Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
Gerður Björgmunds-
dóttir—Minning
Fædd 25. maí 1945
Dáin 7. aprfl 1988
Hún er konan sem kyrrlátust fer
og kemur þá minnst þig varir,
og les úr andvaka augum þér
hvert angur, sem til þín starir.
(Tómas Guðm.)
Ekki hvarflaði að okkur þegar
Gerður kom til mín f janúar að við
ættum ekki eftir að lifa saman fleiri
sumur, en sorgin kemur þá minnst
varir.
Gerða var fædd á Kirkjubóli f
Valþjófsdal 25. maí 1945 og var því
aðeins 42 ára. Hún var elsta bam
móður okkar, Ágústínu Bemharðs-
dóttur, og Björgmundar Guðmunds-
sonar, pabbi hafði áður eignast 3
böm, yngri eru 4 systkini. Gerða var
flórum ámm eldri en ég og var því
mín fyrirmynd í æsku. Hún varð
snemma fullorðin og var sérlega
myndarleg f verkum sfnum og ung
fór hún að sauma á okkur föt, m.a.
minnist ég fermingarkjólsins míns
sem hún saumaði.
Hún fluttist aðeins 18 ára gömul
austur á Stöðvarfjörð þar sem hún
hóf búskap með manni sínum, Krist-
jáni Grétari Jónssyni, sem hún hafði
kynnst á héraðsskólanum í Reykja-
nesi. Stóran hluta ævinnar bjó hún
langt í burtu frá okkur, en við dvöld-
um mörg systkinin hjá henni lengri
eða skemmri tfma og oft kom hún á
heimaslóðir með sína fjölskyldu og
var þá jafnan glatt á hjalla þegar
riQaðar voru upp bemskuminningar.
Gerða og Grétar eignuðust 5 böm:
Ágústu Björgu f. 1967, hún býr á
Akranesi ásamt unnusta sínum, Ás-
geiri Ásgeirssyni, og eiga þau einn
dreng; Drífu Jónu f. 1969, sem býr
á Eskifírði, hennar unnusti er Þor-
geir Heiðar Kristmundsson; Jón
Valdimar f. 1978, Steinunni Gerði
f. 1982 og Önnu Sigríði f. 1985.
Það var í febrúarmánuði sl. að
Gerður greindist með þann sjúkdóm
sem hún lést af og var hún send
suður á Landspftalann. Hún fékk
sfðan að koma heim 21. mars, daginn
fyrir 6 ára afmæli Steinunnar litlu
og vera með litla fólkinu sfnu fram
jrfír páska, en þá fórum við suður
aftur og sofnaði hún svefninum langa
rúmum sólarhring seinna. „Þeir sem
guðimir elska deyja ungir,“ er sagt,
við skiljum ekki hvers vegna hún var
kölluð svona snemma, en erum bara
þakklát fyrir að baráttan var ekki
lengri fyrst svona átti að fara og
biðjum Guð um styrk þeim til handa
sem eftir lifa.
Hafí elsku systir mfn þökk fyrir
allt.
Anna Kristín
Það er stór biti að kyngja þegar
svona ung kona kveður þetta líf f
miðju kafí, en kannski er engin furða
þótt almættinu hafí legið svo mikið
á að fá hana Gerðu til sín, eins ein-
stök og hún var.
Aldrei heyrði ég hana tala illa um
nokkum mann, og hún hafði þennan
sérstaka hæfíleika sem alltof fáum
eru gefnir að geta fundið skoplegu
hliðamar á öllum málum. Með æðru-
leysi sínu, hugrekki og húmor kenndi
hún mér og sjálfsagt mörgum öðrum
margt í sambandi við það að taka
þvf sem að höndum bar í tilverunni.
Það verður djúpt skarð þar sem
Gerður var, sem móðir, eiginkona,
systir, dóttir og ekki síst góður vinur.
Ég votta aðstandendum hennar,
þar sem ekkert verður eins og áður,
mína dýpstu samúð.
Bryndís Baldursdóttir
Hvert mannsbijóst á einhvem innsta róm,
sem orð ekki fann að segja.
Lffshlaupið er sem sólargangur-
inn. Þar skiptast á skin og skuggi,
enginn okkar kemst hjá því að
myrkvun sorgarinnar sæki á sálu og
skapi skammdegi f okkar innsta
umhverfi, í okkar innsta sjálfí.
En skugginn verður skelfílegur,
dimmur, kaldur og vanmáttarkennd-
in kæfír allar hlýjar tilfinningar til
tilverunnar, þegar samferðamaður á
miðjum starfsdegi — móðir ungra
bama og stálpaðra sem eru að hefja
starfsdag sinn — eiginkona og félagi
er kölluð burt og hverfur bak móð-
unnar miklu.
Skugginn sem skapaðist og varð
að niðamyrkri varð ekki numinn burt
— sjúkdómurinn ógnvænlegi hafði
sigrað.
Hver láir okkur þótt spurt sé og
efast um tilgang alls þessa, þótt vit-
undin um bjartari lffsvang sé huggun
í harmi — eru ómar efans í huga og
heym sárir.
efeuii
ÍMI
Seljum í dag noKKra notaða úrvals bíla
með 50.000 Kr. afelætti og lánaKjörum.
Opið frá Kl. 10-18.00 í dag.
En skáldið heldur áfram:
En þögn vora meistarinn dregur í dóm,
en dauðann knýr sér að hneigja.
Allt býr hann í liti, ljós og hljóm.
Láfsríkið hugimir eygja.
En jörðin öll er í eyði og tóm,
er ómamir síðustu deyja.
Gerður Bjamadóttir var fædd að
Kirkjubóli í Valþjófsdal, Önundar-
fírði, dóttir hjónanna Ágústínu Bem-
harðsdóttur og Björgmundar Guð-
mundssonar, bónda þar.
Á Kirkjubóli ólst hún upp f hópi
systkina sinna við hefðbundin sveita-
störf og leik.
Skólagangan hófst í Önundarfírði
en framhaldsnám sótti hún í Reykja-
nesskóla við ísafjarðardjúp. Þar
kynntist hún Kristjáni Grétari jóns-
syni frá Stöðvarfirði, sem upp frá
því var hennar samferðamaður.
Gerður fór ung úr föðurgarði með
sfnum samferðamanni og síðar eigin-
manni og stofnaði sitt heimili á
Stöðvarfírði, sem alla tíð bar merki
hugar og handar vestfírskrar ættar
og uppruna, sem Gerður var stolt af.
Gerður og Grétar byggðu stórt á
Stöðvarfírði og var ánægjulegt að
sjá hversu samtaka þau vora við þær
framkvæmdir, en stærst varð þó
bamalán þeirra, en þau eiga fimm
böm: Ágústa Björg f. 1967, Drífa
Jóna f. 1969, Jón Valdimar f. 1978,
Steinunn Gerður f. 1982 og Anna
Sigríður f. 1985.
Heimili þeirra var oft fjölmennt
af ættingjum og vinum, það virtist
alltaf vera pláss hjá Gerði og Grét-
ari. Gáski og glaðværð réðu þar löng-
um en festa húsmóðurinnar brást þó
aldrei bömum og búi. Hjá þeim var
gott að vera hvort sem stormur stóð
í fang eða tilveran var björt og blíð.
Þegar Grétar gerðist starfsmaður
RARIK árið 1971 sem rafveitustjóri
á Stöðvarfírði, Fáskrúðsfirði og
Breiðdalsvík varð Gerður ólaunaður
staðgengill hans við símavörslu,
skilaboðastjóri, svo nútimahugtak sé
notað. Skrifstofa RARIK var löngum
á heimili þeirra með öllu því ónæði
og átroðningi sem það olli. Heimili
þeirra var ávallt opið starfsmönnum
RARIK, kaffí á könnu eða máltfð á
diski var til reiðu dag og nótt.
Ég bar virðingu fyrir Gerði Björg-
mundsdóttur, hún var sönn dóttir
Vestfj'arða, . skapgerð og viðmót
hennar einarðlegt en hlýtt, dugur og
djarfhugur lýstu sér í orði og athöfn
— greind og skoðanaföst var Gerður
en lét aðra um sínar skoðanir.
Rafmagnsveitur ríkisins og starfs-
menn á Austurlandi vilja þakka allar
bjartar stundir, gestrisni og vináttu-
þel, sem Gerður veitti fyrirtækinu
og starfsmönnum þess.
Sjálfur vil ég kveðja með orðum
skáldsins:
En þar brástu vængjum á fagnandi fiug,
sem frostnætur blómin heygja.
Þar stráðirðu orku og ævidug,
sem örlög hvem vilja beygja.
- Mér brann ekkert sárar í sjón og hug,
en sjá þínar vonir deyja.
Kærar þakkir.
Grétari vini rnínum, bömum, for-
eldram og systkinum sendi ég hug-
heilar samúðarkveðjur, megi góður
Guð styrkja ykkur og víkja burt
dimmum skuggum sorgarinnar með
björtum minningum samferðartím-
ans.
Guð blessi minningu Gerðar Björg-
mundsdóttur.
Erling Garðar Jónasson
í héraðsskóla er félagslff og vin-
skapur skólasystkina með öðram
hætti en í öðram skólum.
Vestur í Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp var einangranin á áranum f
kring um 1960 líka meiri en hún er
í dag. Þar var því hópur sem kynnt-
ist býsna vel og var sem ein fjöl-
skylda sem sat í þríðja bekk veturinn
1961—62. En rétt eins og við komum
sitt úr hverri áttinni, þá fóram við
hvert sfna leið um vorið. Einhvem
daginn átti að hittast, setjast niður
og rifla upp góða daga. En að það
skyldi vera til að skrifa minningar-
grein um einn besta félagann úr
hópnum, er meir en lftið sárt.
Okkur fannst hún Gerða okkar
ennþá vera svo ung og svo margt
ennþá vera ógert. Við rétt byijuð að
lifa. Þegar við sitjum svo aftur sam-
an koma minningamar fram f hug-
ann og er þá af mörgu að taka,
þvottadagar með tilheyrandi þvotta-
bölum með nylonskyrtum, tfmamir
hjá séra Baldri, baráttan við túper-
ingar fyrir ógleymanlegar dansæf-
ingar, þar sem strákunum þótti hún
Gerða sýna einum unglingnum í 2.
bekk fullmikinn áhuga. Já, það var
í Reylqanesinu þennan vetur sem þau
Gerða og Grétar urðu par.
Seinna áttu sum okkar eftir að
njóta gestrisni og góðra stunda á
heimili þeirra á Stöðvarfirði. Við
söknum þess að það skyldi ekki hafa
verið oftar.
Elsku Grétar, við sendum þér og
bömunum ykkar okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur í ykkar miklu
sorg.
Guð blessi ykkur öll.
Gagnfræðingar úr
Reykjanesi vorið 1962.
I
Kynning á frönskum
hefðum við
ARINBYGGINGAR
BRAUTARHOLTI 33 - SfMI: 6212 40
Nú loksins hér á landi
ELDFASTAR FLÍSAR
ARINBÖK OG HUNDAR
TILBÚNIR ARNAR
Opið laugardag og sunnudag til kl. 17.00.
^BáÐIN ÁRMÚIA 17
Arnar & ca
0F
m
Sími 84585