Morgunblaðið - 12.04.1988, Qupperneq 3
JttgrgmiftlfiMft /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 12. APRÍL 1988
B 3
KNATTSPYRNA
Gunnar Gíslason
Bjami
bestur, en
Gunnar
fékk
gullið
Gunnar Gíslason og félagar
hans hjá Moss lögðu Brann
að velli, 1:0, í úrslitaleik Nissan
Cup, sem fór fram í Bergen á
sunnudaginn. Þetta
FráJóni var keppni bestu fé-
Óttari Karlssyni lagsliða Noregs.
i Noregi Leikmenn Moss léku
mjög góðan sóknar-
leik, sem þeir eru þekktir fyrir og
þá var vörn þeirra sterk, en vamar-
leikur liðsins hefur verið veikur
hlekkur. Gunnar Gíslason lék á
miðjunni og átti þokkalegan leik.
Bjami Sigurðsson átti stórleik í
marki Brann og varði hvað eftir
annað snilldarlega. Hann var besti
maður vallarins og bjargaði Brann
frá stórtapi.
Leikmenn Brann héldu í æfingabúð-
ir til V-Þýskalands - strax eftir
leikinn gegn Moss.
Skagamenn
skoruðu
nítján
íGarði
Haraldur Hinriksson og Guð-
bjöm Tryggvason skoruðu
fyrir Skagamenn þegar þeir unnu
Víði í Garði, 2:1, í Litlu-bikarkeppn-
inni í Garði á laugardaginn. Guð-
bjöm skoraði mark sitt úr þröngri
stöðu fyrir utan vítateig - knöttur-
inn hafnaði efst upp í markhominu.
Guðjón Guðmundsson skoraði mark
Víðis úr vítaspymu á síðustu mín.
leiksins.
Skagamenn unnu stórsigur, 17:0, í
keppni b-liða. Elís Aðalsteinsson
skoraði sex mörk og Gunnar Jóns-
son fjögur. Þess má geta til gam-
ans að Aðalsteinn, bróðir Elís, skor-
aði fimm mörk á dögunum, þegar
Skagamenn lögðu Stjömuna frá
Garðabæ, 10:2, í æfingaleik.
FH og Keflavík gerðu jafntefli, 1:1,
á Kaplakrikavellinum á sunnudag-
inn. Hörður Magnússon skoraði
fyrst fyrir FH, en Óli Þór Magnús-
son, sem kom inn á sem varamað-
ur, jafnaði fyrir Keflavík rétt fyrir
leikslok. Ragnar Margeirsson lék
með Keflavíkurliðinu.
Breiðablik og Stjaman gerðu jafn-
tefli, 2:2. Þorsteinn Hilmarsson og
Grétar Steindórsson skomðu mörk
Breiðabliks, en Jón Amason og
Ámi Sveinsson skoruðu fyrir
Stjömuna.
HANDKNATTLEIKUR
Pállígóðum
félagsskap á
sjúkrahúsinu
Páll Ólafsson, landsliðsmaður
í handknattleik, liggur nú á
sjúkrahúsi í Dusseldorf vegna
meiðsla þeirra sem hann hlaut á
æfingu hjá Tum Diisseldorf
síðastliðið miðvikudagskvöld, og
greint var frá í Morgunblaðinu á
laugardaginn. Páll var mun hress-
ari í gær en fyrir helgi, og þess
má geta að hann skaust út á
sunnudaginn og fylgdist með
„sínum mönnum“ sigra Dortmund
í úrvalsdeildarkeppninni. Annars
tekur hann það rólega, horfir á
sjónvarpið og kíkir í blöðin á
einkastofu sinni. Á annarri með-
fylgjandi mynda gluggar hann
einmitt í Morgunblaðið frá því
Morgunblaöið/Horstmuller
síðastliðinn fimmtudag og á hinni
er eiginkonan, Ingibjörg Snorra-
dóttir, í heimsókn. Myndimar vom
teknar í gær. Eins og fram kom
hjá okkur á laugardaginn meidd-
ist Páll í upphitun fyrir æfingu,
hljóp á vegg með þeim afleiðing-
um að liðhlaup varð í liðamótum
axlar og viðbeins vinstri axlar.
Liðpoki rifnaði og tvö liðbönd
slitnuðu. Læknar telja að hann
geti byijað að æfa eftir sex vikur
í fyrsta lagi — jafnvel ekki fyrr
en eftir 3 mánuði, allt eftir því
hvemig sárið grær eftir aðgerð-
ina. Eins og er ekkert annað að
gera en að bíða og vona það besta.
STEYPUSTOÐ AFGREIOSLA SUÐURHRAUNI 2 210 GARÐABÆ
SIMAR 6 5144SOG 6 51444
um
FRAMLEIOUM
STEVPU SEM
ENDIST
m Ard Abvrco
P&Ó/SlA