Morgunblaðið - 16.04.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
41
Minning:
Krislján Skarphéð-
insson, Sauðárkróki
í dag verður gerð útför Kristjáns
Skarphéðinssonar, kaupmanns á
Sauðárkróki. Kristján var kominn
af merkum borgfirskum ættum og
fæddist 1. júlí 1922. Hann lærði
ungur bifvélavirkjun og fluttist til
Sauðárkróks, þar sem hann starfaði
síðan, .fyrst sem bifvélavirki og
verkstæðisformaður, en gerðist
síðar verslunarstjóri og kaupmaður
í Matvörubúðinni, og þar starfaði
hann síðan í mörg ár eða þar til
kallið kom svo skyndilega.
Kristján var mikill félagsmála-
maður. Lengi starfaði hann í Leik-
félagi Sauðárkróks, og um langt
skeið var hann helsti forvígismaður
leiklistar á staðnum, og lék iðulega
helstu hlutverk í ýmsum meiri hátt-
Áskorun til mennta-
málaráðherra:
Sjónvarpssend-
ingar til flot-
ans verði efidar
OPINN fundur um skólamál,
haldinn í Vestmannaeyjum á veg-
um kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurlandskjördæmi,
samþykkti samhljóða að beina
þeim tilmælum til menntamála-
ráðherra, Birgis ísleifs Gunnars-
sonar, að hann sem æðsti yfir-
maður Ríkisútvarpsins beiti sér
í þvi réttindamáli sjómanna að
þeim verði unnt að ná útsending-
um sjónvarpsins á miðunum
hringinn í kringum landið.
ar leikverkum við mikla hrifningu
áhorfenda.
Hann rak samkomuhúsið Bifröst
um árabil og var þátttakandi í
ýmsum klúbbum og félögum á
staðnum og það átti vel við hann
að gera úr garði skemmtidagskrár.
Kristján gerðist stofnandi Golf-
klúbbs Sauðárkróks árið 1972 og
var lengst af í stjóm þess félags-
skapar. Hann tók drjúgan þátt í
þeirri vinnu, sem þurfti að inna af
hendi við gerð golfvallarins og það
eru ófá handtökin sem hann og fjöl-
skylda hans gerðu til að fegra og
bæta golfskála félagsins. Auðséð
var að Kristján naut útivistar á
golfvellinum í ríkum mæli, en
frístundir frá skyldustörfum voru
takmarkaðar og því tók hann
sjaldnar þátt í mótum og æfíngum
en annars hefði orðið.
Kristján er tvíkvæntur. Fyrir
konu sína, Margréti, missti hann
eftir fárra ára sambúð. Fyrir um
það bil 15 árum kvæntist hann aft-
ur Emu Jónsdóttur og með henni
átti hann einn son, sem ber nafnið
hans, Kristján Grétar.
Biéjum við þess, sem að þessu
greinarkomi stöndum, góðan guð
að styrkja þau mæðginin á þessari
sorgarstundu.
Nú er skarð fyrir skildi, en við
sem kynntumst honum minnumst
margra ánægjulegra stunda með
honum, og geymum minningu um
góðan félaga.
Félagarnir í Golf-
klúbbnum á Sauðárkróki.
t
Elskulegur sonur okkar og bróöir,
VILHJÁLMUR BIRGISSON,
Ástúni 14,
er lést af slysförum 2. apríl, verður jarðsunginn mánudaginn 18.
apríl frá Kópavogskirkju kl. 13.30.
Birgir Brynjólfsson, Victoria Vilhjálmsdóttir,
Brynja Birgisdóttir,
Anna Maria Birgisdóttir,
Jóhanna Ruth Birgisdóttir.
Systir mín, t MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR
kaupkona versluninni Vik,
Reykjavfk,
er látin. Ólafur Þ. Þorsteinsson, læknir, Siglufirði.
t
Eiginkona mín,
ÞURÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Ljósheimum 18A,
Reykjavík,
lést i öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10B 5. apríl sl.
Jarðarförin hefur farið fram i kyrrþey.
Kristján Sylveriusson.
t
Systir okkar,
HALLFRÍÐUR ÞORVARÐARDÓTTIR,
Stóragerði 12,
Reykjavík,
lést í Landakotsspítala 12. april sl.
Systkinin frá Bakka, Kjaiarnesi.
t
Móðursystir mín, PÁLÍNA JÓNASDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð,
vefður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Dvalarheimilið Hlíð. Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Sigtryggsson.
i I 1 ■ IJ. ■ ’
■ —. mj »** ‘
m
4000725+
20<
005060+
Gulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns.
1111 >Í2$,\sii
BUNAÐARBANKI ISLANDS
Frumk.væúiffijiraust ., ..
ÉHtt