húsnæði býður upp á. íslenskir sveitarstjómamenn ættu að skoða erlend byggðasöfn, ef þeir hafa tök á. Einkum á Norð- urlöndum. Ekki síst, ef þeir í fram- tíðinni eiga einir að veita fé til byggðasafna. Einnig ættu starfs- menn Þjóðminjasafns að fá tæki- færi til að fræða stjómendur sveit- arfélaga um byggðasöfnin og starf þeirra. Samband fslenskra sveitar- félaga gæti liðsinnt í þessu efni. Einnig væri athugandi að efla kynni þeirra norrænna safnmanna er starfa við byggðasöfn og íslenskra safnvarða. Gefa íslendingum t.d. kost á að kynna sér söfn ytra. Öll slík tengsl yrðu örugglega til að sýna mönnum fram á hve nágrann- ar okkar búa un betur að söfnunum en hér er gert. Að vísu em þjóðir Norðurlanda fólksfleiri og ríkari en við, en þær em skyldastar okkur í menningar- og sögulegu samhengi. Nauðsynlegt er, eftir því sem fjármunir leyfa, að Sjónvarp ríkisins taki að sér gerð þátta um byggða- söfnin. Þættir þessir gætu verið stuttir, en gæfu um leið góðan þver- skurð af íslenskri menningu og at- vinnuháttum til lands og sjávar. Aukin kynning og umræða um íslensk minjasöfn, er ein besta af- mælisgjöfin sem íslensk þjóð getur gefið Þjóðminjasafni sínu. Ef það kynni að auka aðsókn að söfnunum er markinu náð. Skúli Magnússon, Keflavík ’ Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, em ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því t.il lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. ÞAKLEKAVANDAMÁL Leysum öll lekavandamál, svo sem þakleka á flötum þökum, svalirfyrir ofan íbúðir, samskeyti milli húsa. Fillcoat á bárujárn svo ekki leki með nöglum og samskeytum. Sprunguvið- gerðirog sílanúðun. Fillcoat Þétting hf. gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málmþök og pappaþök. kvöldsími: 54410 dagsími: 651710. MICR©$OFT HUGBÚNAÐUR ÚTHVERFI Ármúli o.fl. Síðumúli o.fl. MIÐBÆR Oðinsgata JHwgMiiWbifeife

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.