Morgunblaðið - 16.04.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
55
SUSKE OG VISKE
Heljur úr
belgískri
teiknimynda-
söguá
Islandi
Frá Kristófer Má Kristinssyni
í Brussel.
Framar öðrum þjóðum hafa
Belgar dálæti á teikni-
myndasögum, enda eru flestir
frægir Belgar hetjur af því
tagi. Nægir að minna á hinn
síunga Tinna, Strumpana,
Sval og félaga og Viggó viðut-
an. Á þessu vori bætast að
líkindum í þennan hóp belgí-
skra innflytjenda til íslands,
Suske og Viske.
í nóvemberhefti síðasta árs
brugðu hetjumar Suske og
Viske sér til íslands, komu við
í flugstöð Leifs Eiríkssonar þar
sem Davíð Oddsson tók á
móti þeim, áttu stefnumót við
Hólmfríði Karlsdóttur sem
lagði stund á fóstrustörf í álf-
heimum og leystu samskipta-
vandamál álfa og trölla á ís-
landi á dæmigerðan belgískan
máta með því að kynna þeim
„belgískt spaghettí", það er
franskar kartöflur með til-
heyrandi sósujukki og treystu
þannig sambandið milli Belgíu
og íslands til langframa.
Paul Geerts, höfundur og
teiknari heftisins um ísland,
sagði í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins að sig hefði
alltaf langað til íslands vegna
þess að kunningjar hans sem
hefðu komið þangað rómuðu
mjög fegurð landsins og sér-
stöðu. Hann kvaðst ekki hafa
orðið fyrir vonbrigðum, ísland
væri með afbrigðum fagurt
land, kuldalegt og hlýlegt í
senn. Hann sagðist ekki hafa
farið til Islands með ákveðinn
söguþráð í huga. Hugmyndin
að sögunni hefði orðið til eftir
komuna til landsins þegar
hann hafði skoðað byggðasaf-
nið á Skógum og rætt við safn-
vörðinn þar, Þórð Tómasson,
sem fræddi hann meðal annars
um álfa og tröll.
Vettvangs teikningarnar
eru allar gerðar eftir ljósmynd-
um sem Paul Geerts tók í ís-
landsferðinni, sem meðal ann-
ars skýrir nákvæmni þeirra.
Tröll og álfa teiknaði hann
samkvæmt þeirri íslensku
reglu að álfar eru fallegir og
líkir mönnum en tröllin ljót.
Til að greina álfa frá mönnum
teiknaði hann uppmjó eyru á
álfana sem gerir þá framand-
lega Íslendingum. Teiknaran-
um er vorkunn að hafa prýtt
íslensku sauðkindina með hala
að hætti sauðíjár í heimahög-
um hans, hann er heldur ekki
sá fyrsti sem gerir þau mistök
sem varla teljst alvarleg.
íslandsferð Suske og Viske
mæltist vel fyrir í Belgíu, hef-
tið seldist í rúmlega 500 þús-
und eintökum og fékk góða
dóma. Heftin eru að sjálfsögðu
gefín út á flæmsku og frönsku.
Flæmska upplagið sem jafn-
framt er selt í Hollandi er um
450 þúsund eintök en það
franska 30 til 40 þúsund. Búist
er við því að fyrsta heftið um
Suske og Viske á íslensku
komi út í júní. Viðmælendur
fréttaritara í Belgíu töldu
líklegt að íslandsferðin yrði
þriðja eða fjórða heftið í röð-
inni. Paul Geerts sagðist von-
ast til að komast til íslands í
tilefni útgáfunnar þar.
Uártífjeautm
buiit its it rrftr
\ttrsJtmtnnfUil
ttrn ihmmiteiHn
L SUt/hfi
\titu, átl n it burpmmlrr nn
Ulf&tijéfí*. Bim oiiiwi
Vit ian avftrslf máruMn un
fMini. tr.ynhrtr umbth ?
X & ✓-v Jndrvhkrn7
JndruMÁm}
/ysÆcÁ ftp ntn n
thr m n Jinf *rf knvJj}
Itf Ml itJ
yf*uir wi msvr
rai rvuin tttmra,
aitntu t wra
rntutwt iuiimii
mrtimM'in lir
ttn níi nnc rnn
"fmsAχ
fLITs
Úr belgísku myndasögunni um Suske og Viske. Eins og sjá má hef-
ur teiknarinn komið til íslands.
Davíð Oddsson borgarstjóri býður ferðalanga velkomna til landaina
Flugstöð Leifs Eiríkssonar i belgískri teiknimyndasögu.
Jk nnuwe luihtharen m HejldnH
-catófc
NARSSARSSUAK
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR
bacon ísneiðum
hryggur í kótelettur
bógurí 1/1 steik
beinlaus hnakki í sneiðum
Lærið -1 /2 reykt í skinku
Pantid strax
25 kg = kr. 7.475,-
INNIFALIÐ í VERÐI:
Úrbeining, pökkun og merking, grills-
teik, bógsteik og hakk.