Morgunblaðið - 12.04.1988, Side 3

Morgunblaðið - 12.04.1988, Side 3
JttgrgmiftlfiMft /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 12. APRÍL 1988 B 3 KNATTSPYRNA Gunnar Gíslason Bjami bestur, en Gunnar fékk gullið Gunnar Gíslason og félagar hans hjá Moss lögðu Brann að velli, 1:0, í úrslitaleik Nissan Cup, sem fór fram í Bergen á sunnudaginn. Þetta FráJóni var keppni bestu fé- Óttari Karlssyni lagsliða Noregs. i Noregi Leikmenn Moss léku mjög góðan sóknar- leik, sem þeir eru þekktir fyrir og þá var vörn þeirra sterk, en vamar- leikur liðsins hefur verið veikur hlekkur. Gunnar Gíslason lék á miðjunni og átti þokkalegan leik. Bjami Sigurðsson átti stórleik í marki Brann og varði hvað eftir annað snilldarlega. Hann var besti maður vallarins og bjargaði Brann frá stórtapi. Leikmenn Brann héldu í æfingabúð- ir til V-Þýskalands - strax eftir leikinn gegn Moss. Skagamenn skoruðu nítján íGarði Haraldur Hinriksson og Guð- bjöm Tryggvason skoruðu fyrir Skagamenn þegar þeir unnu Víði í Garði, 2:1, í Litlu-bikarkeppn- inni í Garði á laugardaginn. Guð- bjöm skoraði mark sitt úr þröngri stöðu fyrir utan vítateig - knöttur- inn hafnaði efst upp í markhominu. Guðjón Guðmundsson skoraði mark Víðis úr vítaspymu á síðustu mín. leiksins. Skagamenn unnu stórsigur, 17:0, í keppni b-liða. Elís Aðalsteinsson skoraði sex mörk og Gunnar Jóns- son fjögur. Þess má geta til gam- ans að Aðalsteinn, bróðir Elís, skor- aði fimm mörk á dögunum, þegar Skagamenn lögðu Stjömuna frá Garðabæ, 10:2, í æfingaleik. FH og Keflavík gerðu jafntefli, 1:1, á Kaplakrikavellinum á sunnudag- inn. Hörður Magnússon skoraði fyrst fyrir FH, en Óli Þór Magnús- son, sem kom inn á sem varamað- ur, jafnaði fyrir Keflavík rétt fyrir leikslok. Ragnar Margeirsson lék með Keflavíkurliðinu. Breiðablik og Stjaman gerðu jafn- tefli, 2:2. Þorsteinn Hilmarsson og Grétar Steindórsson skomðu mörk Breiðabliks, en Jón Amason og Ámi Sveinsson skoruðu fyrir Stjömuna. HANDKNATTLEIKUR Pállígóðum félagsskap á sjúkrahúsinu Páll Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, liggur nú á sjúkrahúsi í Dusseldorf vegna meiðsla þeirra sem hann hlaut á æfingu hjá Tum Diisseldorf síðastliðið miðvikudagskvöld, og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardaginn. Páll var mun hress- ari í gær en fyrir helgi, og þess má geta að hann skaust út á sunnudaginn og fylgdist með „sínum mönnum“ sigra Dortmund í úrvalsdeildarkeppninni. Annars tekur hann það rólega, horfir á sjónvarpið og kíkir í blöðin á einkastofu sinni. Á annarri með- fylgjandi mynda gluggar hann einmitt í Morgunblaðið frá því Morgunblaöið/Horstmuller síðastliðinn fimmtudag og á hinni er eiginkonan, Ingibjörg Snorra- dóttir, í heimsókn. Myndimar vom teknar í gær. Eins og fram kom hjá okkur á laugardaginn meidd- ist Páll í upphitun fyrir æfingu, hljóp á vegg með þeim afleiðing- um að liðhlaup varð í liðamótum axlar og viðbeins vinstri axlar. Liðpoki rifnaði og tvö liðbönd slitnuðu. Læknar telja að hann geti byijað að æfa eftir sex vikur í fyrsta lagi — jafnvel ekki fyrr en eftir 3 mánuði, allt eftir því hvemig sárið grær eftir aðgerð- ina. Eins og er ekkert annað að gera en að bíða og vona það besta. STEYPUSTOÐ AFGREIOSLA SUÐURHRAUNI 2 210 GARÐABÆ SIMAR 6 5144SOG 6 51444 um FRAMLEIOUM STEVPU SEM ENDIST m Ard Abvrco P&Ó/SlA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.