Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 12
12 B . MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 Á gömlum ljósmyndum sjást þau híma fyrir utan Glaumbæ jafnt í roki sem í logni, ungar dísir í lærastuttum pilsum og síðhærðir sveinar með hugsjónir. Þau voru skítblönk eins og ævinlega, en versluðu samt vel á vínbörum hússins þegar inn var komið, hvernig sem á því stóð. Kæruleysi en undarlegur kraftur bjó í þessum ungu hjörtum, ' sem heimtuðu brjálað fjör og geggjað stuð og það fengu þau i þessu húsi. Það bókstaflega nötraði og skalf undan hávaða og stappi þessara ungmenna sem höfðu sett sér þann ásetning að frelsa heiminn, seinna, — þegar þau væru búin að djamma. I dag dregur húsið djúpt andann, hávaðinn horfinn, brjálæðingarnir á burtu, — en núna koma „bamabömin“, afkvæmi Glaumbæjarkynslóðar- innar. Ekki til að djamma, ónei, heldur til að skoða ÖU frægu listaverkin með foreldmm sínum eða kennurum. Með aðdáunaraugum horfa þau á húsið sem er orðið alveg glerfínt, og hafa ekki hugmynd um hvernig það leit út meðan krakkaskarinn var þar aUur áður fyrr. Og þau trítla innfyrir, sæt, brún og bústin, í leðuijökkum með spangir á tönnunum og úttroðin seðlaveski í vösunum. Yfirdiskótekarinn Halldór Backman. Stuðið byijað. jákvæð Það hefur verið sagt um þessi böm sem fæddust á áttunda áratugnum, að þau fái bókstaflega allt, að fjárþörf þeirra sé óseðrjandi, að þau séu frek og yfir- gangssöm, spillt og dekruð, að þau líti á allt sem sjálfsagðan hlut: heilsu, heimili, mat, klæði og menntun. Að þau álíti, að sólin hafi sérstaklega verið hönnuð fyrir þau. En þau voru nú samt ekki alltaf í leðurjökkum, ekki meðan mamma og pabbi voru að byggja og baslast við að koma sér fyrir í þjóðfélag- inu. Þá spígsporðu þau um með lykil um hálsinn og var vorkennt alveg voðalega af sálfræðingum og kennurum sem sjálfir áttu böm með lykia um hálsinn. Yfirleitt sáu þau um sig sjálf á daginn, fengu sér að borða, komu sér í skólann, náðu í systkini sín úr pössun og keyptu í matinn. Þau tóku á sig ábyrgð og vöndust því að hafa peninga milli handanna. Sjoppur og skyndi- bitastaðir blómstruðu og svo var einnig um Karíus og Baktus, tann- læknar kvörtuðu sáran.' Kennarar táruðust yfír lélegri íslenskukunn- áttu, því krakkaskammimar kunnu ekki einu sinni að blóta lengur á íslensku, sögðu bara „shit“. Og svo urðu þau unglingar og ekki skánaði íslenskan. Engin kynslóð, fyrr eða síðar, hefur haft jafnmikið fé milli hand- anna og þessi. Enda kostar það sitt að ganga um í dýmm fötum frá ákveðnum „merkjum“, fara á hár- greiðslustofu og á sólbaðsstofu, stunda heilsurækt og annað sport, og svo þegar í framhaldsskóla er komið, kaupa bensín á bílinn og fara til sólarlanda í skólaferðalag. Nú svo þarf að kaupa svona ýmsar græjur, plötuspilara, myndavélar, tölvur og svona hitt og þetta smá- dót. En hvaðan fá þau aurinn fyrir þessu öllu saman? Jú, ef ekki frá pabba og mömmu, þá vinna þau bara sjálf með skólanum. En reynd- ar hafa pabbi og mamma verið ansi seig við að skaffa. Þessi marg- umtalaði æskukraftur þeirra sem átti að fara í að frelsa heiminn nýttist þeim þegar á reyndi ein- göngu í yfirvinnustundir. Er það mörgum hulin ráðgáta að einmitt sú kynslóð sem hvað mest gagn- rýndi efnishyggjuna skyldi verða sú sem á endanum þjónaði henni mest og best. En snúum okkur aftur að nýju kynslóðinni. Er ekki loksins komin fram kynslóð sem okkur öllum hef- ur dreymt um? Ungt fólk sem eng- an kala ber til fortíðarinnar, laust við biturð vegna stríðs, hungurs, fátæktar, menntunarskorts og basls. Eru þau kannski vonin okkar? Eins og enskir lordar En hvernig eru þau? Hvað segja þau sjálf um lífíð og tilveruna, um framtíðina? Eitt kvöldið seint í mars var árs- hátíð í einum fjölmennasta skóla borgarinnar, Ölduselsskóla í Breið- holti, — og var ekki úr vegi að kíkja þar inn og rabba aðeins við krakk- ana. Áslaug Friðriksdóttir skólastjóri sagði að þessi 340 manna hópur í unglingadeildinni væri dálítið sér- stakur. „Þau fluttu hér inn í Selja- hverfið á sínum tíma, grátt og kaldranalegt, húsin í byggingu, | skólinn hálfkláraður, nýir kennarar, nýir félagar, en þau komust heil frá öllu saman og á því sést best hversu sveigjanleg böm em. En þetta hef- ur breyst og ég nýt þess að ganga um hverfið á sumarkvöldum og horfa á heilu fjölskyldumar vinna saman í görðunum. Mér finnst þetta unga fólk vera afskaplega indælt og gott fólk, en ég hef áhyggjur af því hversu snemma þau byija á lífsgæðakapphlaupinu." Músíkin hljómaði fram í anddyrið þar sem stúlka og piltur úr níunda bekk leituðu ófeimin áfengis á fé- lögum sínum áður en þeim var hleypt inn og menn réttu vamar- lausir upp hendumar eins og litlir bófar. Pilturinn leitaði á kynbræðr- um sínum og stúikan á stöllum sínum, en þó reyndu sumir að svindla, einn drengjanna til að mynda þrýsti sér upp að stúlkunni og hvíslaði titrandi röddu: Þú mátt alveg leita á mér. Honum var fleygt inn af miskunnarleysi. Og inn streymdu þau, uppdubbuð og fín, bæði í níðþröngum kjólum og víðum úrjersey og tjulli, í hvítum jakkaföt- um og jafnvel svörtum úr silkimjúku efni. Einn kom inn eins og enskur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.