Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
Tilboðið frá Seattle í skákeinvígið:
Líklegt að verð-
launaféð hækki
JÓHANNES Sigurðsson lögfrœð-
ingur hefur samið drög að frum-
varpi til laga um einokun og
hringamyndun að tilstuðlan Vil-
hjálms Egilssonar, framkvæmda-
stjóra Verslunarráðs, og fleiri
mnnnft úr viðskiptalífinu. Vil-
hjálmur Egilsson kynnti frum-
varpsdrögin á ráðstefnu um
hringamyndun og samkeppnis-
hömlur, sem Landsmálafélagið
Norðurlönd:
Vörður hélt i gær. Ekki hefur
verið ákveðið hvort frumvarp,
byggt á þessum drögum, verði
lagt fram á Alþingi.
„Tilgangurinn með þessum frum-
varpsdrögum er fyrst og fremst sá,
að sýna fram á hvað er í raun verið
að ræða um, þegar menn segja til
dæmis að ef hér giltu svipuð lög og
erlendis, myndi SÍS leysast upp,“
sagði Jóhannes Sigurðsson í samtali
við Morgunblaðið. „Ef svona lögyrðu
sett myndi að minnsta kosti verða
að taka starfsemi Sambandsins til
nákvæmrar skoðunar, og þar kæmu
jafnvel fleiri fyrirtæki til greina."
Frumvarpsdrögin gera meðal ann-
ars ráð fyrir því að hafí fyrirtækja-
samstæða eða hringur fyrirtækja
öðlast vaid eða aðstöðu til þess að
koma í veg fyrir eðlilega samkeppni,
skuli skipta samstæðunni upp f sjálf-
stæðar einingar. Einnig eru þar
ákvæði um að einokunarfyrirtækjum
skuli óheimilt að hafa með höndum
aðra atvinnustarfsemi en þá sem
nauðsynleg er til þess að starfa á
því sviði, sem það hefur sérstaka
heimild til að starfa á.
Vilhjálmur Egilsson sagði f kynn-
ingu sinni á frumvarpsdrögunum aö
frumvarpið væri fremur sett fram
sem umræðugrundvöllur en fullmót-
aðar tillögur, tilgangurinn væri eink-
um sá að menn áttuðu sig á því
hvaða áhrif það hefði að samþykkja
löggjöf á borð við þá, sem tfðkaðist
f mörgum öðrum löndum. „Eitt, sem
menn hafa kannski haft í huga, er
að slfkri löggjöf væri fyrst og fremst
stefnt gegn einu ákveðnu fyrirtæki,
það er Sambandi fslenskra samvinnu-
félaga," sagði Vilhjálmur. „Málið er
einfaldlega það, að það er útilokað
að setja almennar reglur um einokun
og hringamyndun, sem slá hring utan
um SÍS en hafa ekki nein áhrif ann-
ars staðar." Vilhjálmur sagði að slfk
löggjöf myndi hafa afar víðtæk áhrif
f efnahagslífínu og að öll stærri fyrir-
tæki hlytu að koma til skoðunar,
yrði hún samþykkt, til dæmis Flug-
leiðir, Eimskip, Fijálst framtak, Is-
lenskir aðalverktakar, Landsbankinn
og fleiri.
FRIÐRIK Ólafsson skrifstofu-
stjóri Alþingis tjáði Florencio
Campomanes forseta FIDE i gær-
kvöldi að Jóhann Hjartarson væri
ekki sáttur við tilboð frá Seattle
um að halda einvígi þeirra Ana-
tolys Karpovs, bæði varðandi
breytingu á einvígistímanum og
upphæð verðlaunafjár. Talið er
líkiegt að verðlaunaféð verði
hækkað til jafns við tilboð Akur-
eyringa en Campomanes taldi örð-
ugt að koma því við að tefla ein-
vígið á þessu ári vegna Sovéska
meistaramótsins í skák sem haldið
verður f ágúst. Campomanes verð-
ur í borginni Metz f Frakklandi á
sunnudag til að kanna betur hug-
myndir þar um að halda einvfgi
Jóhanns og Karpovs.
Tilboðið frá Seattle hljóðaði upp á
80 þúsund svissneska franka í verð-
launafé, en tilboð Akureyringa upp
á 80 þúsund bandaríkjadali. Tilboðið
kom frá Bob Walsh Associates of
Seattle, en það fyrirtæki skipuleggur
svokallaða Vináttuleika, The Good-
will Games, sem eru íþróttahátíð,
haldin flórða hvert ár á móti
Óljrmpíuleikunum. Fyrstu leikamir
voru haldnir í Moskvu 1986 en næstu
leika- á að halda í Seattle og tilboðið
f skákeinvígið er liður í kynningar-
herferð fyrir borgina.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Limkok Ann, aðalritari FIDE,
miðað við að verðlaunaféð væri 80
þúsund dalir, en það hefði síðan
hljóðað upp á 80 þúsund svissneska
franka. Campomanes væri nú að
kanna hvort þetta hefðu verið mistök
eða hvort ekki yrði boðið betur.
Florencio Campomanes, forseti
FIDE, var í gær staddur í Dubai í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um, en þar hefur staðið yfír fram-
kvæmdanefndarfundur FIDE. • Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að enn stæðu yfir samningavið-
ræður um tilboðið en vildi ekki skýra
það nánar. Campomanes vildi ekki
svara neinum frekari spumingum um
tilboðið en sagði að um leið ög eitt-
hvað fengist handfast myndi FIDE
gefa út fréttatilkynningu.
Flugmaðurinn, sem fórst þegar
flugvél hans steyptist f sjóinn
skammt undan Reykjavfkurflug-
velli á þriðjudagskvöld, hét Steven
Wayne Lynch.
Steven var á 38. aldursári, fæddur
12. nóvember árið 1950 f Indiana f
Eyðnitilfellum
fækkaði 1
ÞRÁTT fyrir mikla fjölgun eyðni-
tilfella, hefur tvöföldunartfmi
sjúkdómsins lengst, samkvæmt
upplýsingum iandlæknisembættis-
ins um eyðni. Fram kemur að f
byrjun hafi liðið um 6-8 mánuðir
þar til fjöldi sjúkdómstilfella hafi
náð að tvöfaldast en nú sé tfminn
um 14 mánuðir. Bestur sé árang-
urinn á Norðurlöndum þar sem
færri ný tilfelli voru skráð sfðustu
3 mánuði ársins 1987 en áður.
Guðjón Magnússon aðstoðarland-
Iæknir vildi ekki gera of mikið
úr þessum tölum. Hann sagði
eyðni breiðast nyög hratt út, sérs-
taklega f Bandaríkjunum og
Afrfku, og taldi tölumar ekki
fyllilega marktækar vegna fjölda
óskráðra tilfella.
lok arsms
Fjöldi skráðra tilfella á lokastigi í
Bandaríkjunum var 949 manns að
meðaltali á mánuði árið 1985, 1.455
á mánuði 1986 og 1.702 árið 1987.
í Evrópu voru tilfellin 116 að meðal-
tali á mánuði árið 1985, 221 árið
1986 og 434 árið 1987. í Afríku
fjölgaði þeim örast, voru 17 á mán-
uði 1985, 204 árið 1986 og 586 árið
1987.
í upplýsingunum segir að miðað
við fbúafjölda séu skráð 9 sinnum
fleiri eyðnitilfelli á mánuði í Banda-
ríkjunum og 2 sinnum fleiri á Vest-
urlöndum en á Norðurlöndum. Þess-
ar niðurstöður veki vonir um að
draga megi úr útbreiðslu eyðni með
kerfisbundinni fræðslu og einnig þar
sem almenn menntun sé góð.
Morgunblaöið/Þorkell
Þorgils Ottar ogKolbrún best
ÞORGILS Óttar Mathiesen, línumaðurinn snjalli úr FH, var kjörinn handknattleiksmaður ársins
af félagi 1. deildarleikmanna f lokahófi handknattleiksmanna í veitingahúsinu Broadway f gær-
kvöldi. Kolbrún Jóhannsdóttir, markvörður íslandsmeistara Fram, var kjörin handknattleikskona
ársins. Kolbrún hlaut einnig þessa nafnbót á síðasta keppnistímabili. Hér fagna þau eftir að hafa
tekið við viðurkenningunum sem fylgja kjöri þessu.
22 milljóna króna
hagnadur hjá RUV
Rekstrarafgangur af sameigin-
legum rekstri hljóðvarps og sjón-
varps Rfkisútvarpsins varð tæpar
22 miiyónir króna fyrstu þijá
mánuði þessa árs, samkvæmt upp-
lýsingum Markúsar Arnar Antons-
sonar, útvarpsstjóra, en þessar
niðurstöður voru kynntar á fundi
Útvarpsráðs f gær. Rekstraraf-
gangur hjá hljóðvarpinu varð 5,2
miiyónir, en hjá sjónvarpinu 16,5
milljónir.
„Þetta eru veruleg umskipti í
rekstrinum og ánægjuleg batamerki.
Þetta sýnir að sú hagræðing og sá
spamaður, sem beitt hefur verið hjá
ýmsum deildum Ríkisútvarpsins, er
að skila árangri. Hins vegar ber að
taka þessari niðurstöðu með varúð
og tryggja að framhaldið verði eftir
þessu og ég hef fulla trú á þvf að
það takist," sagði Markús Öm í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann sagði að forráðamenn deilda
RÚV hefðu undantekningalítið tekið
á þessum málum af mikilli ábyrgð
og skyldurækni, þó mönnum fyndist
miður að geta ekki ráðist í öll þau
áhugaverðu dagskrárgerðarverkefni,
sem fyrir hendi væru.
„Það hefur orðið umtalsverð við-
reisn f auglýsingatekjum á fyrstu
mánuðum ársins, en því miður höfum
við enn ekki fengið hækkun á afnota-
gjöldunum, eins og tilgreint er í fjár-
lögum. Það hefur gert það að verkum
að við höfum ekki alveg náð þeirri
bættu greiðslustöðu sem við höfðum
vonast til á fyrsta ársfjórðungi. Það
stefnir hins vegar í rétta átt, en ger-
ir það örlítið hægar, en við vonuð-
umst til. Það verður að halda þessu
striki og ná þeim markmiðum sem
sett voru í fjárlögum og hafa endur-
speglast í öllum áætlunum fyrir ein-
stakar deildir, að það verði hallalaus
rekstur á árinu þegar upp er stað-
ið,“ sagði Markús Om ennffemur.
að í undirbúningsviðræðum við tuii-
trúa samtakanna hefði Campomanes
Banaaniqunum. iiann var ousettur
f Flórída.
Frumvarpsdrög um einok-
un og hringamyndun saxnin
VEÐRIÐ FYMR NORÐAN OG AUSTAN
Flj ótsdalshérað:
Starfsfólk sjúkrahúss-
ins til vinnu á snjóbíl
EgilwtSðum.
VERSTA veður var á Fljótsdals-
héraði eins og annars staðar á
Norðausturlandi f gær og hefur
snjóað mikið. Nú er hér mesti
snjór sem komið hefur á vetrin-
um. Vegir á Fljótsdalshéraði eru
ófærir og þungfært fyrir jeppa
innanbæjar. Ekkert hefur verið
hægt að eiga við snjómokstur,
nema að Vegagerðin hefur hald-
ið opnu á milli Egilsstaða og
Fellabæjar. Allt flug um Egils-
staðaflugvöll hefur legið niðri
sfðan á þriðjudag, nema tvær
vélar komust austur á fimmtu-
dagsmorgun. Ekki hefur frést
af neinum óhöppum hér af völd-
um veðursins, en þurft hefur að
Siglufjörður:
Snjóflóð tók
með sér
skíðalyftur
Siglufirði.
SNJÓFLÓÐ féll á tvær skíðaiyft-
ur skfðafélagsins á Siglufirði,
sennilega einhvern tfma f fyrri-
nótt, en ekki var vitað um flóðið
fyrr en seinnipartinn í gær. Lyft-
urnar eru mjög mikið skemmdar
og talið ólfklegt að skfðalyftur
verði settar upp á þessum stað
aftur vegna snjóflóðahættu.
Snjóflóðið var nokkuð stórt og
tók með sér bæði neðri og efri lyft-
una. Það var um 300 metra breitt
og féll niður á láglendið. Snjóflóð
hefur áður tekið efri lyftuna með
sér. Það var árið 1983.
mj.
aflýsa mörgum fundum og mann-
fögnuðum vfða um fjórðunginn
vegna þess.
Það hefur ekki verið neinn vor-
boði í veðurguðunum á Héraði und-
anfama daga. Hér hefur snjóað
feikimikið og nú er hér langmesti
snjór vetrarins. í Mjóáfírði er nú
meiri snjór en snjóaveturinn 1975,
en það er annálaður snjóavetur hér
austanlands. Á Egilsstöðum og í
Fellabæ átti fólk í mestu erfíðleik-
um með að komast til vinnu sinnar
á fostudagsmorgun. Einar Rafn
Haraldsson spítalahaldari greip því
til þess ráðs, að flytja starfsfólk
sitt til og frá vinnu með snjóbfl um
morguninn. ófærð var þá mikil inn-
anbæjar og ekkert hægt að eiga
við mokstur sökum blindhríðar og
skafrennings. Vegagerðin átti ekk-
ert við mokstur á föstudag, enda
algjörlega tilgangslaust. Á fímmtu-
dag urðu Vegagerðarmenn frá að
hverfa við snjómokstur á Fjarðar-
heiði til SeyðisQarðar eftir tíu tíma
baráttu við að komast u.þ.b. 15
kílómetra. Snjór var þá mjög
blautur og festist í blásaranum.
Seyðfírðingar fá þá ekki mjólk og
aðrar nauðsynjar fyrr en á mánu-
dag, en þá er liðin vika síðan mjólk
var síða8t send niðureftir. Raf-
magnsdreifíng hefur gengið vel hér
þrátt fyrir veðurofsann. Þó urðu
nokkrar rafmagnstruflanir á mið-
vikudag af völdum samsláttar á
línum vegna bleytuhríðar.
Flug til Egilsstaða hefur gengið
illa að undanfömu. Á miðvikudag
lá allt flug niðri vegna veðurs, á
fímmtudag komust tvær vélar aust-
ur fyrri hluta dags, en þá lokaðist
völlurinn vegna aurbleytu. Á föstu-
dag lá síðan allt flug niðri og er
búist við að mikið verk verði að
moka völlinn.
Björn
Léstaf
slysförum