Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
27
Kópasker;
Níutíu milljónir króna
hvíla á skipi Sæbliks hf.
- segir Kristján Ármannsson framkvæmdastjóri
RÆKJUVINNSLAN Sæblik hf. á Kópaskeri setti um sl. mánaðamót
rækjuveiðiskip sitt, Árna á Bakka ÞH 380, á söluskrá vegna rekstra-
rörðugleika fyrirtækisins, sem stafa aðallega af lágu markaðsverði
rækju í fyrra og tafa á breytingum á skipinu, að sögn Kristjáns
Ármannssonar framkvæmdastjóra Sæbliks. Kristján sagði í samtali
við Morgunbiaðið að yfir 90 miiyóna króna lán frá Fiskveiðasjóði,
Byggðastofnun og fleiri aðilum hvOdu á skipinu. Ef Sæblik fengi
ekki frekari lánafyrirgreiðslu og skuldbreytingar brysti trúlega
rekstrargrundvöllur fyrirtækisins því það yrði að selja skipið. Starfs-
menn Sæbliks væru um 25 talsins eða 25 til 30% af vinnandi fólki
á Kópaskeri.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að stofnunin hefði
á þessu ári veitt Saebliki 10 milljóna
króna lán vegna Áma á Bakka ÞH.
Sæblik hefði óskað eftir frekari
lánafyrirgreiðslu en það hefði ekki
verið ákveðið hvort, eða hvenær,
fyrirtækið fengi meira fé að láni frá
stofnuninni. Guðmundur sagðist
ekki vilja gefa upplýsingar um hve
mikið Sæblik skuldar stofnuninni.
Kristján Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Sæbliks, sagði að
fyrirtækið hefði ekki beðið Byggða-
stofnun um ákveðna upphæð en
stofnunin og fyrirtækið væru í sam-
einingu að athuga hversu mikið fé
það þyrfti til að geta haldið rekstr-
inum áfram. „Við höfum enn ekki
fengið ákveðið tilboð í Áma á
Bakka ÞH,“ sagði Kristján. „Hins
vegar hef ég fengið nokkrar fyrir-
spumir um skipið. Sæblik keypti
það fyrir 78 milljónir króna af
Dreka hf., dótturfyrirtæki Sjóla-
stöðvarinnar hf. í Hafnarfirði, um
áramót 1986 og 87 en þá hét það
Sæblik lét gera breytingar á skip-
inu, aðallega rafkerfi þess, á Siglu-
firði og Byggðastofnun lánaði fyrir-
tækinu 10 til 15 milljónir króna
vegna breytinganna en þær kostuðu
12 til 13 milljónir króna. Við buðum
út breytingar á spilbúnaði skipsins
og Norðurljós hf., sem er fyrirtæki
rafverktaka á Akureyri, fékk verk-
ið. Vegna vanefnda þeirra komst
skipið ekki á veiðar fyir en í byijun
júní í fyrra. Það hefur verið lög-
fræðingur í því máli fyrir okkur en
það hefur hins vegar ekkert komið
út úr því ennþá. Vegna þess að
lengri tíma tók að breyta skipinu
en áætlað var varð fjármagnskostn-
aður vegna kaupanna á því meiri
en ella og auk þe'ss höfum við lent
í vanskilum af sömu ástæðu.
Skipið hefur eingöngu verið á
djúprækjuveiðum og aflað vel, fékk
t.d. 380 til 390 tonn í fyrra," sagði
Kristján.
Dreki.
Frá Kópaskeri.
VéUu vef, vefcfu Wtmg
WANG
Heimilistæki hf, Sætúni 8,105 Rvík
Sími: 91-6915 00 __
Ekkert venjulegt bílabón
heldur glerhörð lakkbrynja!
FRA
i
VEIST
ÞÚ
MUNIN
l GLOSS er eini bón-
fáanlegur á islenskum
bensinsölum, sem þolir þvott
með tjörueyði. Þar með rætist
draumur bónara, um að glans og
glæsilegt útlit geti enst mánuð-
um saman.
Utsölustaðlr
€sso
stö
UM LUXEMBOURG: w
FLUG, BIU OC
KASTAll,
Hefurþú íhugað Evrópuferð á eigin vegum? Að taka bíl á
leigu og skoða fegurstu staði álfunnar?
Við á Úrvali leggjum mikla áherslu á þannig ferðir um
Luxembourg. Þar höfum við góða samvinnu við Pullman hótelið
og bjóðum úrvals gistingu á mjög góðu verði.
í tengslum við ferðir um Luxembourg bjóðum við dvöl í
sumarhúsum víðs vegar, t.d. íDaun Eifel, Svartaskógi,
Austurríki og á frönsku Rivierunni.
Parkhotel Wasserburg Anholt
Kastalar, þar sem œvintýrin gerast.
Og punkturinn yfir i-ið getur verið ævintýradvöl í kastala því nú bókum við gistingu í
kastölum víðs vegar um Þýskaland.
Þú þarft bara að líta inn til okkar, eða slá á þráðinn, fá bæklinginn um kastalana og
velja rétta umhverfið fyrir þín œvintýri.
Flug og bíll um Luxembourg:
Verð frá 14.750 kr. * Innifalið: Flug, bíll í verðflokki A, ótakmarkaður akstur í tvœr vikur, kaskótrygging og söluskattur.
* Verð miðað við að tveir fullorðnir og tvö börn, 2-11 ára, ferðist saman. Gildir til 10. júní.
FERDASKRIFSTOFAN ÓRVAl
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtræti 13 - Sími 26900.