Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
:1B 5
allir að njósna um alla, jafnvel
börnin um foreldrana.
éskar skoðanir. Voru þeir umsvifa-
laust handteknir og líklega skotnir.
Segir í helgisögunni, að hópur
kúlakka, þar á meðal frændi hans
einn, hafí drepið hann, en þeir síðan
fallið í hendur NKVD. Voru önnur
böm hvött til að fara að dæmi hans
og segja til foreldra sinna.
Amlínskíj segir, að á tímum
Stalíns hafí „mannleg samviska
verið örkumluð og alin á grimmd".
Sígild mannúðarsjónarmið, ofar öll-
um stéttum, hafí verið úthrópuð
sem útlent fyrirbrigði, skaðlegt og
smáborgaralegt.
„Það var ekkert, sem hét gott
eða vont. Aðeins gott eða vont fyr-
ir öreigastéttina," segir Amlínsksíj.
„Og því var hægt að hagræða að
vild.“
- REUTER
lega sinnað, þykir vænt um land sitt
og þjóð og vill reyna að skilja fortí-
ðina og grafast fyrir um rætur hem-
aðarhyggjunnar, sem áður ríkti. Jap-
anir, sem voru í hemámsliðinu á
þessum tíma, koma hingað fullir ið-
runar,“ sagði Han Xiao, forstöðu-
maður safnsins.
Xiao hélt áfram og sagði, að til
væm þeir Japanir, sem ekki kæmu
í safnið — núverandi leiðtogar Jap-
ans og fyrrverandi yfírmenn fanga-
búðanna. „Þeir gerðu tilraunir á lif-
andi fólki, 31 ólíka tilraun," sagði
leiðsögumaðurinn.
Af föngunum 3.000 eða svo voru
flestir kínverskir, mongólskir, kór-
eskir og rússneskir. Hugsanlega var
einn Hollendingur þeirra á meðal og
nokkrir Bretar, Bandaríkjamenn og
Ástralir. „Við vitum ekki hvað þeir
hétu, Japönunum fannst ekki taka
því að skrá nöfnin," sagði forstöðu-
maðurinn.
Uppi á veggnum er mynd af Ishii
Shiro, fangabúðastjóranum fyrrver-
andi og yfírmanni hinnar alræmdu
731. deildar. Hann lést í Japan árið
1959 en Kínverjar telja, að Kitano
Masaii, eftirmaður hans í búðunum
á ámnum 1942-45, ogýmsir vísinda-
menn, sem störfuðu þar, séu enn á
lífi.
Kínverskir sagnfræðingar og
margir kollegar þeirra á Vestur-
löndum halda því fram, að banda-
rísku hemámsyfírvöldin í Japan eftir
1945 hafí látið japönsku
stríðsglæpamennina sleppa gegn því
að fá í hendumar upplýsingar um
rannsóknir þeirra á sýklahemaði.
Tilraunir Japananna vom meðal
annars þær að skipta alveg um blóð
í mönnum og setja hrossablóð í stað-
inn og með öðmm var fylgst þegar
þeir fmsu í hel í fimbulkulda vetrar-
ins í Norður-Kína.
„Þeir veinuðu og veinuðu en við
litum ekki á þessa trédmmba sem
mannlegar vemr. Þeir vom bara
kjötstykki á höggfjölinni.“ Japönsku
rithöfundamir Seiichi Yoimura og
Masaki Shimozato, sem hafa skrifað
bók um fangabúðimar og glæpa-
verkin, sem þar vom unnin, hafa
þetta eftir einum úr deild 731.
Oaldar-
lýðurínn
færirút
ríkisitt
Glæpaflokkarnir í Los Angeles
hafa að undanfömu verið að
færa út kvíarnar og stunda nú
ekki aðeins eiturlyfjasöluna og '
manndrápin, sem henni fylgja, í
fátækrahverfum miðborgarinnar,
heldur einnig í fínu úthverfunum
og jafnvel í öðmm borgum.
Lögregluyfirvöld og félagsmála-
fólk segjast vera að glíma við óvið-
ráðanlegt neyðarástand. Kristallað
kókaín, „krakk", sem er hitað og
andað að sér, glæpamenn, sem
gerast æ yngri, og morð, sem. em
framin án nokkurrar ástæðu; allt
hefur þetta stuðlað að eins konar
styijaldarástandi í borginni.
Þungir fangelsisdómar virðast
ekki megna að draga neitt úr
„spennumorðunum" og raunar er
litið á tilviljunarkennd og ástæðu-
laus manndráp sem viðeigandi
vígslu eða innsetningu í glæpa-
flokkana. Þungur dómur er bara
talinn til marks um hvað glæpa-
maðurinn er harður af sér.
Á síðasta ári vom framin í Los
Angeles 387 morð, sem rakin em
til glæpaflokkanna, en almenning-
ur eða þeir, sem ekki búa í fá-
tækrahverfunum, hefur löngum
látið sig það litlu skipta. Það var
ekki fyrr en morðingjalýðurinn fór
að láta til sín taka í úthverfunum
að breyting varð á. Þegar 27 ára
gömul svartlistarkona var skotin
til bana í Westwood-hverfi í Los
Angeles vom umsvifalaust settir
25.000 dollarar til höfuðs morð-
ingjunum.
Konan varð fyrir skoti þegar
tveimur glæpaflokkum hafði lostið
saman en ofbeldið og manndrápin,
sem fylgja slíkum átökum, ganga
næst þeirri morðaðferð glæpa-
mannanna að aka upp að fórnar-
lambinu og skjóta það. „Fyrir að-
eins fáum ámm var það vinsælast
að vera á mótorhjóli og með „Sat-
urday Night Special" (ódýra, stutt-
hleypta marghleypu)," segir Mic-
hael Genelin, saksóknari í Los
Angeles, „en nú nota þeir
hríðskotabyssur eins og Uzi eða
AK47-D-árásarriffla til að skjóta
út um bílgluggana."
Vegna þess hve auðvelt er að
verða sér úti um þessi vopn má
það heita daglegt brauð, að sak-
laust fólk láti lífið fyrir hendi
glæpamannanna.
Talið er, að 50-70.000 manns
séu í glæpaflokkunum í Los Ange-
les eða miklu fleiri en lögregluþjón-
ar eru í borginni. Það er eiturlyfja-
gróðinn, sem kyndir undir þeim,
en salan á „krakkinu" er að mestu
í höndum tveggja svartra flokka,
„The Crips“, sem eru með bláan
höfuðklút, og „The Bloods“, sem
eru með rauðan.
- CHRIS REED
Ný kynslóð
StliuiirflamiDMD-
Iitið í gluggana um helgina
Hvíldarstóll m/skammel, verð aðeins kr. 25.600,- kr.
23.000 stgr. Litir: svart eða brúnt. Ath.i Við bjóðum
eitt besta úrval landsins af hvíldarstólum.
AFRÍKA
Sendum í póstkröfu.
Greiðslukortaþjónusta.
Ath.: Nýjar sendingar af leðursófasettum og homsófum.
Ármúla 8, símar 82275 og 685375.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, símar 82275 og 685375.
Lotus opnar
aftureftir
gagngerar
breytingar
með nýjum
vor- og
sumarvörum
TÍSKUVERSLUN
ÁLFTAMÝRI 7. SÍMl. 31462.
„The Great Safari“
»IKR 133.790,-16 vikur.
London - Nairobi í
gegnum Sahara
Öll Afríka
’IKR 194.560,-20 vikur.
London - Nairobi -
Kairó - London
Afríka
„Coast to Coast“
• IKR 104.S20,-12 vikur.
Dakar - Mombassa
„Mountain Gorilla
Safari"
♦IKR 80.830,-34 dagar.
Tanzanía og Rwanda
„East African
Safari“
•IKR 54.700,-20 dagar.
Tanzanía
• ÍKR. 17.080,- 7 dagar.
Viðbót við ofangr. ferðir
aland
1*30.-15dagar. •
Frá Kairó
„Sahara Safari'*
• IKR 33.250,- 4 vikur.
Túnis og Aisír
*1KR 24.040.-15 dagar.
Frá Malaga
Matur og gisting er
innifalið í verði.
• M.v. gengl 20. feb. ’88.
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hríngbraut, síml 16850
- tyrír altt ungt fólk!