Morgunblaðið - 16.04.1988, Side 53
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
53
Hafnarfjörður;
Bílbelti
bjargaði
í hörðum
árekstri
MJOG harður árekstur varð á
Reykjanesbraut á miðvikudags-
morgun þegar fólksbifreið lenti
fyrir stórri bifreið með tengi-
vagni. Kona, sem ók fólksbif-
reiðinni, var flutt á slysadeild,
en meiðsli hennar eru ekki al-
varleg. Þykir það með ólíkind-
um, vegna þess hversu harður
áreksturinn var og þykir
fullvíst að bílbelti hafi bjargað
konunni.
Slysið varð um kl. 8 á Reykja-
nesbraut, í svokallaðri Reykdala-
brekku, sem liggur upp með Kinn-
unum i Hafnarfírði, við kirkju-
garðinn. Konan ók bifreið sinni
niður brekkuna, en missti stjóm á
henni með þeim afleiðingum, að
bifreiðin skall utan í grindverki,
snerist og lenti fyrir stórri bifreið,
sem ekið var upp brekkuna. Stóra
bifreiðin, sem var með tengivagn
í eftirdragi, skall aftan á bifreið
konunnar, sem hlaut af nokkur
meiðsli, þó ekki alvarleg. Hún var
flutt á slysadeild, nokkuð skorin á
höfði. Bifreið hennar er gjörónýt.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
fírði þykir með ólíkindum að ekki
hafí farið verr og er talið fullvíst
að bílbeltið hafí bjargað konunni.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖQN
Mátt þú sjá af
332 krónum
á dag?*
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega létt og lipur í um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f, Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
*LANCIA SKUTLA kostar kr. 320þús.kr. stgr.
Útborgun kr.80.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr.10.113 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn. (Gengisskr. 15.338)
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLU!
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.
Hefizr Jþú liucjleitt
að með kaupum á Chevrolet Monza er peningum þínum
varið í rúmgóðan og ríkulega búinn fjölskyldubíl sem
hannaður hefur verið eins og fyrir íslenskar aðstæður?
Þú getur valið um fjórar mismunandi útgáfur afMonza,
allt frá Monza SL/E með 1,8 lítra vél, beinskiptingu og
vökvastýri til lúxusbílsins Monza Classic S/E með 2 lítra vél
og sjálfskiptingu, auk alls lúxusbúnaðar og meira að segja
fullkomnu þjófavarnarkerfi.
Mwmmm
Láttu ekki hjá líða að reynsluaka
Chevrolet Monza áður en þú
gerir bílaka upin.