Morgunblaðið - 09.04.1988, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 09.04.1988, Qupperneq 56
SYKURLAUST ur^imWíifrifo WRIGLEY’S EIGNA MIÐIUMN 27711 t> I N G H 0 l T S S T R Æ T I 3 Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorieifur Guðmundsson, sölum. Þórólfur Halldórsson, lögfr.- Unnsteinn Beck hri., simi 12320 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Aðskilnaður dóms^ og framkvæmdavalds: Frumvarpið verður kynnt á þessu þingi ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis- flokksins samþykkti í gær að frumvarp um aðskilnað dóms- valds og umboðsvalds í héraði yrði lagt fram á þessu þingi til kynningar, en lagði til að nefnd, sem búið hefur frumvarpið til flutnings, starfi áfram og full- vinni frumvarpið fyrir af- greiðslu á næsta þingi. Þing- flokkur Framsóknarflokksins hefur ekki afgreitt frumvarpið, en á mánudag rennur út frestur til að leggja fram stjómarfrum- vörp, eigi þau að fá afgreiðslu á þessu þingi. Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði við Morgunblaðið að á fundi þingflokksins í gær hefði verið áréttuð sú stefna Sjálfstæðis- flokksins að að aðskilja bæri dóms- vald og framkvæmdavald en flokk- urinn teldi að vinna þyrfti þetta mál betur. Þorsteinn sagði að ýms- ir þættir frumvarpsins þyrftu at- hugunar við og nefndi sérstaklega umdæmaskipunina, stöðu sýslu- manna eftir að dómsvaldið hefur verið skilið frá, verkefni þeirra og hlutverk, og kostnaðarþætti máls- ins en ekki hefði verið svigrúm við undirbúning frumvarpsins að gera kostnaðarmat á þeim breytingum sem verða með nýjum lögunum. Þorsteinn sagði að flokkurinn hefði þó heimilað að málið yrði lagt fram til kynningar, en lagt til um leið, að nefndin sem unnið hefur að undirbúningi frumvarpsins starfí áfram og fái betri og rýmri tíma til að fullvinna verkið og undirbúa málið betur fyrir afgreiðslu á næsta þingi. Fundur vinnuveitenda og félaganna í Eyjum og á Akranesi: Frekari launabreyt- ingar verða ekki - segir framkvæmdastjóri VSÍ SAMNINGAFUNDI vinnuveit- enda með Verkalýðsfélaginu Snót í Vestmannaeyjum, Verka- lýðsfélagi Vestmannaeyja og Verkalýðsfélagi Akraness, sem haldinn var i gær, lauk með bók- un vinnuveitenda. Er verkalýðs- félögunum veittur frestur fram til 14. apríl til að afgreiða Akur- eyrarsamninginn. Að sögn Þór- arins V. Þórarinssonar, fram- kvæmdastóra Vinnuveitenda- sambands íslands, kemur ekki til greina að semja um aðrar launa- breytingar við þessi þijú verka- lýðsfélög en þá var samið um. í bókun vinnuveitenda árétta þeir fyrra tilboð sitt, að kjarasamn- ingurinn, sem gerður var á Akur- eyri 21. mars síðastliðinn, gildi einnig gagnvart Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Vest- mannaeyja og Verkakvennafélag- inu Snót, með gildistíma frá 21. mars 1988, eins og gagnvart öðrum verkalýðsfélögum, sem samþykkt ' hafa samninginn. Þá segir enn fremur að til þess að veita frekara ráðrúm til undirbúnings og kynn- ingar á kjarasamningnum hafa VSÍ og VMS fallist á að veita fyrrgreind- um verkalýðsfélögum lengri frest eða til fímmtudagskvölds 14. apríl næstkomandi til þess að afgreiða samninginn á félagsfundum og/eða með skriflegum atkvæðagreiðslum í félögunum. Að sögn Þórarins Þórarinssonar framkvæmdastjóra Vinnuveitenda- sambandsins, hefur ekki verið boð- aður nýr fundur með deiluaðilum. „Afstaða atvinnurekenda í Vest- mannaeyjum og á Akranesi og sam- takanna er mjög einörð í þessu máli,“ sagði Þórarinn. „Það er ekki um það að ræða að semja um aðrar launabreytingar gagnvart þessum þremur félögum. Á því er enginn kostur. Því hljóta þessi félög að standa frammi fyrir því hvort fé- lagsmenn fá kost á að taka afstöðu til þessara samninga og þá um leið hvort þeir eiga að gilda með þessum hætti eða hvort eitthvað annað á að taka við.“ Frestur til atkvæðagreiðslu innan annarra félaga rennur út 12. apríl og sagði Þórarinn að útlit væri fyr- ir að samningurinn yrði samþykktur hjá öllum öðrum félögum á landinu. Morgunblaðið/RAX Gert við frostskemmdir Frost og veðrun hafa valdið miklum skemmdum á stuðlabergs- stöplunum, sem mynda tumspíru Hallgrímskirkju en 20 ár em liðin síðan tuminn var byggður. Að sögn Karls Sigurbjörassonar sóknarprests verða skemmdimar lagfærðar í sumar og var ver- ið að flytja efni í verkpalla upp í turninn í gær. Sparisjóður Rauðasandshrepps: Fjárdráttur rannsakaður Ríkissaksóknari hefur falið Rannsóknarlögreglu rfldsins rannsókn á fjárreiðum Sparisjóðs Rauðasandshrepps á grundvelli skýrslu bankaeftirlits Seðlabank- ans á starfsemi sjóðsins. í athugun bankaeftirlitsins kom i ljós fjár- dráttur sparisjóðssijórans, og samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins skiptir hann milijónum króna. Sparisjóðsstjórinn hefur sagt af ' sér vegna málsins. Hann hafði starf- að í hlutastarfí við sjóðinn frá árinu 1977 og var eini starfsmaðurinn. Útlit er fyrir að Tryggingasjóður sparísjóða þurfí að greiða peninga inn í sjóðinn til að tryggja innistæður sparifíáreigenda. Sparisjóður Rauðasandshrepps er einn af minnstu sparisjóðum lands- ins. Innistæður voru um 5,3 milljónir um sfðustu áramót. Ákveðið hefur verið að sameina sjóðinn Eyrarspari- sjóði á Patreksfírði. í tengslum við uppgjör fyrir árið 1987 kom í ljós að ekki var allt með felldu og var það tilkynnt til bankaeftirlitsins. Þórður Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlitsins segir að athugun- inni sé lokið og skýrsla um hana hafí verið afhent stjóm Sparisjóðs- ins, viðskiptaráðherra og ríkissak- sóknara en sagðist ekki geta sagt neitt frá efíiisatriðum hennar. Til að fela það fé sem sparisjóðs- stjórinn tók sér mun hann hafa minnkað bókfærð innlán á móti með því að taka blaðsíður með innláns- reikningum fyrir sömu fjárhæð út úr lausblaðabók sem innlánin em færð inn í. Sparifláreigendur hjá Sparisjóði Rauðasandshrepps munu ekki tapa fé, þar sem Tryggingasjóður spari- sjóða mun greiða tap hans þannig að Eyrarsparisjóður geti tekið hann yfir sér að skaðlausu. Verslanir lokaðar á laugardögum í sumar: Rýmri verslunar- tími með haustinu FORRÁÐAMENN stórmarkaða, telja að nýr kjarasamningur við VR muni leiða til einhverskonar vaktafyrirkomulags eða skipti- vinnu, til þess að tryggja rýmri opnunartíma í haust heldur en verður í sumar. Magnús L. Ráðherra leitar umsagnar eft- ir kæru íbúa við Tjarnargötu JÓHANNA Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra, hefur leitað umsagnar skipulagsstjórnar ríkisins og byggingamefndar Reykjavíkurborgar, vegna kæra sem henni hefur borist frá íbúum við Tjarnargötu. Þeir hafa kært heimild bygg- ingaraefndar Reykjavíkur og borgarstjórnar til að hefja framkvæmdir við byggingu væntanlegs ráðhúss. Jóhanna sagði að leitað væri umsagnar skipulagsstjómar og byggingamefndar eins og ráð- herra ber að gera lögum sam- kvæmt þegar slík kæra berst. Kæra íbúanna vegna afgreiðslu skipulagsstjómar á beiðni borgar- ráðs um stækkun á byggingarreit ráðhússins og send var ráðuneyt- inu 28. mars síðastliðinn, er enn til athugunar í ráðuneytinu. Sagði Jóhanna að ákvörðun um hana yrði tekin eftir helgi. Sjá nánar um kæru íbúa við Tjamargötu á bls. 31. Sveinsson, formaður VR, telur miklum áfanga náð með lokun á laugardögum í sumar, en hann segir jafnframt að verði starfs- fólki tryggður hóflegur vinnu- tími sé ekkert þvi til fyrírstöðu að hafa verslanir opnar svo lengi sem kaupmenn vilja. Samningar tókust með Verslun- armannafélagi Reykjavíkur og kaupmönnum í gærmorgun. Samið var um lokun verslana á laugar- dögum yfír sumarmánuðina og um 10% launauppbót til afgreiðslu- fólks verslana, sem nýta sér langan afgreiðslutíma í desember. Grunn- laun hækkuðu ekki í VR samningn- um frá því heildarsamningar voru gerðir í mars. Sérstök bókun var samþykkt um, að nefnd samningsaðila skuli fínna leiðir til að verslanir geti haft opið á laugardögum án þess að vinnutími starfsfólks verði óhóf- legur. Sjá nánari frásögn af samn- ingi VR og umsagnir hags- munaaðila á bls. 22. Flateyri: Minkur drep- inn í höfninni Flateyri. ÞEGAR starfsmenn Hjálms hf. voru að vinna um borð i Gylli ÍS i Flateyrarhöfn einn daginn f vik- unni urðu þeir varir við heldur óvinsælan gest. Þar var á ferðinni minkur sem hafði smyglað sér um borð f páskafríinu. Minkurinn var rekinn frá borði og hafnaði hann í sjónum. Snöggur og vel vopnum búinn skrifstofumað- ur Hjálms hf. skaut minkinn í fyrstu atrennu í sjónum. Ekki er algengt að þessi dýr séu á ferðinni í Flateyr- arhöfn en það hefur þó komið fyrir. - Magnea

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.