Morgunblaðið - 16.04.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
3
K
X'
)
□
REYKJAVÍK
Morgunblaðið/ GÓI
Borgarráð:
Hugmynd kynnt að smá-
bátahöfn við Laugarnes
Áætlaður kostnaður um 400 milljónir
Borgarskipulag Reykjavíkur
hefur lagt fram til kynningar í
borgarráði hugmynd hafnar-
stjórnar um að gerð verði smá-
bátahöfn inni við Laugarnes fyr-
ir um 900 báta. Kostnaður er
áætlaður um 400 milljónir króna.
Að sögn Hannesar Valdimarsson-
ar, aðstoðarhafnarstjóra, er
þetta ein hugmynd af mörgum
að nýrri smábátahöfn. Talið er
að um 400 til 500 bátar séu í
Reykjavík og er hvert pláss skip-
að í smábátahöfn Snarfara inni
við Elliðavog. ‘
„Þetta er ein af mörgum hug-
myndum sem komið hafa fram í
leit okkar að heppilegum stað fyrir
smábátahöfn fyrir strönd
Reykjavíkur," sagði Hannes.
„Þama er gert ráð fyrir höfn sem
rúmar 900 smærri báta af öllum
gerðum og landi undir félagsheim-
ili, viðgerðaraðstöðu, veitingastað,
bifreiðastæði og útivistarsvæði.
Smábátum fer ört fjölgandi í
Reykjavík og er aðstaða Snarfara
við Elliðavog, þar sem rúmast 160
smábátar á floti, þegar fullskipuð.
í vesturhöfninni er þegar fyrir rými
fyrir um 100 báta.“
Gert er ráð fyrir miklum skjól-
garði framan við höfnina í Laugar-
nesi sem annars yrði opin fyrir vest-
anátt. Hannes sagði að engin end-
anleg ákvörðun hefði enn verið tek-
in um hvar, hvenær eða hvemig
smábátahöfn yrði byggð í
Reykjavík. Ein hugmyndin er að
koma upp aukinni aðstöðu fyrir
STJÓRN Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum i gær að gera kröfu
um að lægstu laun 18 ára og
eldri yrðu 42 þúsund krónur í
þeim samningaviðræðum sem
framundan eru, en félagið hef-
ur ásamt öðrum verslunar-
mannafélögum boðað verkfall
frá og með næstkomandi föstu-
degi, 22. apríl.
Boðað hefur verið til fundar
með þeim félögum verslunar-
manna sem ósamið er við og við-
semjendum þeirra á mánudaginn
smábáta í gömlu höfninni og aðrar
hugmyndir gera ráð fyrir smærri
höfnum með ströndinni. Hann benti
þó á að kosturinn við að gera eina
stóra höfn í stað tveggja eða þriggjá
minni, væri sá, að nýta mætti betur
sameiginleg aðstöðu, sem þyrfti að
vera fyrir hendi.
kemur hjá ríkissáttasemjara
klukkan 13.30.
í samþykkt stjómarinnar segir
að starfsaldurshækkanir verði með
sama hlutfalli og í miðlunartillögu
ríkissáttasemjara. Að öðru leyti
er vísað til þeirra krafa sem kynnt-
ar vom ríkissáttasemjara í byrjun
þessa mánaðar.
Formannafundur Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna
verður haldinn á morgun, sunnu-
dag. Þar ræðst hvernig staðið
verður að samningaviðræðunum
af hálfu LÍV og aðildarfélaga þess.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur:
Lágmarkslaun verði
42 þúsund krónur
Snjóflóðahætta ennþá
fyrir hendi á Seyðisfirði
Almannavarnanefndin lokaði skólum og dagheimilum í gær
Seyðisfirði.
EFTIR að snjóflóð féU hér á Seyð-
isfirði í fyrrakvöld var vinna i
mörgum fyrirtækjum stöðvuð í
gær. Einnig ákvað Almannavama-
nefnd að loka skólum og dag-
heimilum. Fólk var beðið að vera
sem minnst á ferli og vegum báð-
um megin fjarðarins var lokað.
Vakt var hjá Almannavarnanefnd
Seyðisfjarðar í fyrrinótt og
snjóbQl og björgunarsveitin höfð
í viðbragðsstöðu. Dregið hefur úr
sqjóflóðahættunni, en á fundi Al-
mannavarnanefndar seinnipart-
inn í gær var ekki talin ástæða tíl
að draga úr viðbúnaði og ráðgert
að hafa áfram andvara á sér í nótt.
Það mun hafa verið um ellefuleyt-
ið í fyrrakvöld sem snjóflóð féll hér
á Seyðisfirði. Tveir starfsmenn
Sfldarverksmiðja ríkisins, þeir Jón
og Hermann Guðmundssynir, fóru í
bíl frá Sfldarverksmiðjunni og inn í
bæ rétt fyrir klukkan 11. Þegar þeir
héldu til baka 12-15 mínútum síðar
að því er þeir telja hafði snjóflóð
runnið niður úr fjallshlíðinni sunnan
megin í firðinum á milli Fiskvinnsl-
unnar hf. og Sfldarverksmiðja ríkis-
ins á 80-100 metra breiðu svæði.
Rétt fyrir innan þar sem snjóflóðið
féll eru íbúðarhús beint á móti Fisk-
vinnslunni.
Þar sem mestur þungi snjóflóðsins
virðist hafa fallið stóð áður olíu-
tankur, sem olíufélagið Skeljungur
átti, en hann var færður eftir að
snjóflóð féll norðan megin í fírðinum
fyrir tveimur árum fyrir ofan loðnu-
bræðslu ísbjamarins og á olíutank
sem olíufélagið OLÍS átti. Leiðslur
fóru f sundur og talsvert af olíu fór
í sjóinn. Þá ákvað Almannavama-
nefiid eftir úttekt frá Siglingamála-
stofnun ríkisins að láta færa báða
þessa tanka. Víst má telja að olíut-
ankur Skeljungs hefði orðið fyrir
flóðinu, hefði hann ekki verið færður.
Strax og lögreglunni var tilkynnt
um snjóflóðið var Almannavama-
nefnd kölluð á fund þar sem ákveðið
var að loka veginum báðum megin
fjarðarins og hætta vinnslu hjá
Sfldarverksmiðjum ríkisins. Fólkið
sem var á vakt var sent heim. Fyrir
utan Sfldarverksmiðrjumar eru stað-
sett nokkur fyrirtæki, Norðursíld,
Strandasfld, Strandalax og söltunar-
hús Fiskvinnslunnar. Haft var sam-
band við forsvarmenn þessara fyrir-
tækja og þeim greint frá því hættu-
ástandi sem ríkti. Einnig var haft
samband við íbúa þriggja húsa, svo-
kallaðra Fjarðarhúsa, þeim greint frá
snjóflóðahættunni og þeir beðnir að
yfirgefa húsin. Fyrr um kvöldin
höfðu íbúar í húsi, sem er norðan
megin í firðinum á snjóflóðasvæði,
yfirgefíð hús sitt í samráði við Sig-
urð Helgason, bæjarfógeta og for-
mann Almannavamanefndar. Fyrir-
tækin sem eru norðan megin í firðin-
um eru Hafsíld, áður ísbjöminn, og
Reyksíld hf. Almannavamanefnd
hafði einnig samband við forsvarsm-
nenn þeirra og fór þess á leit að
fyrirtækjunum yrði lokað.
Ekki hefur verið talið hættandi á
að fara upp í fjallið til að kanna
snjódýpt. Björgunarsveitin fór sjó-
leiðina í gær út með firðinum, en
lítið sást til fjalla vegna slæms
skyggnis. Gefa þarf löxum í kvíum
Strandalax hf. dagléga og var farið
sjóleiðis til þess þar sem ekki þótti
þorandi að fara landleiðina.
Veðrið skánaði seinnipartinn í
gær, en versnaði aftur í gærkveldi.
Mikill snjór er í fjöllum. í vetur hef-
ur Björgunarsveitin framkvæmt
reglulegar snjómælingar í fjöllunum
fyrir Almannavamanefnd og er þetta
fyrsti veturinn sem það er gert reglu-
lega. í sumar er ráðgert að setja
niður stikur á ákveðnum stöðum í
fjallinu, þannig að stöðugt sé hægt
að fylgjast með snjódýptinni.
Garðar Rúnar
N eskaupstaður:
Fólk hafði andvara á
sér vegna snjóf lóða
Neskaupstað.
Á fimmtudagskvöld gekk hér (
mikið norðaustan hríðarveður og
setti niður talsverðan snjó. Menn
höfðu andvara á sér alla nóttina
vegna siýóflóðahættu og fylgdust
með og klukkan tlu i gærmorgun
var Almannavamanefnd Nes-
kaupstaðar kölluð saman til fund-
ar. Þar var ákveðið að senda menn
i fjalUð ofan við bæinn til að kanna
hvort skapast hefði snjóflóða-
hætta. Það var mat manna að svo
væri ekki.
Að sögn þeirra sem í fjallið fóru
er mikið meiri snór niðri í bæ heldur
en í fjallinu og virtist þeim að hvass-
viðrið hefði rifið snjóinn þaðan og
kæft hann niður á láglendið. Nefndin
mun áfram fylgjast með ástandinu
og í gærkvöldi var gert ráð fyrir að
menn færu aftur í fjallið að mæla
snjóalög.
Talsverð ófærð er í bænum, en
þó eru allar aðalgötur opnar. Veðrið
hefur nú að mestu gengið niður, en
þó er tölverð ofankoma af og til.
Ágúst
Versta veður vetr-
arins á Húsavík
Húsavík.
STÓRHRÍÐ brast á hér á miðviku-
dag og hélst svipað veður í gær,
þó heldur batnandi. í dag er hér
norðanátt og gengur á með éljum.
Flugleiðir urðu að fella niður flug
til Húsavíkur á miðvikudag og
fimmtudag, en í dag hafa verið fam-
ar þijár flugferðir og sú fjórða er
áformuð í kvöld. Með fyrstu vélinni
voru farþegar til.og frá Húsavík, en
tvær hinar síðari fluttu farþega til
Akureyrar, en flugvöllurinn þar var
lokaður vegna snjókomu. Farþegam-
ir voru fluttir með rútum til og frá
Akureyri og gengu þeir flutningar
vel, þó mikill renningur væri á Víkur-
skarði, en Vegagerðin opnaði leiðina
í morgun og hefur haldið henni op-
inni í dag.
Á milli flugvallanna á Húsavík og
Akureyri er aðeins um klukkustund-
ar akstur við venjulegar aðstæður
en eitthvað tóku ferðimar í gær
lengri tíma, þó ekki mikið. Sett hefur
niður nokkuð mikinn snjó síðustu
dagana og þetta mun vera versta
veðrið á vetrinum, þó komið sé fram
á sumarmál. Spáð er áframhaldandi
norðanátt og éljagangi.
Fréttaritari
i