Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
35
Kór Öldutúnsskóla tíl
Astralíu og Asíu í júlí
Kór Öldutúnsskóla fer í þriggja
vikna söngferð í júlí í sumar og
er förinni að þessu sinni heitið
tii Ástralíu, Hong Kong og Tai-
lands. 20 kórfélagar á aldrinum
10-17 ára fara ásamt fararstjórn
og kórstjóranum Agli Friðleifs-
syni, sem hefur stjórnað kórnum
allt frá stofnun hans árið 1965.
Þetta er 12. utanferð kórsins og
er Ástralía 5. heimsálfan sem
hann sækir heim. „Efnisskráin
verður bæði fjölbreytt og vönduð
og þar verður að finna lög allt
frá 16. öld fram til okkar daga,
þar á meðal glænýtt kórverk eft-
ir Hjálmar H. Ragnarsson,11 sagði
Egill í samtali við Morgunblaðið.
Ferðin hefst þann 8. júlí og ligg-
ur leiðin fyrst til Hong Kong. Kóm-
um barst boð frá borgaryfirvöldum
um að syngja á alþjóðlegu kóra-
móti sem þar er haldið. Egill sagði
kórinn hafa fengið ítrekuð boð um
að syngja í Hong Kong eftir fyrri
ferð sína til borgarinnar árið 1982
og nú hefði verið ákveðið að þiggja
það.
Þá fer kórinn til Astralíu, nánar
til tekið Canberra þar sem hann
syngur á 18. ráðstefnu ISME sem
eru alþjóðasamtök tónlistaruppa-
lenda og deild í UNESCO. í samtök-
unum er tónlistarkennarar úr öllum
greinum og kennslustigum tónlist-
ar. Egill sagði það mikinn heiður
að vera boðið að syngja á ráðstefn-
unni þar sem til hennar væri boðið
þeim tónlistarmönnum sem athygli-
verðastir þykja hverju sinni.
Frá Canberra fer kórinn til Sid-
-ney, þar sem hann tekur þátt í al-
þjóðlegu tónlistarmóti. Það er hald-
ið í tilefni þess að í ár eru liðnar
tvær aldir frá landnámi Evrópu-
manna í Ástralíu. „Okkur var sagt
að kómum væri meðal annars boð-
ið vegna þess að hann kæmi eins
langt að og mögulegt væri," sagði
Egill.
Ferðinni lýkur svo í Tailandi en
Egill sagði dagskrána ekki komna
í endanlegt horf og því ekki hægt
að segja neitt um hana að svo
stöddu.
„Það segir sig sjálft að ferð sem
þessi er óhemju kostnaðarsöm og
erum við með ýmsar ráðagerðir við
íjáröflun, t.d. tónleikahald, blaða-
útgáfu og happdrætti. Mestu munar
þó um myndarlegt framlag Hafnar-
ijarðarbæjar sem nú, eins og jafnan
áður, styður vel við bakið á okkur,"
sagði Egill að lokum.
Fyrsta skóflustunga að þjónustumiðstöð við Úlfljótsvatn tekin: Talið
frá vinstri eru Haukur Pálmason, Davið Oddsson og Haraldur Hann-
esson.
Úlfljótsvatn:
Bygging sameiginlegr-
ar þjónustumiðstöðvar
BYGGING sameiginlegrar þjón-
ustumiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar, Starf smannaf élags
Reylqavíkurborgar og Raf-
magnsveitu Reykjavíkurborgar
við sumarhús Starf smannaf é-
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Nokkrir af nemendum Barnaskóla Eyrarbakka.
Eyrarbakki:
Fjársöfnun til tölvukaupa
fyrir grunnskólann
Lionsklúbburinn á Hólmavík:
Safnað fyrir gam-
alli kirkjuklukku
Gyrarbakka.
FJÁRSÖFNUN til kaupa á tölv-
um fyrir Barnaskólann á Eyrar-
bakka, sem er grunnskóli með
um 100 nemendur, hefur farið
fram undanfarnar vikur.
Undirtektir fólks hafa verið mjög
góðar og er stefnt að því að tölvum-
ar verði afhentar sunnudaginn 1.
maí en þá verður jafnframt sýning
á vinnu nemenda skólans.
Kvenfélag Eyrarbakka verður
100 ára 25. apríl. í tilefni þessa
merka afmælis ákváðu konumar
að gefa skólanum 100 þúsund krón-
ur til tölvukaupa.
Afmælisins hyggjast konumar
minnast sunnudaginn 24. apríl.
Stærsta gjöfin barst frá Fiskiveri
sf., 150 þúsund krónur. Auk þess-
ara stórgjafa safnaðist meðal al-
mennings og fyrirtækja í þorpinu
veruleg upphæð, nálega 180 þúsund
krónur. Með þessu fé er vel séð
fyrir því að hinn 136 ára skóli geti
boðið nemendum sínum að gægjast
inn í tölvuöldina. _ Óskar
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
Lionsklúbbur Holmavíkur er
að safna fé til kaupa á gömlu
kirkjuklukkunni úr Tröllatungu-
kirkju. Ný sijóm klúbbsins var
kosin á fundi fyrir skömmu.
Þrátt fyrir slæmt veður á
fimmtudag var óvenjuvel mætt á
fundi Lionsklúbbsins á Hólmavík á
fimmtudagskvöldið enda stóð til að
kjósa þá nýja stjóm. Var kosin
stjóm fyrir næsta starfsár og var
Sigurður H. Þorsteinsson kosinn
formaður. Varaformaður er Sigurð-
ur Vilhjálmsson. Gjaldkeri var kos-
inn Daði Guðjónsson og ritari Gunn-
ar Jóhannsson.
Er klúbburinn nú meðal annars
að safna fé um sýsluna til kaupa á
gömlu kirkjuklukkunni úr Trölla-
tungukirkju. Þá stendur til að gefa
heilsugæslustöðinni á Hólmavík
sjúkrarúm á næstunni. Unnið er að
hönnun útsýnisskífu á Ennishálsi.
Þá stendur til að athuga með endur-
byggingu gamla sæluhússins á
Steingrímsfjarðarheiði. Auk þess
era ýmis önnur störf í gangi svo
sem heimsóknir á elliheimilið á
Hólmavík og fleira.
SHÞ
lagsins við Úlfljótsvatn hófst í
byrjun april. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson, Har-
aldur Hannesson formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og Haukur Páhnason að-
stoðarrafmagnsstjóri tóku fyrstu
skóflustunguna sameiginlega i
lok mars sl.
Ákvörðun um byggingu hússins
var tekin af borgarráði í tilefni af
60 ára afmæli Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar þann 17. janúar
1986, en borgarstjóm Reykjavíkur
afhenti Starfsmannafélaginu land
undir sumarhús á Úlfljótsvatni í
tilefni 40 ára afmælis félagsins árið
1966.
Úlfljótsskáli verður einnar hæðar
timburhús á steyptum kjallara með
svalalofti í risi að hluta og er flatar-
mál hússins 578 fermetrar.
Bygging hússins var fyrst boðin
út í júní 1987 en vegna aðstæðna
þá var öllum tilboðum hafnað.
Verkið var sfðan aftur boðið út
f janúar sl. og var samið við lægst-
bjóðanda, Iðnverktaka sf., en til-
boðsupphæð þeirra er kr.
27.919.236. Til framkvæmda á
þessu ári verður varið 17 milljónum
króna en verkáætlun gerir ráð fyrir
að húsið verði fullbúið að utan nk.
haust, en tilbúið til notkunar 20.
maí 1989.
Leiðindaveður á Ströndum: Brúðuleikhúsið Sögusvuntan:
Bömin flutt á drátt- Smjörbitasaga sýnd
arvélum í skólann
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
ALLA þessa viku hefur verið
leiðindaveður hér í Bjamarfirði
og raunar á Ströndum öllum.
Ófærð hefur verið mikil og ekki
fært, jafnvel innan sveitar á mið-
vikudag og fimmtudag. Hluti
skólabarna við Klúkuskóla komst
ekki í skólann þá daga, en hin
voru veðurteppt í heimavist alla
vikuna. Þá hefur orðið að bregða
við og hjálpa bUum bæði á Ennis-
hálsi og á Steingrímsfjarðarheiði
í vikunni.
Þetta áhlaup hófst strax um
síðustu helgi, en aðfaranótt mánu-
dags festist jeppi á leið í Bjamar-
fjörð á Ennishálsi. Varð fólkið að
ganga niður að Skriðnesenni og
gista þar um nóttina. Því tókst með
hjálp að losa bílinn daginn eftir og
komast leiðar sinnar á Hólmavík.
Slóst það þar í hóp þriggja jeppa
sem vora á leið í Bjamarfjörð. Einn
þeirra varð þó að skilja eftir f sunn-
anverðum Bassastaðahálsi og er
hann þar enn.
Skólaböm vestan frá Bassastöð-
um voru flutt á mánudag á dráttar-
vél í Klúkuskóla og hafa verið þar
í heimavist sfðan. Er þetta í fímmta
sinn í vetur sem nemendur verða
að gista í heimavist skólans vegna
veðurs. Brotist hefur verið með
böm í og úr skóla þessa viku nema
á miðvikudag og fimmtudag. Þá
var algerlega ófært. Á miðvikudag
var brotist frá Kaldrananesi á
Drangsnes til að ná í mjólk fyrir
íbúa Bjamarfjarðar og hún síðan
selflutt milli bæja með ýmsum far-
artækjum.
Póstur var sóttur á miðvikudag
til Hólmavíkur, með bát frá Drangs-
nesi. Var hann sfðan fluttur á snjó-
sleða um Bjamaifyörð um kvöldið.
Á fimmtudag varð vegagerðin
að senda út snjómoksturstæki til
að hjálpa tveim bílum frá Sjón-
varpinu að komast yfír Steingríms-
fjarðarheiði, á leið til upptöku á
Bolungarvík á föstudag að þættin-
um Hvað heldurðu? Gekk sú ferð
vel, með snjópióg í broddi fylkingar
og Heiði að baki.
Eldri menn hér um slóðir halda
því fram að fyrst svona veður brast
á eftir páska, verði því ekki lokið
fyrr en á sumardaginn fyrsta. Þá
hefur menn ennfremur dreymt fyrir
slíku og skulu engar slíkar spár
rengdar, enn sem komið er.
- SHÞ
BRÚÐULEIKRITIÐ Snyörbita-
saga verður sýnt á morgun,
sunnudag, á Fríkirkjuvegi 11 og
hefst sýningin klukkan 15.
Aðgöngumiðar^ verða seldir á
sama stað. Salan hefst klukkan 13
á morgun og veittar verða upplýs-
ingar um sýninguna frá klukkan
13 til 14.30.
í byggingamefnd Úlfljótsskála
era Haraldur Hannesson formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, Haukur Pálmason aðstoð-
arrafmagnsstjóri og Þorvaldur S.
Þorvaldsson forstöðumaður Borg-
arskipulags. Hönnuðir hússins era
arkitektarnir Þorvaldur S. Þor-
valdsson, Jón Þ. Þorvaldsson og
Kristján Ásgeirsson ásamt Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen.
(Fréttatilkynning)
Flskverö á uppboösmörkuðum 15. apríi.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Heesta Lsegsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verðfkr.)
Þorskur 43,00 36,00 41,08 36,741 1.509.361
Þorskur(óst) 41,00 35,00 40,08 27,454 1.100.402
Ýsa 68,00 51,00 57,98 10,301 596.774
Ýsafósl.) 69,00 68,00 68,67 1,200 82.400
Keila 14,00 14,00 14,00 1,130 15.820
Karfi 19,00 15,00 17,90 0,730 13.070
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,933 14.005
Lúða 201,00 189,00 196,57 0,280 55.137
Annað 24,14 3,782 91.320
Samtals 41,89 82,553 3.458.389
Selt var aðallega úr Jóni Vfdalfn ÁR. Nk. mánudag verður m.a.
selt úr Ymi HF.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Þorskur 42,00 35,50 40,60 38,636 1.668.740
Ýsa 61,60 40,00 60,93 12,466 634.931
Steinbítur 12,00 12,00 12,00 0,400 4.800
Langa 15,00 15,00 16,00 0,700 10.500
Karfi 10,00 10,00 10,00 0,300 3.000
Keila 15,00 12,00 13,50 0,400 5.400
Skarkoli 26,00 25,00 25,35 0,307 7.782
Ufsi 18,00 8,00 13,09 2,750 36.000
Samtals 40,59 55,959 2.271.153
Selt var aöallega úr Geir RE, Dröfn RE og Sæborgu GK. ( dag
verður selt úr dagróðrabátum ef á sjó gefur.
QENQISSKRÁNINQ Nr. 72. 15. apríl 1988
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gangl
Oollari 38,67000 38,79000 38,98000
Sterlp. 72,68600 72,91200 71,95700
Kan. dollari 31,35600 31,45300 31,37200
Dönsk kr. 6,04170 6,06050 6,09920
Norsk kr. 6,24260 6,26200 6,21340
Saensk kr. 6,59340 6,61380 6,60060
Fi. mark 9,70150 9,73160 9,71100
Fr. franki 6,85180 6,87310 6,88450
Belg. franki 1,11070 1,11420 1,11630
Sv. franki 28,14410 28,23140 28,26280
Holl. gyllini 20,71180 20,77610 20,80040
V-þ. mark 23,24620 23,31830 23,36370
It. lira 0,03132 0,03142 0,03155
Austurr. sch. 3,30800 3,31820 3,32520
Port. escudo 0,28400 0,28490 0,28500
Sp. peseti 0,34740 0,34840 0,35000
Jap. yen 0,31198 0,31295 0,31322
Irskt pund 62,06000 62,25200 62,45000
SDR (Sérst.) 53,62910 53,79550 53,84110
ECU, evr. m. 48,23310 48,38280 48,38780
Tollgengi fyrir apríl er sölugengi 28. mars
Sjálfvirkur 62 32 70. símsvari gengisskráningar er