Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
15
Fé til útflutningsbóta uppurið:
Samdráttur í innanlands-
neyslu kindakjöts aðalorsök
- segir Guðmundur Sigþórsson
skrifstofustjórilandbúnaðarráðuneytis
MEGINORSÖK þess að það fé
er uppurið, sem áætlað var til
útfiutningsbóta á landbúnaðar-
afurðum á þessu ári, er sú að
innanlandsneysla á kindakjöti
árið 1987 var mun minni en áætl-
að var, m.a. vegna minni niður-
greiðslna, og þar af leiðandi var
mun meira kjöt flutt út. Einnig
var sauðfé fækkað meira en
áætlað var á síðasta ári og því
jukust birgðir sem grynnkað var
á með meiri útflutningi. Guð-
mundur Sigþórsson skrifstofu-
stjóri landbúnaðarráðuneytisins
segir að verulegur hluti útflutn-
ingsbótafjárveitingarinnar í ár
hafi farið tíl greiðslu á tímabund-
inni lántöku vegna þessa aukna
útflutnings.
í búvÖrusamningi ríkisins við
bændur er gert ráð fyrir að bændur
framleiði ákveðið magn afurða sem
þá er með fullri verðábyrgð. Varð-
andi sauðfjárafurðir er miðað við
að stærsti hlutinn' seljist á innan-
landsmarkaði, en það sem á vantar
til að uppfylla samninginn er flutt
út. Vegna lágs markaðsverðs er-
lendis þarf ríkið að greiða bændum
útflutningsbætur svo þeir fái sama
skilaverð og ef þeir hefðu selt kjöt-
ið innanlands.
Guðmundur Sigþórsson sagði að
á síðasta ári hefði markaðurinn
orðið minni en spáð var, m.a. vegna
tímabundinnar lækkunar á niður-
greiðslum til kindakjötsins sem
þýddi minni sölu innanlands. Því
hefði þurft að flytja meira magn
út en áætlað var. Þar að auki hefði
bústofn verið skorinn niður sem
aftur þýddi aukningu á kjöti sem
þurfti að selja og leiddi af sér meiri
útflutning til að koma í veg fyrir
byrgðasöfnun. Alls voru flutt út um
4000 tonn af kindakjöti árið 1987
en í ár er gert ráð fyrir 1800 tonna
útflumingi.
Guðmundur sagði að þetta hefði
haft þær afleiðingar að notað var
mun meira fjármagn til útflutnings-
bóta en áætlað var og verulegur
hluti fjárveitingarinnar til útflutn-
ingsbóta í ár hefði farið til upp-
greiðslu á tímabundinni lántöku
vegna aukinna útflutningsbóta
síðasta árs. En ekki hefði verið
hægt að ná því markmiði sem sett
var, að draga verulega út fram-
leiðslu sauðfjárafurða, öðruvísi en
það kjöt sem er í bústofninum kæmi
inn á markað. Verið væri að draga
úr birgðahaldi með útflutningi og
koma þessari framleiðslu í eðlilegt
horf fyrr en gert var ráð fyrir, og
það krefðist tímabundinnar fjár-
mögnunar, með beinum grelðslum
úr ríkissjóði eða lántökum.
Guðmundur sagði að samdráttur
í sauðfjárræktinni hefði orðið geysi-
legur undanfarið og 14000 tonna
árframleiðsla væri nú komin niður
í u.þ.b. 11000 tonn.
MasöluHadá hnvrjtun degi’.
Leikurinn er óbreyttur, en nú eru 10 raðir á sama miðanum til hagræðingar fyrir alla Lottóleikendur
Eftir sem áður er þér í sjálfsvald sett hve margar raðir þú notar hverju sinni.
/ Hærri vinningar!
/ Með leiðréttingu í samræmi viö
/ verðlagsþróun munu vinningar
/ hækka að meðaltali um 20% og er
/ það fyrsta verðbreyting frá því
Lottóið hóf göngu sína í nóvember
1986.
Hver leikröð kostar nú 30 krónur!
Nældu þér í nýjan miða á næsta sölustað!