Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
Reuter
Þess er minnst um þessar mundir að 45 ár eru liðin frá þvi gyðingar
í Varsjá börðust gegn nasistum. Talsmaður pólsku stjómarinnar
vakti reiði ísraelskra embættismanna er hann Iíkti aðgerðum þeirra
gegn Palestínu-mönnum við aðgerðir nasista. Myndin er frá minning-
arathöfn í Varsjá á fimmtudag.
*
Israel:
Mótmæla ummælum tals-
manns pólsku sljómarinnar
Jerúsalem, Tel Aviv. Reuter.
ÍSRAELSMENN ætla að mótmæla
formlega ummælum talsmanns
pólsku stjómarinnar um að að-
gerðir ísraelshers gegn uppreisn
Palestínumanna á herteknu svæð-
unnm vanhelgi minningu gyðinga
sem börðust gegn nasistum í Var-
sjá I seinni heimsstyijöldinni. Yitz-
hak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, sagði í gær að hann væri
reiðubúinn að bjóða Edúard She-
vardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, til ísraels ef hann
myndi þekkjast slíkt boð.
Talsmaður pólsku stjómarinnar,
Jerzy Urban, sagði í Varsjá á þriðju-
dag að aðgerðir Israelsmanna á her-
teknu svæðunum væru harðneskju-
legar og móðgun við minningu þeirra
gyðinga sem börðust í Varsjá I þijár
vikur gegn hermönnum nasista árið
1943.
Þessi ummæli hafa vakið reiði
ísraelskra embættismanna. „Samlík-
ing Jerzy Urbans ófrægir minningu
þeirra sem létu Hfið og hann talar
um útrýmingarherferð nasista eins
og hún væri hversdagslegur atburð-
ur,“ sagði talsmaður ísraelsku stjóm-
arinnar, Danny Schek í gær. „Við
höfum beðið Mordechai Paltzur
sendimann okkar í Varsjá að senda
stjómvöldum þar formleg mótmæli
vegna þessara ummæla Urbans,"
sagði Schek. Samgönguráðherra
ísraels, Haim Corfu, sagði á miðviku-
dag að Pólverjar ættu að líta í eigin
barm áður en þeir gagnrýndu ísraels-
menn.
Sovétríkin slitu stjómmálasam-
bandi við ísrael árið 1967 en að
undanfömu hafa þeir þótt sýna vin-
semdarmerki í þeirra garð. Tilkynn-
ing, sem gefin var út í vikunni, þess
KARPOV heldur enn forystunni
á heimsbikarmótinu í Brussel.
Hann lagði Viktor Kortsnoj í gær
í 12. umferð og er nú með 8V2
vinning af 12 mögulegum. í öðru
sæti er Beljavskí með 7Vz vinning
af 11 mögulegum.
Tal vann Sokolov í gær en öðmm
efnis að Shevardnadze ætli að heim-
sækja Arabalönd, hefur vakið áhuga
ísraelsmanna. „Ef forsætisráðherr-
ann væri þess fullviss að She-
vardnadze myndi þiggja boð um að
heimsækja ísrael, myndi hann bjóða
honum til viðræðna um samskipti
þjóðanna," sagði talsmaður Shamirs,
Yossi Ahimeir, í samtali við Reuters-
fréttastofuna í gær. „Við höfum ekk-
ert á móti Sovétmönnum, heldur
þvert á móti. Við höfum áhuga á að
endumýja sambandið milli land-
anna,“ bætti hann við.
skákum lyktaði með jafntefli. í 11.
umferð sem tefld var á fímmtudag
vann Beljavskí, helsti keppinautur
Karpovs, Winants frá Belgíu. En
Karpov gerði jafntefli með svörtu
mönnunum við Nikolic. í þeirri
umferð vakti athygli að Tal tapaði
í 20 leikjum fyrir Nunn.
Heimsbikarmótið:
Karpov heldur forystu
Brottflutningnr sovéska innrásarliðsins frá Afganistan:
Skæruliðar ekki gerðir
brottrækir frá Pakistan
- segir Zia-ul-Haq, forseti landsins
Ialamahad, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Pakistan hafa
gefið til kynna að frelsissveit-
um afganskra skæruliða verði
áfram leyft að halda tíl á pakis-
tönsku landsvæði hyggist ráða-
menn í Moskvu ekki láta af
hemaðarstuðningi við stjóra-
völd í Afganistan. í samningn-
um um heimkvaðningu sovéska
innrásarliðsins frá Afganistan,
sem undirritaður var í Genf á
fimmtudag, er kveðið á um að
Pakistanar megi ekki skjóta
skjólshúsi yfir afganska skæru-
liða. Hins vegar hafa risaveldin
náð samkomulagi um Jafna og
gagnkvæma" heraaðaraðstoð
við stríðandi fylkingar í landinu
á meðan að brottflutningur so-
véska herliðsins fer fram og
eftir að honum lýkur.
Zia-ul-Haq, forseti Pakistan,
sagði á fundi með fréttamönnum
á fimmtudagskvöld að Sovétmenn
gætu ekki andmælt því að skæru-
liðar fengju áfram að halda til
innan landamæra Pakistan þar
eð risaveldin tvö hefðu orðið ásátt
um áframhaldandi stuðning við
bandamenn sína í Afganistan.
Þessu fyrirkomulagi hefðu ráða-
menn í Sovétríkjunum lýst .sig
fylgjandi 0g gert um það óform-
legt samkomulag við Bandaríkja-
menn. „Sovétmönnum er full-
kunnugt um að hyggist Banda-
ríkjamenn áfram styðja skæruliða
verður hergögnum ekki varpað til
þeirra í fallhlíf," sagði forsetinn.
Landamæri ríkjanna tveggja eru
um 1.200 kflómetra löng og hafa
vopn, sem send hafa verið frelsis-
sveitunum, farið í gegnum Pakist-
an.
Samkomulag risaveldanna
í Genfarsamningnum er kveðið
á um að erlendri hemaðaríhlutun
skuli hætt í Afganistan og virðist
litið svo á að það orðalag vísi jafnt
til sovéska innrásarliðsins í
landinu og aðstoðar stjómvalda í
Pakistan við liðsmenn frelsissveit-
anna. Sovétmenn reyndust á hinn
bóginn ófáanlegir til að hætta
hemaðarstuðningi við stjómvöld
í Kabúl og féllust að lokum á þá
málamiðlunartillögu bandarískra
embættismanna að risaveldin
héldu áfram Jöfnum og gagn-
kvæmum" stuðningi við banda-
menn sína í landinu. Er þá gert
ráð fyrir því að dragi annað risa-
veldið úr hergagnasendingum
þangað skuli hitt stórveldið gera
slíkt hið sama.
Landamærum ekki lokað
Zia-ul-Haq kvaðst hafa tjáð
fulltrúum Sovétstjómarinnar að
stjóm sín teldi öldungis ómögu-
legt að loka landamærum
rílqanna. Hefðu Sovétmennimir
fallist á að þetta væri með öllu
óframkvæmanlegt. Forsetinn
lagði áherslu á að Pakistanar
hygðust standa við sinn hluta
samningsins en bætti við að Sov-
étmenn yrðu að sætta sig við af-
leiðingar samkomulags þeirra og
Bandaríkjamanna um áframhald-
andi aðstoð.
Stjóm Zia hefur ávallt og ævin-
lega viðurkennt að skæruliðum
berist vopn í gegnum Pakistan.
Hins vegar hafa ráðamenn vísað
á bug fullyrðingum stjómvalda í
Kreml þess efnis að skæruliðar
fái þjálfun sína í Pakistan. Kveð-
ast þeir á hinn bóginn starfrækja
þijár búðir þar sem afganskir
flóttamenn haldi til og sé skæru-
liðum með öllu óheimilt að bera
vopn innan þeirra.
Reuter
Utanríkisráðherrar risaveldanna þeir Eduard Shevardnadze og
George Shultz komu saman tU fundar í sovéska sendiráðinu í
Genf á fimmtudag er þeir höfðu undirritað sáttmála um brott-
flutning sovéska innrásarliðsins frá Afganistan. Myndin var tek-
in við upphaf viðræðna þeirra.
Ákall um aðstoð til handa
afgönskum flóttamönnum
5,4 milljónir manna, þriðjungur þjóðarinnar, hefur
flúið land
Genf, Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar hvöttu
riki heims í gær til að koma tíl
aðstoðar bágstöddum afgönsk-
um flóttamönnum, sem flúið
hafa heimaland sitt vegna
ófriðarins sem þar hefur geisað
undanfarin níu ár. Jean-Pierre
Hocke, yfirmað’ur Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna sagði á blaðamannafundi
að safna þyrfti gífurlegum
fjármunum í þessu skyni og
kvað ljóst að mikið starf og
erfitt væri framundan. TaUð
er að alls hafi 5,4 milljónir
Afgana, um þriðjungur þjóðar-
innar, flúið land og halda rúm-
ar þijár miUjónir þeirra tU í
Pakistan.
Hocke hvatti ríkin flögur; Pak-
istan, Afganistan, Bandaríkin og
Sovétríkin, sem undirrituðu Gen-
farsamninginn um heimkvaðn-
ingu sovéska innrásarliðsins frá
Afganistan að gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að lina þján-
ingar flóttamanna og greiða fyrir
því að þeir gætu snúið aftur til
síns heima. Kvaðst Hocke þegar
hafa ráðfært sig yið ríkisstjómir
ýmissa ríkja og alþjóðlegar hjálp-
arstofnanir og sagði að áætlun
um hjálparstarf yrði kynnt innan
tíu daga. Kvað hann ljóst að safna
þyrfti hundruðum milljóna dollara
á næstu mánuðum til að unnt
yrði að aðstoða þá Afgana, sem
vildu snúa heim.
í Genfarsamningnum er kveðið
á um að fólki sem leitað hefur
slqóls í Pakistan verði gert kleift
að snúa aftur. Talið er að 3,1
milljón Afgana haldi til í flótta-
mannabúðum í Pakistan en sam-
kvæmt sáttmálanum eru stjóm-
völd í Afganistan skuldbundin til
að heimila flóttamönnunum að
setjast að hvar sem þeir vilja.
Hocke sagði að stjómvöld á
Bretlandi hefðu þegar lýst sig
reiðubúin til að leggja fram tíu
milljónir sterlingspunda (um 700
milljónir ísl. kr.) og kvaðst hann
telja að unnt yrði að safna nægi-
legu ijármagni. Hann sagðist
áætla að kostnaðurinn við hjálap-
arstarfið fyrsta árið yrði ekki
undir 600 milljónum Bandarflqa-
dala (um 24 milljarðar ísl. kr.).
Bandarískur sérfræðingur, Roy
Williams að nafni, sagði á fundi
í New York á fimmtudag að flótta-
mannanna biði að setjast að í landi
sem hefði orðið mjög illa úti í
átökum hinna stríðandi fylkinga
í landinu. Sagði hann sambæri-
lega eyðileggingu að líkindum
ekki hafa átt sér stað frá því á
árum síðari heimsstyijaldarinnar.
Af þessum sökum sagðist hann
álíta að margir flóttamannanna
myndu ákveða að snúa ekki aftur
og dvelja um sinn fjarri heima-
landi sínu.
Stærð heraflans
verður opinberuð
Moskvu, Reuter.
TALSMAÐUR sovéska utanrík-
isráðuneytisins sagði í gær að
að skýrt yrði frá fjölda sov-
éskra hermanna í Afganistan
er brottflutningur innrásarliðs-
ins hæfist í næsta mánuði.
Vadím Perffljev gaf einnig til
kynna á blaðamannfundi í Moskvu
að yfirvöld hygðust birta tölur
yfír flölda fallinna frá því Sovét-
menn gerði innrás í landið í des-
embermánuði árið 1979. Sagði
Perffljev sövésku þjóðina hafa
fært miklar fómir í Afganistan.
Vestrænir sérfræðingar telja
að sovéska innrásarliðið í Afgan-
istan telji um 115.000 menn.
Ráðamenn í Kreml hafa reynst
ófáanlegir til að skýra frá íjölda
hermanna í landinu og hafa ævin-
lega rætt um „takmarkaðan her-
afla“ Sovétmanna í landinu á op-
inberum vettvangi.