Morgunblaðið - 16.04.1988, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
KJÚKLINGAR
Eru
Holtakj úklingar
bestir?
Við höfum verið að
velta því fyrir okkur
vegnaþess að við
seljum fleiri þúsundir
í hveijum mánuði.
Grillaðir á aðeins
3 stk. í pakka
5 stk. í pakka
Laugalæk2, s. 686511
Garðabæ,s. 656400
Skrautnál.
Sáning- sumar-
blóma og matjiuia
Nú er daginn tekið að lengja
svo mjög að margir eru famir að
bíða vorsins og sumarsins með
óþreyju. Enn er ekki of seint að
sá kálplöntum og ýmsum sumar-
blómum ef strax er gengið til
verka. Sérstök ánægja fylgir því
að rækta sínar eigin plöntur frá
grunni, fylgjast með þroska þeirra
frá örlitlu frækomi til gróskumik-
illar, fullþroska plöntu. Sáðmold
og ræktarmold þurfa að vera
lausar við sníkjudýr og sjúk-
dómsvalda. Sú mold sem er í versl-
unum á að vera ömgg, en sé not-
uð heimafengin moldarblanda er
best að sótthreinsa hana með því
að hita í 100°C í 12—15 mín. t.d.
í bökunarofni eða rúmum potti.
Sáðmold er léttari og áburðars-
nauðari en venjuleg ræktunar-
mold og uppskriftir að ýmsum
moldarblöndum eru í Skrúðgarða-
bókinni sem GÍ gaf út.
1. Öll ílát þurfa að vera vel hrein
og með götum á botni. Al-
gengt er að sá í litla bakka
eða gataðar jógúrtdollur.
2. ílátin eru fyllt með sáðmold-
inni og henni þjappað létt
saman þannig að um 1 sm
borð sé á, og þess gætt að
moldin sé rök.
3. Best er að sá hverri tegund
í eigið ílát. Reynt er að dreifa
sem jafnast og hafa 2—3 mm
milli fræja. Sé sáð í raðir eru
ca. 5 cm hafðir milli raða.
4. Að sáningu lokinni er stór-
gert fræ hulið með 1—2 sinn-
um þykkt sinni af mold en
fíngerðu fræi aðeins þjappað
saman. Gott er að strá örlitl-
um sandi yfir.
5. Þá er vökvað vel og ílátið
merkt vandlega.
6. Til að raki haldist jafn er
gott að leggja plastfílmu yfir
flátið og fýlgjast þarf vel með
raka meðan á spírun og upp-
eldi stendur.
7. Æskilegur spírunarhiti er um
20°C en þegar plöntumar
fara að koma upp þarf að
færa þær á svalari stað um
10°— 15°C þar sem birtu nýt-
ur vel, en sól má ekki skína
beint á ungplöntumar.
8. Fyrstu tvö blöðin sem koma
upp nefnast kímblöð. Þegar
myndast hafa að auk 1—2
blöð þarf að dreifplanta.
9. Moldin sem dreifplantað er í
má innihalda meiri áburð en
sáðmoldin. Dreifplantað er í
potta, bakka eða í útireit allt
eftir aðstæðum, flátin þurfa
að hafa göt á botni.
10. Fyrir dreifplöntun þarf að
vökva sáðplöntumar vel svo
mold loði við rætumar.
11. Sáðplöntumar eru losaðar
varlega hver frá annarri og
þess gætt að skemma ekki
rætur eða stöngul.
12. Plöntunum stungið í holur
sem mótaðar eru í ræktunar-
moldina með fíngri eða trép-
inna.
13. Moldinni þrýst að og vökvað
vel og síðan þegar hún fer
að þoma.
14. Hæfilegt vaxtarrými fyrir
ungplöntumar er 5x5 sm.
Og þá er bara að fylgjast vel
með ungviðinu, gæta þess að það
fái góða birtu og loft og vætu
eftir þörfum, en spara við það
hitann. Markmiðið er að ala upp
þéttvaxnar, heilbrigðar plöntur og
því þarf hiti að vera á bilinu 10—
15°C. Útplöntun sumarblóma og
kálplantna er ekki ömgg fyrr en
um miðjan júní vegna hættu á
næturfrostum. Áður en útplöntun
hefst þarf að vera búið að herða
ungplöntumar með því að láta
þær út litla stund í einu til að
byrja með og auka smám saman
við tímann. Vökva skal vel áður
en plöntumar era teknar úr ílát-
unum og varast að skaða rætum-
ar við útplöntunina. Gerið nægi-
lega stórar holur fyrir rætumar
og moldina sem fylgir, síðan er
moldinni þrýst vel að rótunum.
Hér era nú talin upp nokkur sum-
arblóm og matjurtir sem hægt er
að sá til núna: Skrautnál, morg-
unfrú, garðakornblóm, daggar-
brá, silfurkambur, regnboði,
sveipkragi, sumarlín, ilmskúf-
ur, hádegisblóm, sumarljómi,
paradísarblóm, skjaldflétta, og
höfuðsalati, íssalati og hreðkum
má sá í apríl til júní, hvítkáli, topp-
káli, blómkáli, spergilkáli, rósak-
áli, grænkáli, gulrófum o.fl. Gul-
rótum er sáð beint út í beð. Óskum
ykkur góðs gengis og mikillar
ánægju.
Gleðilegt sumar.
Sinfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Leifur Þórarinsson, Haustspil.
Richard Strauss, Don Quixote.
L. van Beethoven, Sinfónía nr. 7.
Einleikari: Mischa Maiskyu.
Stjómandi: Gilbert Levine.
Haustspil (1983), eftir Leif Þór-
arinsson, er fallegt verk þar sem
heyra má ofið úr mörgu skemmti-
legu tónefni og var auk þess vel
leikið af hljómsveitinni. Gilbert
Levin er auðheyrilega vandvirkur
svo sem vel mátti heyra í Don
Quixote eftir Strauss. Ekki var þó
að heyra að hann legði nokkra
sérstaka áherslu á það „kómiska"
í þessu glæsiverki, sem er fullt upp
með alls konar forskriftir um leik-
máta og túlkun. Mischa Maisky
er frábær cellisti og lék margt
feiknalega vel eins og t.d. V. til-
brigðið og niðurlag verksins.
Helga Þórarinsdóttir lék lágf-
iðlueinleikinn sem er veralegur,
t.d. í Sancho Panza-kaflanum, 2.
og 3. kaflanum og reyndar víða í
verkinu. Helga skilaði sínu með
piýði og svo gerðu aðrir í hljóm-
sveitinni, sem lögðu til smá stófur
eins og t.d. konsertmeistarinn
Guðný Guðmundsdóttir svo og
blásaramir. Þrátt fyrir að hljóm-
sveitarstjórinn legði ekki mikla
rækt við að draga fram andstæður
í túlkun þess leikræna í verkinu,
hafði hann full tök á samvirkni
hljómsveitarinnar er sýndi víða
ágætan og vel útfærðan leik.
Tónleikunum lauk með þeirri
sjöundu eftir Beethoven og þar
mátti heyra að minna hafði verið
unnið í því verki en þeim fýrri og
var leikurinn því víða eins „beint
af augurn" og hljómjafnvægi sveit-
arinnar ekki gott, eins og t.d. í
síðasta kafla verksins, þar sem
málmblásarar, einkum trompett-
amir, sem að mestu leika tóna er
gegna hrynrænu hlutverki og era
auk þess til hljómfyllingar, vora
allt of sterkir og hljómuðu í gegn
eins og einleikarar, svo dansstefin
í strengjunum heyrðust varla.
Þetta er aðgæsluleysi hljómsveit-
arstjórans og sama má segja um
grófar og of sterkar áherslur í
þessum sama kafla. Hafi það verið
markmiðið að gera síðasta þáttinn
að einhveiju æðisgengnu „Gacc-
hanale" tókst það svo að nærri
„keyrði um þverbak".
Ánnar þátturinn var of hratt
leikinn. Þessi ægifagri tónbálkur
þarf að búa yfir íhugandi rósemi,
eins og í ræðu, þar sem orðin era
hugsuð og vegin, um leið og sögð
eru, en ekki flutt eins og lesin af
blaði. Þrátt fyrir að allt væri vel
leikið, vantaði þann þátt lista-
mennskunnar, er gerir tónlist ann-
að og meira en tóna af mismun-
andi lengd og hæð, vel framfærða
af góðum tónlistarmönnum. Hún
er list þar sem óskilgreind fegurð-
in fær merkingu í tilfínningalegri
upplifun mannsins.
Til sölu
Hvammur í Skorradal
Stór og vandaður sumarbústaður með 6 svefnherb.
Húsið stendur á ca 14 hektara girtu og skógivöxnu
landi. Rafmagn og vatn.
Lysthafendur leggi nöfn og símanúmer inn á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 26. april merkt: Hvammur - 3716".