Morgunblaðið - 16.04.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
29
Sovétríkin::
Hver er fegurst
Moskvu-dætra?
Reuter
Spengjunni var komið fyrir í hvítri Ford Fiesta bifreið sem hafði
verið lagt við skemmtistað bandarískra hermanna í Napólí. Innfellda
myndin sýnir japanska hryðjuverkamanninn Junzo Okudaira, sem
grunaður er um ódæðið.
Fimm týna lífi í sprengjutilræði í Napólí:
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKAR fegurðardísir sungu, dönsuðu og sýndu í kvöld-
kjólum í fyrstu fegurðarsamkeppninni, sem haldin er í sovésku
höfuðborginni — um titilinn „Ungfrú Moskva“. Fyrsti hluti keppn-
innar fór fram í gær. Áhorfendum gefst líklega ekki kostur á að
sjá yngismeyjaraar í klæðnaði, sem vinsæll er við sams konar
tækifæri á Vesturlöndum — sundfötum.
Samkvæmt fréttum, sem birst
hafa um keppnina, var stúlkum á
aldrinum 17-27 ára boðið að taka
þátt í.upphafslotunni, sem fram
fór í Gorkí-garðinum. Dómarar
fylgdust með keppendum í hæfi-
leikakeppni og dansi. í dansinum
klæddust stúlkumar bæði svoköll-
uðum furðufötum og samkvæmi-
skjólum, en þess var ekki getið,
að stúlkumar kæmu fram í sund-
fötum.
„Hver getur freistað gæfunnar?
Sérhver stúlka, sem hefur til að
Grunurinn beinist að jap-
önskum hryðjuverkamanni
Hugsanlegft að hann hafi verið flugumaður arabískra öfgasamtaka
bera sjálfsöryggi, gott útlit og
góðan vöxt, ber sig vel og kann
að dansa," sagði í ungheijablaðinu
Komsomolskaya Pravda.
Pyrsta fegurðardrottning
Moskvuborgar verður kjörin í fjór-
um atrennum og fer lokakeppnin
fram í júnímánuði. Sigurvegarinn
mun keppa fyrir hönd höfuðborg-
arinnar um titilinn „Ungfrú Sov-
étríkin", en sú keppni hefst í nóv-
ember.
Fyrir Moskvukeppninni standa
sovésk tískuhús, vestur-þýska
tískuritið Burda Moden og sovéska
kvikmyndafélagið Mosfilm.
„Hver veit nema ný kvikmynda-
stjama fæðist?“ sa.gði í dagblaðinu
Sovjetskaja Rossíja.
Napólí, Reuter.
LÖGREGLUYFIRVÖLD á Ítalíu
skýrðu frá því í gær að japansk-
ur hryðjuverkamaður væri grun-
aður um að hafa staðið að baki
sprengjutilræði við klúbb banda-
rískra hermanna í Napóli á
fimmtudagskvöldið. Fimm
manns biðu bana í sprengingunni
og 15 særðust.
Romano Argenio, yfirmaður
þeirrar deildar lögreglunnar í Na-
póli, sem ætlað er að hefta starf-
semi hryðjuverkamanna, sagði í við-
tali við Reuters-fréttastofuna að
grunurinn beindist að 39 ára göml-
um Japana, Junzo Okudaira að
nafni, og væri hann í félagi í jap-
önsku hryðjuverkasamtökunum
„Rauði herinn". Þessi sami maður
er eftirlýstur um allan heim þar eð
sannað þykir að hann hafi skipulagt
sprengjutilræði við bandaríska
sendiráðið í Rómarborg í júní á
síðasta ári. Argenio sagði Okudaira
vera sérfróðan um meðferð sprengi-
efnis og tæki hann iðulega að sér
hermdar- og ódæðisverk fyrir utan-
aðkomandi aðila, einkum öfgasam-
tök í Mið-Austurlöndum.
Argenio sagði að þótt grunurinn
beindist að Japananum hefðu yfir-
völd ekki útilokað að illvirkið hefði
verið framið í nafni arabískra öfga-
samtaka. Nokkrir menn hefðu
hringt og tilkynnt að hin ýmsu sam-
tök væru ábyrg. Einn þeirra hringdi
í alþjóðlega fréttastofu í Róm og
sagði „Jihad“-samtökin (Heilagt
stríð) hafa verið að verki. Sagði sá
hinn sami að fleiri hermdarverk
hefðu verið skipulögð gegn banda-
rískum ríkisborgurum. Annar mað-
ur sagði í símtali að réttlætinu hefði
„verið fullnægt í nafni líbönsku
þjóðarinnar".
Argenio kvað ekki unnt að úti-
loka þann möguleika að sprengjutil-
ræðið stæði í sambandi við árás
Bandaríkjamanna á Líbýu en um
þessar mundir eru tvö ár liðin frá
því hún var gerð.
Sprengjan í bifreið
Að sögn Argenios var sprengj-
unni komið fyrir í hvítri bifreið af
gerðinni Ford Fiesta. Vitað væri
að Asíubúi hefði tekið bifreiðina á
leigu í Napólí undir nafninu Liao
Willy Liw. Starfsmanni bílaleigunn-
ar hefði verið sýnd mynd af Okuda-
ira og hefði hann borið kennsl á
hann.
Fjórir ítalir og 31 árs gömul
bandarísk kona, sem gegndi her-
þjónustu, létu lífið í tilræðinu. Að
sögn Argenios hefur öryggisgæsla
verið hert til muna við mannvirki í
eigu Bandaríkjamanna í nágrenni
Napólí og einum skemmtistað
bandarískra hermanna hefur verið
lokað af öryggisástæðum. Franc-
esco Cossiga, forseti Ítalíu, hefur
sent Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta samúðarskeyti vegna tilræðis-
ins.
15 slösuðust í sprengingu
Reuter
Fimmtán manns slösuðust, þar af þrir alvarlega,
þegar sprenging varð í fimm hæða ibúðarblokk
í Köln í Vestur-Þýskalandi S gær. Talsmaður
iögreglunnar sagði, að gasleki á nærliggjandi
vinnusvæði kynni að hafa valdið sprengingunni.
Verulegar skemmdir urðu á húsinu, og er það
með öllu óíbúðarhæft.
Inniskór
Verð kr. 1190,-
Stærðir: 36-41
Litir: Hvítt, beige, blátt.
Ath.: Skómir eru úr mjúku
hanskaskinni og með góðu inn-
leggi.
Póstsendum samdxgurs.
5% staðgreiöslmfsláttur.
TOPP.
VELTUSUNOI 1
21212
KRINGMN
KblHeNM s. 689212.
Domus Medica, sími: 18519
MR1UBIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Allir skór á kr. oswaid Tops
hefst mánudaginn 18. apríl.
VELTUSUNDI 2,
21212