Morgunblaðið - 16.04.1988, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
Forkosningar demókrata í New York á þriðjudag:
Tekst Michael Dukakis að
tryggja útnefningu sína?
Kosningarnar einnig taldar vera einvígi blökkumanna
og gyðinga
Róstur í Panama
Reuter
Undanfarna daga hefur mikil spenna verið í Panama, bæði vegna
innri ólgu og vegna fjölgunar bandariskra hermanna í herstöðv-
um Bandaríkjahers I landinu. Á þriðjudagskvöld réðist hópur
manna á eina herstöðina, en bandarískir landgönguliðar skutu á
móti. Enginn féll í skæru þessari. Á myndinni að ofan má sjá
múg manna fara inn í eina helstu stórverslun Panamaborgar og
láta greipar sópa. Efnahagsástand Panama fer nú sífellt versn-
andi , en það má rekja til viðskiptaþvingana Bandaríkjastjómar,
sem vill knýja Noriega hershöfðingja til þess að láta af völdum
í Mið-Amerfkurfkinu. Er skortur á ýmsum neysluvamingi orðinn
alvarlegur af þessum sökum.
New York. Reuter.
MICHAEL Dukakis, rikissijóri í
Massachusetts, hefur umtalsvert
forskot á keppinauta sína f for-
kosningum Demókrataflokksins,
sem fram fara í New York á
þriðjudag. Kemur það fram f
þremur skoðanakönnunum, sem
birtar vom f fyrradag. Margt
bendir til, að í kosningunum f
New York komi til nokkurs kon-
ar uppgjörs milli blökkumanna
og gyðinga en þeir sfðamefndu
hafa illan bifur á Jesse Jackson.
í skoðanakönnununum fékk
Dukakis 45-49% atkvæða, Jackson
28-34% og Albert Gore 6-8%. Duk-
akis má heita nokkuð öruggur með
að verða forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins vinni hann
góðan sigur í New York en þrátt
fyrir lítið fylgi lætur Gore engan
bilbug á sér fínna. í fyrradag hljóp
dálftið á snærið hjá honum þegar
Ekiward Koch, borgarstjóri í New
0
iðnaðarbankinn
TILHLUTHáFA
WMÐARBANKAMS
Á aðalfundi Iðnaðarbanka íslands hf., sem haldinn var 25. mars 1988,
var samþykkt að auka hlutafé bankans um 40 miiljónir króna með
útgáfu nýna hlutabréfa. í samræmi við þá ákvörðun hefur bankaráðið
ákveðið eftirfarandi:
INúverandi hluthafar hafa forkaupsrétt til aukningar í hlutfalli
■ við hlutafjáreign sína til 31. maí n.k.
2Sölugengi hlutabréfanna verður 150, þ.e. 1,5 falt nafnverð m.v.
■ 1. apríl 1988. Frá 1. apríl og tilloka forkaupsréttartímans breytist
3.
sölugengið daglega í samræmi við almenna skuldabréfavexti
bankans.
Skrái hluthafar sig ekki fyiir allri hlutafjáraukningunni hafa aðrir
hluthafar ekki aukinn rétt til áskriftar. Bankaráð mun selja það
sem eftir kann að standa af aukningunni á almennum markaði
síðar á árinu.
4Hlutabréfunum fylgir óskertur réttur til jöfnunarhlutabréfa og
a réttur til hlutfallslegs arðs frá 1. apríl 1987 í samræmi við
ákvarðaniraðalfundar 1989. ' ../SRHHI
Nánari upplýsingar veita Guðrún Tómasdóttir og Stefán Hjaltested,
Lækjargötu 12,2. hæð í síma 691800.
Reykjavík, 15. apríl 1988
Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf.
York, lýsti yfir stuðningi við hann
og sagði, að ísraelsríki ætti góðan
að þar sem hann væri. Sjálfur er
Koch gyðingur.
Sakaði Dukakis um
reynsluleysi
í umræðuþætti í sjónvarpi með
frambjóðendunum þremur snerist
Gore hart gegn Dukakis og skamm-
aði hann fyrir að hafa sagt í blaða-
viðtali, að sem forseti væri hann
tilbúinn til að verða fyrri til að beita
kjamorkuvopnum ef þörf krefði.
Voru ummæli Dukakis nánar tiltek-
ið þau, að réðust Sovétmenn á Vest-
ur-Evrópu væri rétt að beita kjam-
orkuvopnum gegn þeim dygði hefð-
bundni heraflinn ekki til. Væri það
stefna Bandaríkjanna og Atlants-
hafsbandalagsins.
Sagði Gore, að svona yfirlýsing
bæri vott um reynsluleysi, með
henni væri verið að leggja spilin á
borðið fyrir Sovétmenn. Nú var
Dukakis nóg boðið og svaraði fyrir
sig fullum hálsi:
Af Khalid afturgengnum
Dukakis: „Al, þegar talið berst
að reynsluleysi vildi ég ekki vera í
þínum sporum. í síðustu viku varstu
á fundi með forsetaráði helstu gyð-
ingasamtakanna og harmaðir mjög,
að Khalid, konungur Saudi-Arabíu,
skyldi ekki hafa viljað styðja frið-
aráætlun Shultz. Þá værir þú nú
vænn ef þú gætir fært okkur Khalid
aftur þvi að hann dó árið 1982."
Gore: „Við emm hér að ræða um
kjamorkuvopn."
Dukakis: „... já, banameinið var
hjartaslag.“
Gore: „Við erum hér að ræða um
kjamorkuvopn."
Dukakis: „Hann hefur ekki verið
á meðal vor í sex ár nema þú sjáir
það, sem öðrum er hulið. Eg styð
stefnu Bandaríkjanna og Atlants-
hafsbandalagsins í kjamorkuvopna-
málum og þú veist fullvel hver hún
er.“
Hefur Jackson verið
fyrirgefið?
Ekki mæddi mikið á Jackson í
þessari orrahríð. Var hann einu
sinni minntur á, að 1984 hefði hann
kallað New York „Hymietown" —
„hymie" er skammaryrði um gyð-
inga — en hann kvaðst bara vona,
að fólk hefði fyrirgefið sér.
Talið er, að forkosningamar í
New York geti snúist upp í eins
konar viðureign milli gyðinga og
blökkumanna. Gyðingar í ríkinu eru
stór og öflugur kjósendahópur og
þeir líta margir á Jackson sem
Qandmann Ísraelsríkis og erindreka
Palestínumanna. Hvorir um sig,
blökkumenn og gyðingar, em fjórð-
ungur kjósenda í New York en
William Safire, dálkahöfundur á
New York Times spáir því, að
blökkumenn muni að sínu leyti fara
með sigur af hólmi í þessum slag.
Það sé vegna þess, að blökkumenn
muni kjósa Jackson allir sem einn
en gyðingar séu sundraðir.
Aítenpogfcen
Prestamir tveir, Berre Knudsen og Ludvig Nessa, sem nú hafa báð-
ir verið sviptir kjóli og kalli vegna mótmælaaðgerðanna gegn fóstu-
reyðingum.
Noregur:
Tveir prestarliamast
að f óstureyðingum
Hafa báðir verið sviptir kjóli og kalli
Ósló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
TVEIR norskir prestar hafa að
undanförnu vakið athygli fyrir
mótmælaaðgerðir gegn fóstur-
eyðingarlögunum sem gengu i
gildi í Noregi fyrir 13 árum.
Hafa þeir báðir verið sviptir Igól
og kalli vegna aðferðanna sem
þeir hafa beitt við mótmæli sín.
Nýjustu aðgerðir prestanna
tveggja til að fá norska Stórþingið
til að endurskoða fóstureyðingar-
löggjöfina fólust í bréfasendingum
til Olafs konungs, ríkisstjómar Nor-
egs og Jo Benkow, forseta Stór-
þingsins. Bréfaskriftimar væru
ekki í frásögur færandi ef ekki
hefði fylgt bréfunum litlar brúður
sem flutu í tómatsósu í plastpokum.
Jo Benkow brást harkalega við
þessari ógeðfelldu sendingu og hef-
ur Stórþingið ákveðið að annar
prestanna, Ludvig Nessa, víki úr
embætti sóknarprests í Borge-sókn
í 0stfold. Félagi hans, Borre Knuds-
en, hefur fyrir nokkm verið látinn
víkja úr embætti í Balsfjord-sókn í
Finnmörku.
Prestamir hafa um nokkra hríð
valdið usla og hefur lögregla nokkr-
um sinnum þurft að fjarlægja þá
frá sjúkrahúsum. Þar hafa þeir far-
ið inn á kvennadeildir þar sem liggja
konur sem gengist hafa undir fóstu-
reyðingaraðgerðir, sungið sálma og
gert hróp að konunum. í predikun-
um sínum hafa þeir líkt fóstureyð-
ingum við gyðingarofsóknir nasista
í Þýskalandi í seinni heimsstyijöld-
inni. „Á meðan böm em myrt á
þennan hátt í Noregi munum við
mótmæla," er haft eftir prestunum
tveimur í norsku dagblaði.
Prestamir tveir hafa ekki vakið
samúð fólks og í nýlegri skoðana-
könnun sem gerð var í Noregi kom
fram að um 80% þeirra sem þátt
tóku í könnuninni em á móti að-
gerðum þeirra. Nokkrir biskupar í
Noregi hafa lýst yfir að þeir séu
algjörlega á móti þessum aðgerð-