Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
43
Sléttuhlíðar fyrir raforku. Á Siglu-
fírði búa um 1.900 manns.
Orkuframleiðsla rafveitunnar var
á síðasta ári 19 milljónir kílówatt-
stunda.
Starfsmannafjöldi rafveitunnar er 9.
Opið hús verður í Skeiðsfossvirkj-
un í Fljótum, varastöðinni á Siglu-
fírði og á verkstæði rafveitunnar í
Grundargötu.
Rafveita Akureyrar
Árið 1921 var hafíst handa um
virkjun Glerár og verkinu lokið rúmu
ári síðar. í Glerárstöðinni voru 2
vatnsaflsvélar. Síðar var bætt við
dieselvél sem var 165 hestöfl.
Fyrst var hleypt straumi á kerfí
rafveitunnar 30. september 1922.
Raforkusalan á síðasta ári var
um 100 milljónir kílówattstunda.
Starfsmannafjöldi er 35—40 og
notendur um 6.600.
Opið hús verður í aðveitustöð I
við Þingvallastræti og á verkstæði
rafveitunnar.
Rafveita Reyðarfjarðar
Árið 1930 var Búðarárvirkjun
virkjuð og reist 200 hestafla jafn-
straumsstöð. Árið 1958 var breytt
úr jafnstraumi í riðstraum er raf-
veitan tengdist samveitu Rafmagns-
veitna ríksins.
Raforkusalan var á síðasta ári
um 12 milljónir kílówattstunda.
Sala til upphituna hefur aukist mik-
ið undanfarin ár og er nu um 60%
af heildarsölu.
Fastur starfsmaður er 1 og íbúar
á Reyðarfírði eru um 730.
Rafveitan hefur opið hús í Raf-
stöðinni.
Rafveita Selfoss
Rafveita Selfoss var stofnuð árið
1947. Rafveitan kaupir raforku frá
Rafmagnsveitum ríksins og dreifir
henni um Selfossbæ. Þar að auki
sér rafveitan um rekstur Rafveitu
Hveragerðis, Rafveitu Eyrarbakka
og Rafveitu Stokkseyrar.
Raforkusalan á síðasta ári var
um 17 milljónir kílówattstunda.
Starfsmenn eru 7 og notendur
um 1.600.
Rafveitan verður með opið
áhaldahúsið á Eyrarvegi 39.
Rafveita Stokkseyrar
og Eyrarbakka
Rafveitumar fengu rafmagn frá
Sogsvirkjun 1946 en höfðu um ára-
bil verið reknar með dieselvél. Á
síðasta ári voru þær samreknar með
Hitaveitu Eyra. Orkuveitusvæði
veit-unnar eru þorpin sjálf og kaup-
ir hún raforku af Rafmagnsveitum
ríkisins.
Raforkusalan á síðasta ári var
um 11 milljónir kílówattstunda.
Fastir starfsmenn eru 3 og íbúar
svæðisins um 1.050.
Opið hús í húsi hitaveitunnar á
Eyrarbraut 49.
Rafveita Vestmannaeyja
Rafveita Vestmannaeyja tók til
starfa 1915. Rafveitan kaupir raf-
orku af Rafmagnsveitum ríkisins
og er orkan flutt til Eyja í gegnum
2 sæstrengi. Sá fyrri var lagður
1962 og getur flutt 7 milljónir watta
(MW) og sá síðari var lagður 1978
og er flutningsgeta hans 27 MW.
Einnig hefur rafveitan um 4,8 MW
í dieselstöðvum.
Raforkusalan á síðasta ári var
um 39 milljónir kílówattstunda.
Starfsmannafjöldi er 13 og íbúar
Vestmannaeyja um 4.700.
Rafveitan verður með opið hús
og verða vélasalur, aðstaða og að-
veitustöð á Skildingarvegi opin.
Hitaveita Suðurnesja
Með sameiningu Hitaveitu Suður-
nesja og rafveitna sveitarfélaga á
Suðumesjum árið 1985 urðu að
veruleika þær hugmyndir að hita-
veitan sæi um alla orkusölu og dreif-
ingu á svæðinu. Orkuveitusvæði
hitaveitunnar er allur Reykjanes-
skaginn.
Orkuverið í Svartsengi framleiðir
um 50 milljónir kílówattstunda á
ári til dreifíngar á dreifineti veit-
unnar.
Starfsmenn eru 70 og notendur
um 20.000.
Hitaveita Suðumesja hefur opið
orkuverið í Svartsengi.
Stykkishólmur:
Opið hús hjá Rafmagns veitunni
Húsakynni Rafmagnsveitna ríkisins i Stykkishólmi.
Stykkishólmi.
NÚ STENDUR yfir norrænt
tækniár og í tilefni af því verður
opið hús hjá Rafmagnsveitum
ríkisins i Stykkishólmi á morgun
milli kl. 14 og 17. Svo verður
einnig víða um land. Starfsemi
fyrirtækisins verður kynnt og
spurningum fólks um starfsem-
ina svarað. Fréttaritari átti stutt
samtal við Ásgeir Ólafsson for-
stjóra RARIK i Stykkishólmi nm
starf hans og Rafveitunnar.
„Það má segja að stærsta átak
í raforkumálum Stykkishólms hafí
verið 1948 þegar stór rafstöð þess
tíma var reist hér, en áður höfðu
systumar á sjúkrahúsinu rekið litla
stöð til ljósa, sem knúin var olíu.
RARIK kemur svo inn í dæmið
1958 og kaupir rafstöðina af
hreppnum. Olíukyndingu var hætt
að mestu en lína frá vatnsorkustöð-
inni í Ólafsvík tengd. Síðan var 66
kW lína byggð árið 1974 frá Vatns-
hömrum í Borgarfírði, vestur Mýrar
að Vegamótum og árið eftir lögð
lína yfír Kerlingarskarð að Voga-
skeiði við Stykkishólm. Þá má segja
að varanleg raforka hafí komið
hingað. Nú eru úrtök á Vesturlandi
í aðveitustöðvum byggðalínu í
Brennimel á Hvalfjarðarströnd,
Vatnshömmm í Borgarfírði og
Glerárskógum í Dölum. Hér er svo
svæðisskrifstofa fyrir Vesturland
og um leið birgðastöð.“
Þessari skrifstofu stýrir Ásgeir.
Við ræddum saman um raforku-
verðið. „Það er vissulega þess vert,“
segir Ásgeir, „og þörf umræða, en
málið er við hvað er miðað. Ef við
miðum við Hitaveitu Reykjavíkur
eða olíuverð þá er húshitunarverð
RARIK óhagstætt en ef við miðum
við heildsöluverð Landsvirkjunar á
raforku þá er verð RARIK til hús-
hitunar mjög hagstætt. Vandamálið
er verð Landsvirkjunar. En þrátt
fyrir þetta leggur RARIK 17 aura
með hverri kWst sem það selur við-
í TILEFNI 60 ára afmælis Iðn-
skólans í Hafnarfirði verður opið
hús hjá skólanum í dag, laugar-
daginn 16. apríl, frá kl 11 til 15.
Skólinn er til húsa á tveimur
stöðum, Reykjavíkurvegi 74 og
að Flatahrauni (verknámið).
Kennarar og nemendur taka á
móti gestum og fræða þá um nám
skiptamönnum sínum. Þetta er stór
peningur miðað við að sl. ár nam
þessi upphæð 50 milljónum. Ég hef
til gamans tekið til athugunar verð
á raforku. Miðað við 400 rúmmetra
og störf í skólanum.
Mest aðsókn er í hár- og raf-
magnsiðnir og tækniteiknun. Skól-
inn er í fararbroddi í kennslu í tölvu-
stýrðum vélum og tölvuteikningu.
í skólanum stunda nú 160 nem-
endur nám í dagskóla og 12 nem-
endur stunda meistaranám í kvöld-
skóla. Kennarar og leiðbeinendur
hús til upphitunar, 3.500 kW til
heimilisnota kosta jafnmikið og að
reykja 32,3 sígarettur á dag og þá
sjá menn að það er ekki sama við
hvað er miðað.“ — Ámi
eru 22, nokkrir þeirra í hlutastörf-
um.
Skólastjóri er Steinar Steinsson,
tæknifræðingur. Fyrsti skólastjóri
Iðnskólans í Hafnarfírði var Emil
Jónsson, fyrrverandi ráðherra.
(Fréttatilkynning)
Hafnarfjörður:
Opið hús hjá Iðnskólanum