Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
36
RAÐSTEFNA UM ATVINNUMALI NORÐUR-ÞINGEYJARSYSLU
Jarðhiti í Norður-Þingeyjarsýslu:
Gnótt góðs ferskvatns til fisk-
• •
eldis finnst víða í Oxarfirði
Iðnþróunarfélag Þingeyinga
gekkst fyrir ráðstefnu um
síðustu helgi á Raufarhöfn um
atvinnumál í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Þorvaldur Vestmann
stjórnarformaður félagsins setti
ráðstefnuna á laugardag og í
kjölfarið voru flutt erindi um
úttekt atvinnumála, rekstur Fisk-
iðju Raufarhafnar og úrvinnslu
sjávarafla. Sunnudagurinn fór í
að ræða ferðamál í héraðinu, þá
var rætt um fiskiræktarmögu-
leika, framleiðslugetu jarðhita-
svæða og möguleika á nýtingu
jarðhita. Þrátt fyrir mikla ófærð,
komust allir framsögumenn á
leiðarenda og fjórir þingmenn,
en veður hamlaði mikið aðsókn
að ráðstefnunni.
Þrjárjarðgtifustöðvar
Sverrir Þórhallsson yfírverk-
fræðingur Orkustofnunnar sagði að
um 30% af orkunotkun Islendinga
væri jarðhiti, svipað hlutfall væri
af olíuvörum, en um 40% væri
vatnsorka. Óvíða væri að finna fjöl-
breyttari jarðhitanýtingú þó svo að
jarðhiti sé nýttur í 35 þjóðlöndum,
enda státuðu íslendingar af hvað
lengstri sögu slíkrar nýtingar.
„Víðast hefur höfuðáherslan verið
lögð á raforkuframleiðslu og eru
nú alls starfandi 188 jarðhitaraf-
orkuverk í 17 þjóðlöndum með að
afli um 4.763 MW, en þar af eru
hérlendis þrjár jarðgufustöðvar sem
framleiða um 41 MW.“
Sverrir sagði að fjölbreytni svo-
nefndrar beinnar jarðhitanýtingar,
þ.e. hitunar, væri mikil. Kröfur um
hitastig jarðhitavökvana skiptu
meginmáli við athugun á nýtingar-
valkostum. A landinu er hvergi
' ódýrara hitaveituvatn né jarðgufa
en í Þingeyjarsýslu og má í því
sambandi nefna Húsavík og Bjam-
arflag. Sverrir sagði jafnframt að
óvíða væru landkostir betri til fisk-
eldis en einmitt í Öxarfirði. „í hug-
um margra eru tæki sem nýta jarð-
gufu frábrugðin hefðbundnum
tækjum. Óverulega aðlögun þarf
yfirleitt að gera í efnisvali og til
lögunar gastegunda til að hægt sé
að nota venjuleg framleiðslutæki
sem nýta ketilgufu. Risastór gróð-
urhús til blómaræktar, allt að 22
hektarar, hafa nýlega verið reist á
Ítalíu og sérstök baðmenning Jap-
ana byggist á jarðhitaorku."
Enn margt á huldu
Lúðvík S. Georgsson deildarverk-
fræðingur hjá Orkustofnun sagði
að í Norður-Þingeyjarsýslu væri
jarðhiti næstum allur bundinn við
Öxarfjarðarhérað. Niðri á láglendi
finnst jarðhiti víða á yfírborði, allt
frá Skeiðsöxl á Tjömesi í vestri, til
Brunnár í austri. Hér er bæði um
að ræða 'sjálfstæð hitasvæði og
volgt lindarvatn sem að uppistöðu
er kalt grunnvatn sem blandast
hefur afrennslisvatni frá hitasvæð-
úm inni á heiðum. Rannsóknir und-
'anfarinna ára hafa varpað nokkru
ljósi á jarðhitann í Öxarfirði þó enn
sé margt á huldu. „Jarðhitasvæðum
á íslandi er yfirleitt skipt í háhita-.
svæði og lághitasvæði. Háhita-
svæðin em bundin við gosbeltið og
virkar megineldstöðvar. Þau eru
staðbundinn uppstreymisstrókur
grunnvatns yfír heitum kvikuinn-
skotum og djúphiti yfir 200 gráð-
um. Lághitasvæðin eru kaldari og
fá vatn langt að frá úrkomusvæðum
inni á hálendi. Vatnið leitar djúpt
í berggrunninn og hitnar í samræmi
við ríkjandi hitaástand og leitar svo
upp á yfírborð niðri á láglendi, oft-
ast um sprungur eða bergganga.
Öflugustu lághitasvæðin fínnast
gjaman við jaðra gosbeltisins.
Þijú sprungubelti
í Öxarfirði
Um Öxarfjarðarhérað liggja þrjú
sprungubelti. Öll tengjast þau virk-
um eldstöðvakerfum en yfirborðs-
,eldvirkni virðist þó ekki ná niður á
láglendið. Engu að síður ráða þessi
sprungubelti miklu um tilkomu og
dreifíngu jarðhitans í héraðinu og
reyndar um allt grunnvatnsstreymi.
Öflugustu jarðhitasvæðin eru innan
Kröflusprungubeltisins. í byggð er
mestur hiti á yfirborði við Skógalón
og á austurbakka Bakkahlaups, en
töluverður hiti er einnig við Skóga.
Rannsóknir benda til að á austur-
bakka Bakkahlaups sé háhitasvæði,
6-7 km2 stórt og flangt til norðurs.
Efnagreiningar á jarðhitavökvan-
um hafa ekki gefíð óyggjandi svör
um hita í djúpkerfinu en líklegt
verður að telja að hann sé vel yfir
200 gráður. Þá virðist jarðhita-
svæðið við Skógalón einnig vera
mjög öflugt. Hvort þar er háhiti er
óvíst en efnagreiningar gefa til
kynna að djúphiti sé a.m.k. 130
gráður. Þessi hitasvæði eru einstök
á íslandi því að þau koma upp í
setlagastafla sem er a.m.k. 1 km
þykkur, en allur annar jarðhiti kem-
ur upp í berglagastafla. Inni á heið-
um, í Gjástykki, má víða fínna guf-
ur. Þar er talið vera háhitasvæði
en næsta lítið er vitað um það og
engar rannsóknir hafa verið gerðar
þar. í Keldunesi. kemur hinsvegar
fram mikið af volgu lindarvatni í
gjám og uppsprettum við hraun-
brúnina. Þama er auðsæilega á
ferðinni grunnvatn sem komist hef-
ur í snertingu við eða blandast af-
rennsli frá jarðhitanum í Gjá-
stykki."
Lúðvík sagði að í Lónum, þar sem
Þeistareykjasprungubeltið kemur
niður á láglendi, sprytti einnig fram
feiknamikið af volgu vatni í gjám
og lindum. Trúlega væri þetta af-
rennsli frá háhitasvæðinu á Þeista-
reykjum. Jafnframt hefði fundist
töluverður jarðhiti í Ytra-Lóni nærri
ströndinni, en ekki væri enn ljóst
hvers eðlis hann væri. Heimildir eru
um 82 gráðu hita þar og í laugum
í Skeiðsöxl hefði mælst allt að 49
gráðu hiti. Utan Öxarfjarðarhéraðs
væri vitað um jarðhita á tveimur
stöðum í sýslunni. Báðir staðirnir
væru í Svalbarðshreppi í Þistilfirði.
Hiti væri þar á bilinu 20-30 gráð-
ur, en rennsli ekki mikið.
Fiskiðnaðurinn er dæmi-
gerður aukaafurðaiðnaður
- segir Sigurjón Arason hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
VIÐ framleiðslu fiskflaka fellur
um það bil 60% af þunga fisksins
undir skilgreininguna aukaaf-
urðir og við rækjuvinnslu 75%
eða meira. Nokkur hluti þessara
aukaafurða er nú nýttur og þá
helst í dýrafóður, annað hvort
frystur eða sem hráefni til mjöl-
og lýsisvinnslu. Alltof mikið er
þó meðhöndlað sem úrgangur,
sem annað hvort er kastað í sjó-
inn, eða er ónýttur á annan hátt,“
sagði Sigurjón Arason frá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins sem
ræddi um úrvinnslu sjávarafla.
Fiskiðnaðurinn er því dæmigerð-
ur „aukaafurðaiðnaður". Sigutjón
sagði að samkeppnin um hráefnið
á milli fiskvinnslugreina kæmi til
með að aukast á riæstu árum og
þær vinnslugreinar sem yrðu ofan
á í samkeppninni borguðu hæsta
verð fyrir hráefnið. Það myndi ráð-
ast mikið af markaðsverði og
vinnslukostnaði. Stöðugleiki mark-
aðsins réði einnig um val vinnslu-
greina og ætti það sérstaklega við
um vinnslugreinar sem fælu í sér
miklar fjárfestingar í búnaði.
„Einkenni fiskiðnaðar okkar er
að meginhluti aflans er fluttur út
sem hráefni til frekari vinnslu. Þar
með er ég ekki að segja að „full-
vinnsla" sé eitthvert töfraorð. Við
eigum að sjálfsögðu að selja okkar
físk þannig að sem mest fáist fyrir
hann, jafnvel þótt hann sé alveg
óunninn með innyflum og haus. En
þessi hráefnisútflutningur hefur
sett ákveðið mark á atvinnugreinina
hér á landi. Fyrir vikið hefur hún
orðið fábrotin og jafnvel einhæf.
Þetta hefur leitt til þess að allar
breytingar á framleiðsluháttum og
aðlögun að nýjum mörkuðum hafa
orðið þungar í vöfum. Við höfum
orðið framleiðslusinnaðir í stað þess
að vera markaðssinnaðir," sagði
Siguijón í erindi sínu.
Hann sagði að hægt væri að
framleiða gömlu afurðimar með
nyju sniði og gott dæmi um þá þró-
un væri tandurfiskurinn hjá SÍF.
Tandurfiskurinn sýndi að hægt
væri að þróa nýja vöru í hinni alda-
gömlu grein og skila árangri. „Með-
ferð físks um borð ræður miklu um
gæði afurðanna. Kaupendur okkar
á frystum fiski og söltuðum gera
ráð fyrir að fá fisk sem er blæfal-
legur, laus við los og efnislega
óskemmdur. Meðferð um borð í
veiðiskipi ræður miklu um þetta.
Allir vita að. dauðblóðgaður fískur
verður blædökkur en lengi hafa
verið áhöld um hvort lifandi fisk
skuli blóðga og slægja í einni að-
gerð eða tveim. Núgildandi reglu-
gerð kveður á um að bolfísk skuli
ekki slægja fyrr en honum hefur
blætt út. Nýlegar rannsóknir hafa
óyggjandi sýnt að mestu máli skipt-
ir að fiskurinn sé látinn liggja í
rennandi sjó nokkra sund að aðgerð
lokinni og skiptir þá litlu máli hvort
blóðgun og slæging voru ein aðgerð
eða tvær. Miðað við ferskfiskmat
fóru 98% físksins í fyrsta flokk ef
hann var látinn liggja í vatni, en
aðeins 52% hans ef vatnsböðun var
lítil sem engin.“
Siguijón sagði að þær greinar
innan sjávarútvegsins, sem nú væru
hvað umfangsmestar, yrðu það
áfram á næstu árum, en trúlega
meira sérhæfðar og sjálfvirkari.
Nýting vinnsluvéla og hráefnis yrði
að aukast í landi og kæmi þá til
greina að hafa vaktavinnu í físk-
vinnslunni sem myndi lækka
vinnslukostnaðinn. „Stórir liðir í
kostnaðinum eru Qármagnskostn-
aður og raforka sem lækka mest
við lengingu vinnslutímans. Til þess
að fyrirtæki geti staðið undir mik-
illi íjárfestingu þurfa þau mikið
hráefni þannig að fjármagnskostn-
aður á hvert kfló af framleiddri
afurð verði í lágmarki og afurðir
samkeppnisfærar á erlendum fisk-
mörkuðum.
Fiskvinnslustöðvar eiga eftir að
breytast og verða að fjölvinnsluver-
um þar sem hægt er að vinna físk
í fjölbreyttar afurðir. Vinnsluverin
breyta um vinnsluferil eftir hag-
kvæmni og breytingu á mörkuðum.
Meiri sérhæfing verður í sumum
fískvinnsluverum bæði hvað varðar
físktegundir og vinnslu.“ Siguijón
sagði að hægt væri að vinna ýmis-
legt úr þeim aukaafurðum er féllu
til hliðar við hefðbundna fískvinnslu
svo sem fiskmaming og surimi.
Hægt væri að nýta innyflin í fóður
eða sundurgreina þau í einstök
líffæri. Horfur væru á því að í
framtíðinni yrði einhver markaður
fyrir sundurgreind innyfli, það er
að lifur, hrogn og svil verði soðin
niður, fryst eða söltuð, en afgangur-
inn verði seldur til ensímgerðar. Þá
sagði hann að um 50% af þorsk-
hausnum væri fiskhold og væri til
mikils að vinna ef tækist að nýta
þá til manneldis. Nýting á hausun-
um í „fés“ hófst fyrir nokkrum
árum en í þeirri framleiðslu eru
hausamir kinnaðir og gellaðir. Af-
urðin er síðan söltuð og seld til
Suður-Evrópu. /
Fasteignir á
AKUREYRI
vaxandi bær
-VI---
EIGNAKJ0R
Fnstelgnasala Hafnarstrœti 108.
Slmi 26441
AKURGERÐI. Raöhús á tveimur
hæöum 149 fm.
GRUNDARGERÐI. Raðhús á
tveimur hæöum 128 fm.
HEIÐARLUNDUR. Raöhús á
tveimur hæöum 118 fm.
RIMASÍÐA. Raöhús á einni hæö
+ bílsk. 135 fm. Skipti á íb. í Rvk. æskil.
RIMASÍÐA. Raöhús á einni hæö
113 fm.
STEINAHLÍÐ. Fokheld raöhús á
tveimur hæöum + bílsk. 180 fm.
HJALLALUNDUR. íbúöir í
fjölbhúsi meö lyftu.
'Æl Fasteignasalan
Brekkugötu 4,
Simi 21744.
Opið alla virka daga frá kl. 9-18.
Gunnar Sólnes hri., ión Kr. Sólnes hri.
og Árni Pálsson hdl.___
Sýnishorn úr söiuskrá:
Steinahlíð: Mjög gott raöhús á
tveimur hæöum meö rúmg. bilsk.
Hamarsstígur: Mjöggóðsér-
hæð ásamt grunni að bilsk. ib. er
rúml. 200 fm.
Höfðahlið: Góö sérh. um 133 fm.
Helgamagrastræti: Fok-
helt mjög gott einbhús ásamt bilsk.
Sölustj. Sævar Jónatansson.
&
Fasteigna-Torgið
Geislagötu 12, Akureyri
Simi: 21967
Sölustj. Bjöm Kristjánss.
Opið frá 13-19 alla daga
RIMASÍÐA: 150 fm einb. á einni
hæð ásamt 36 fm bilsk. Lóð
frág. Eign í sérfl. Skipti á eign
í Reykjavík koma til greina.
JÖRVABYGGÐ: 252 fm einbhús
á einni hæð með tvöf. bílsk.
Fullb. að mestu. Góð lán geta
fylgt. Ýmis skipti mögul.
HEIÐARLUNDUR: 118 fm raðh.
á tveimur hæðum. Mögul. skipti
á eign á Reykjavíkursvæðinu.
GOTT FYRIRTÆKI í fullum
rekstri í eigin húsnæði. Selst
með eða án húsnæðis. Uppl. á
skrifst.
Heimasími sölustj. 96-21776.
Kodak
Express
litframköllun
^PediSmyndirz
Hafnarstræti 98 - Sími 96-23520
Verslun í sérflokki
Til sölu er sérverslun í miðbæ Akureyrar.
Um er að ræða lager ásamt tilheyrandi
innréttingum. Góð viðskiptasambönd
fylgja. Verslunin er í öruggu leiguhúsnæði.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4,
Simar 21744