Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 26

Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 26
26 Ö !«ei .naqA .or auoAgunMue oiaAJgmjagQM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 DD tiEIMI rVIUMyNDANNA Hentu mömmu af lestinni Danny DeVito langaði alltaf til að leikstýra bíómynd, alveg frá því hann lagði út á leikarabrautina. Hann gerði tvær stuttar myndir snefnma á áttunda áratugnum í samvinnu við konuna sína, Rhea Perlman. Þegar hún sló minnihátt- ar i gegn í Staupasteini í hlutverki gengilbeinunnar Körlu lögðu þau bíómyndagerð á hilluna. DeVito sló meiriháttar í gegn í ævintýra- gamanmyndum eins og „Romanc- ing the Stone", „Ruthless People“ og „Tin Men“ og loksins fékk hann tækifæri til að leikstýra almenni- legri bíómynd á síðasta ári og hon- um þótti takast mjög vel upp. Myndin naut mikilla vinsælda í Bandaríkjunum um síðustu jól og verður sýnd á næstunni í Há- skólabíói. Það er gamanmynd sem heitir því einkennilega nafni „Throw Momma from the Train“ (Hentu mömmu af lestinni) og DeVito fer sjálfur með annað aðal- hlutverkið í henni á móti Billy Crystal. „Hentu mömmu" er svört kóm- edía sem byggir mjög lauslega á Hitchcock-þrillernum „Strangers on a Train" um tvo menn sem skiptast á morðum. í mynd sinni leikur DeVito Owen, verðandi rit- höfund hvers mamma er hálfgert ef ekki algert skrýmsli, er eins for- Ijót og hún er illgjörn. Crystal leik- ur Larry, rithöfund sem þjáist af svonefndri rithöfundastífiu. Hann kemur ekki orði á blað en ástæða stíflunnar er fyrrverandi eiginkona hans sem baðar sig í frægð og frama eftir að hafa skrifað met- sölubók, sem hann segir að hún hafi stolið frá honum. Þeir hugsa um það og tala leynt og Ijóst að ekkert væri þeim ánægjulegra en að koma þessum kvensniftum fyrir kattarnef og atvikin haga því þann- ig að þeir skiptast á morðum; Owen skal sjá um eiginkonuna en Larry um mömmuna. Því miðúr fréttir Larry ekki af hinni djörfu áætlun fyrr en eiginkonan hans týnist allt í einu, hann sjálfur er eftirlýstur fyrir morðið á henni, hann hefur enga fjarvistarsönnun og Owen væntir þess að hann myrði mömmu hans. „Leikari getur gert tilraun til að skapa líf. Leikstjóri getur skapað heila veröld og hann ræður frá hvaða sjónarhóli hann sýnir hana,“ segir Danny DeVito í viðtali. „Ég hafði fengið nokkur tilboð um að leikstýra myndum eftir að mér fór að ganga vel i bíómyndunum í Hollywood (hann leikstýrði einum þætti af „Amazing Stories Spiel- bergs) en ég valdi „Hentu mömmu" vegna svörtu kímninnar í henni. Ég hafnaði sykursætu grínmyndunum. Ég undirbjó mig vel, teiknaði litlar afstöðumyndir. Ég vil að vinklarnir séu á hreihu þannig að ég vinn ekki sitjandi á rassinum segjandi: Hvað á ég svo að gera?" Og áfram heldur hann: „Það var ekki erfitt að sameina leikinn og leikstjórnina. Mín hugmynd var sú að reyna að gera allar persónurnar raunverulegar og yfirbragðið myrkt. Myndin sem ég hafði af Owen, persónunni sem ég leik, var af litlum strák sem hatar mömmu sína. Áhorfendum finnst hann eitt- hvað skrítinn þar til kemur að atrið- inu þegar hann sýnir Larry mynt- safnið sitt. Owen á enga vini en þráir að eignast vin.“ Það byggir De Vito að nokkru leyti á sinni eig- in, einmanalegu æsku. Framleiðandi myndarinnar er Larry Brezneren handritshöfundur er Stu Silver og með lítil hlutverk fara m.a. Oprah Winfrey (Purpura- liturinn) og leikstjórinn Rob Reiner („The Princess Bride"). Oprah leik- ur sjálfa sig en hún stjórnar þekkt- um samtalsþætti í Bandaríkjunum. Reiner leikur umboðsmann Larrys og sparkar honum þegar rithöf- undastíflan ætlar aldrei að bresta. En þá var að finna mömmuna hræðilegu. DeVito hafði leikið með Anne Ramsey í „Goin’ South" en það var langt, langt síðan. „Ég frétti af því að hún hafi verið dá- samleg í hlutverki móður Nick Nolte í myndinni „Weeds“ og ák- vað að hitta hana og vita hvort hún hæfði mömmuhlutverkinu okkar. Ég hafði ekki hugmynd um hverju búast mátti við.“ En Ramsey kom vel undirbúin. „Hún spýtti eldi, for- mælti og var algerlega hryllileg," segir DeVito. „Ég hljóp upp til hennar og þrýsti mér að henni og kallaði „mamma". Hún barði mig í hausinn með hnúunum og ég sagði að hún fengi hlutverkið." Ekkert elsku mamma; Anne Ramsey og Danny DeVito í Hentu mömmu af lestinni. Kínastúlkan Regnboginn sýnir á næstunni bandarísku myndina „China Girl" (Kínastúlkan) sem býður uppá blöndu af spennu og rómantík. Hún er í kjarna sínum enn eitt Rómeó og Júlíu-afbrigðið flutt á götur New York. Myndin lýsir taugatitringnum sem myndast á milli glæpasamtaka Kínverja í Kína- hverfinu og ítölsku Mafiunnar í Litlu-Ítalíu þegar stúlka og strákur úr sitt hvorum arminum rugla sam- an reitunum. Nýliðarnir Sari Chang og Rich- ard Panebianco leika parið unga en leikstjóri er Abel Ferrara. Með aukahlutverk fara m.a. James Russo (fautinn í „Extremities") og James Hong. „Við Nick St. John (handrits- höfundurinn) höfum verið að gera myndir frá því við vorum táning- ar,“ segir Ferrara. „Þú veist, við fórum bara út með myndavélina og byrjuðum að taka. Kvikmynda- gerðarmennirnir sem við dáðum voru Pasolini og Godard og við gerum það enn. En við vissum líka af leikstjórunum sem þeir dáðu, eins og Samuel Fuller og Anthony Mann. Ég byrjaði sem leikstjóri. Ég réð sjálfan mig. Ég hef í raun- inni aldrei starfað í kvikmyndaiðn- aðinum nema sem leikstjóri. Við betluðum, tókum lán, stálum pen- ingum frá hverjum sem áræddi að setjast niður með okkur,“ segir Ferrara um fyrstu sporin í kvik- myndagerðinni. Sagan í Kínastúlkunni er svona: Tony og Tye hittast á dansleik þar sem krakkar úr ítölsku og kínversku hverfi eru að skemmta sér. Gagnkvæm óbeit þessara samfélaga hvort á öðru veldur því að Tony má þakka sínum sæla fyr- ir að sleppa undan flokki kínver- skra ungmenna, sem veita honum eftirför. Hann leitar til eigin hverfis og slær þegar í brýnu með ítölsku strákunum og hinum kínversku. Auk þess sem ungmenni hinna ólíku menningaheimi eigast við á öngstrætum New York eiga þau í erjum við eldri ráðamenn af sínu eigin þjóðerni. Þeir hafa samið um skiptingu hverfanna og vilja um- fram allt halda friðinn. Ástin á milli Tony og Tye magn- ast og sama er að segja um ófrið- inn á milli hinna stríðandi fylkinga. „Undirbúningsvinnan stóð í tvo mánuði, tökur stóðu í aðra tvo og eftirvinnslan tók sjö mánuði. Myndin kostaði þrjár og hálfa millj- ón dollara og það var Vestron sem studdi okkur fjárhagslega. Kína- stúlkan er ekki heimildamynd um líf og örlög ítölsku og kinversku glæpaklíkanna en við tókum mynd- ina í hverfum þeirra og kringum- stæðurnar sem við byggjum á eru til staðar. Við notum ekki nema eina upp- tökuvél og ákvarðanir eru teknar þegar við mætum á tökustaðinn. Kvikmyndatökumaðurinn okkar nam við kvikmyndaskólann í Prag og hafði aldrei tekið kvikmynd áður í Bandaríkjunum. Núna er hann að vinna með Paul Schrader að hans næstu mynd." Skipst á morðum; Crystal og De Vito. DeVito bæði leikur í og lölkstýr- ir einnig sínu næsta verkefni sem er endurgerð Jean Renoir-myndar- innar „La Chienne" frá 1931, sem Fritz Lang byggði sína mynd „Scarlet Street" á árið 1945 með Edward G. Robinson í aðalhlut- verkinu. „Ég hef ekki séð Renoir- myndina en hin myndin gerist í mjög Lang-ísku umhverfi. Ég breyti ákveðnum hlutum. Það veröur kímni í henni og svo veit maður aldrei. Ég er mikið fyrir góð enda- lok eða a.m.k. bjartsýnisleg. Mynd- in verður tekin í Kaliforníu. Ég fékk nóg áf frumskógum, eyðimörkum og pöddum og bátum þegar við gerðum ævintýramyndirnar „Ro- mancing the Stone“ og Nílarstein- inn.“ James Belushi og Louis Gossett jr. í myndinni Skólastjórinn. Nýi skólastiórinn Allt sem kennarinn Rick Latimer gerir hefur tilhneigingu til að mis- takast. Lukkan hefur sannarlega snúið við honum bakinu. Konan er farin frá honum, drykkjufélag- arnir eiga fullt í fangi með að halda honum frá slagsmálum við barinn og skólanefndin veit ekki hvað hún á að gera við þennan kennara sem er til meiri vandræða en nokkurn tímann nemendurnir. Rétt þegar svo virðist sem ekk- ert geti lengur farið á verri veg er hann „hækkaður í tign“ úr kennara í skólastjóra. Slæmu fréttirnar eru þær að skólinn sem hann á að stjórna er versti menntaskólinn á svæðinu. Flestir nemendurnir eru afbrotaunglingar og kennararnir eru of hræddir við þá til að standa gegn þeim. Skólinn er staður þar sem ruslið, ef svo má segja, fer aldrei úr tunnunum. En Rick Latimer lítur þannig á málið: Ég hef aðeins tvo kosti í stöðunni; annaðhvort kem ég lagi á liðið eða dey við að reyna það. Þannig er það nú í spennumynd Stjörnubíós sem heitir Skólastjór- inn („The Principal") og er með þeim James Belushi og Louis Gos- sett jr. í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Christopher Cain en handrits- höfundur er Frank Deese og er þetta hans fyrsta mynd. „Þessi mynd speglar raunveru- leikann," segir Chris Cain. „Hún er líka um einn mann sem getur skipt, og skiptir, öllu máli. Ef ein- hver boðskapur er í myndinni er hann kannski sá að menn fá fleiri en eitt tækifæri í lífinu, allir eiga möguleika hver sem staða þeirra í þjóðfélaginu er.“ Hlutverk nýja skólastjórans er fyrsta aðalhlutverkið sem grínarinn James Belushi hreppir. „Ég hef alltaf litið á mig fyrst og fremst sem leikara en ekki grinista," seg- ir Belushi sem er m.a. eftirminni- legur úr myndinni Salvador eftir Oliver Stone þar sem hann lék dópaðann drykkjusvola. Leikstjórinn Cain hefur hlotið lof fyrir tvær fyrri myndir sínar, „The Stone Boy" með Robert Duvall og Glenn Close og „Where the River Runs Black". Það voru tvær ástæður fyrir því að hann tók að sér gerð Skólastjórans. „Önnur var tækifærið til að vinna með Jim Belushi. Hann hefur hæfileika til að segja og gera hluti sem aörir leikarar gætu ekki gert og samt verið viðkunnanlegur. Hin ástæð- an er sú að mig langaði annað- hvort til að gera fullkomna gaman- mynd eða mynd sem léti sig varða um eitthvað." Og Skólastjórinn varð fyrir valinu. í I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.