Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 17
■?SÖX JÍJHA .31 JIUOAdflADUAJ .aiGA.iaHUOflOM dí
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988 17
Ingvar Andersson sýnir þekktum borgara og safnara gnllsafn sitt.
* * sesg
* * * . -
11
0»
Frá Lffíl 88.
hefur tekið miklu stakkaskiptum
frá því það kom fyrst fram á sýn-
ing-u.
Gyllt silfur fengu svo í þessum
flokki færeyskt safn, sem Thorolf
Björklund sýndi, og eins safn af
norsku Pósthoms-merkjunum, sem
S.P.G. sýndi. Bæði þessi söfn eru
mjög góð og áttu þessi verðlaun
skilið. Þá fékk safn Hjalta Jóhann-
essonar af íslenzkum uppruna-
stimplum stórt silfur, en Hjalti
bætir dijúgum við það milli sýn-
inga. Hins vegar verður vitaskuld
æ þyngra undir fæti hjá honum
eins og okkur hinum, sem glímum
við eitthvert ákveðið svið, þegar
lengra dregur í söfnuninni. — Tvö
söfn fengu silfur í þessum flokki.
Annað þeirra á Ólafur Elíasson, en
það er bundið við Gullfoss-útgáfuna
1931-32, einkum þá á bréfum með
alls konar burðargjaldi og svo ýms-
um stimplum. Þetta safn er orðið
mjög gott á sínu sviði. Hitt safnið
á Daninn Torben Jensen. Hefur
hann tekið sér fyrir hendur að safna
stimpluðum frímerkjum með mynd
Kristjáns X., bæði stökum, í tvennd-
um (pörum) eða stærri einingum
og svo á kortum og bréfum eða
snyfsum. í þessum merkjum komu
fram alls kyns plötugallar við prent-
un og hefur Torben lagt sig í fram-
króka við að ná sem mestu slíku
saman. Þetta safn sýndi hann í
fyrst skipti á HAFNIU 87.
í heiðursdeild mátti svo sjá hið
einstæða safn úr Þjóðskjalasafni
íslands af forfrímerkjabréfum frá
1782 og fram um 1870, þegar
frímerki komu fyrst til sögunnar
hér á landi, fyrst dönsk frímerki,
og síðan íslenzk árið 1873. Margt
af þessu hefur verið að koma í leit-
imar nú á liðnum árum og var nú
sýnt í fyrst skipti hérlendis. Á
NORDIU 84 mátti að vísu sjá all-
mörg þjónustubréf með skildinga-
frímerkjum á úr Þjóðskjalasafni, en
síðan hefur mikið bætzt við, sem
nú var sýnt í fyrsta skipti hérlend-
is. Var þetta safn þess vegna allt
annað og víðfeðmara en það, sem
menn sáu í Laugardalshöllinni
1984.
Ég varð var við það á sjálfri sýn-
ingunni, að menn voru hrifnir af
henni, þótt hún væri vissulega ekki
stór í sniðum. Sýningarsalur Lista-
safns ASÍ reyndist ágætlega, en
þvi verður ekki neitað, að hann er
í minna lagi til frímerkjasýninga.
Hins vegar hefur hann upp á marga
kosti að bjóða, svo að mér kæmi
ekki á óvart, þótt frímerkjasamtök
vildu oftar nota hann til þess að
kynna frímerkjasöfnun fyrir al-
menningi. Sýningargestir urðu fleiri
en menn gátu búizt við, en gizkað
hefur verið á, að þeir hafi verið
nærri 1.500 þá rúma tvo daga, sem
hún stóð. Þá veitti maður því at-
hygli, að margt ungt fólk kom á
sýninguna og þá gjarnan með böm
sín. Er það vissulega ánægjulegt,
þegar þannig tekst að höfða til al-
mennings með skemmtilegu sýning-
arefni og í hóflega stórum skömmt-
um, ef svo má segja.
Svo mikið efni hefur hrannazt
upp hjá umsjármanni þessa þáttar,
að von er jafnvel til, að næsti þátt-
ur birtist að viku liðinni. Ég minni
svo að lokum á það, að vel er þeg-
ið, ef einhveijir lesendur vilja leggja
orð í belg eða koma á framfæri
efni til birtingar hér í þættinum.
ÞETTA ER
DAGURIINN
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ BÍÐA
KOMDU Á GAMLA
BÍLNUM OG FARÐU
HEIM Á NÝJUM
VOLVO
Glœnýr Volvo fyrir gamla bílinn þinn.
Þú borgar 25% út,
með andvirði bílsins og/eða peningum.
Við lánum afganginn
í 18-30 mánuði.
ÞETTA ER DAGURINN
SKEIFUNNI 15 SiMI 691610
PETTA ER STAÐURINN