Morgunblaðið - 16.04.1988, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
61 -
Þessir hringdu . . .
Hjólreiðar barna
A.G. hringdi:
„Ég vil taka undir orð móður
sem skrifar í Velvakanda fyrir
skömmu og bendir á þá miklu
hættu sem böm eru í ef þau hjóla
út í umferðina. Strangari reglur
ættu að gilda um þetta og ábyrgð
foreldra er mikil að brýna fyrir
bömum sínum að fara varlega á
hjólunum."
Hanskar -
eyrnalokkur
Brúnir hanskar töpuðust á
Skólavörðustíg eða við Umferðar-
miðstöðina hinn 6. apríl. Einnig
tapaðist gulleymalokkur með
tveimur litlum steinum hinh 13.
mars við Loftleiðahótelið. Þeir
sem kynnu að hafa fundið þessa
hluti eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 31123.
BMX hjól
BMX reiðhjól með svörtu stelli
og gulum dekkjum hvarf frá KR
-heimilinu í desember. Ef að ein-
hver skyldi hafa orðið var við hjól-
ið er sá hinn sami vinsamlegst
beðinn að hringja í síma 17701.
Osmekklegar
teikningar
Anna Kristjánsdóttir hringdi:
Ég vil þakka Jóni úr Vör fyrir
hans góðu ábendingu til Morgun-
blaðsins í Lesbók þann 10. apríl
varðandi teikningar Sigmunds í
Morgunblaðinu. Ég er honum
hjartanlega sammála. Mér fínnst
þær í hæsta máta ósmekklegar
og oft alveg lausar við fyndni.
Mig hefur oft langað að segja
álit mitt á þessum teikningum en
fékk kjarkinn þegar ég las grein
Jóns. Og er ég honum þakklát.
Aths. ritstj.
Augljóst er að Morgunblaðið
er þeirrar skoðunar að myndir
Sigmunds eru sérstæðar og list-
rænar og spretta úr frjóu og ein-
stæðu hugmyndaflugi listamanns-
ins. Myndir Sigmunds eru því birt-
ar daglega hér í blaðinu og það
er skoðun blaðsins að þær séu
litrík viðbót við hversdagsgrá-
mann og því góð upplyfting í okk-
ar litla þjóðfélagi. Hitt er svo
annað mál að aldrei hafa allir eina
skoðun á öllum málum.
Norðurland vestra:
Staðsetning gjaldheimtu
Til Velvakanda.
Deilur standa um staðsetningu
opinberrar gjaldheimtu á Norður-
landi vestra. Tveir kaupstaðir,
Siglufjörður og Sauðárkrókur, eru
einkum nefndir.
Nefnd hefur komizt að þeirri nið-
urstöðu að Sauðárkrókur skuli
hreppa hnossið. Röksemd: Staður-
inn er mjðsvæðis í kjördæminu!
Hér er rétt að minna á byggða-
stefnuna. Hún gengur að megin-
efni út á það að tryggja rétt jaðar-
svæða gagnvart miðjusvæðum.
Byggðastefna á engu að síður rétt
á sér innan landshluta, kjördæma,
en á landsvísu.
Staðsetning gjaldheimtu á Sauð-
árkróki er byggð á röksemdum sem
ieitt hafa til staðsetningar nær allr-
ar opinberrar þjónustu á höfuð-
borgarsvæðinu, þvert á byggða-
sjónarmið. Siglfirðingar sækja sitt
mál með röksemdum byggðastefn-
unnar, rétti jaðarbyggða.
Því má heldur ekki gleyma að
Skattstofa Norðurlandsumdæmis
vestra er staðsett á Siglufírði. Ekk-
ert er eðlilegra en að hin hliðin á
þessu eina og sama fyrirbæri, skatt-
heimtunni, það er gjaldheimtan, sé
á sama stað. Það er rökrétt niður-
staða.
Með nútíma samgöngum, tölvu-
og símatengslum, skiptir vega-
Til Velvakanda.
Við höfum búið ásamt bömum
okkar hér í Reykjavík síðan í jan-
úar, þegar eiginmaður minn gerðist
gistiprófessor við Háskóla íslands.
Við eigum þegar margar góðar
minningar um vemna á íslandi og
fram til þessa hefur dvölin hér ver-
ið okkur og bömum okkar þrem
dásamleg reynsla.
En nokkuð hefur borið við sem
hryggir okkur mikið. Þegar við
vöknuðum á páskadagsmorgun
komumst við að því að bamavagn,
sem var fyrir utan húsið þar sem
við búum að Grettisgötu 63, hafði
lengdin milli Sauðarkróks og Siglu-
Qarðar engum sköpum um stað-
setningu gjaldheimtunnar. Niður-
stöður nefnda, sem settar em í eitt
og allt í landi okkar, hafa á stund-
um reynzt varhugaverðar, þótt
stuðst hafi við meðaltöl og miðju-
moð, sem dæmin sanna.
Það er í anda byggðastefnu að
styrkja jaðarbyggðir með staðsetn-
Til Velvakanda.
Allt bendir til þess að þátturinn
„Hvað heldurðu", sem að líkindum
hefur átt flesta glaða og ánægða
hlustendur vítt og breitt um allt land,
sé að missa gildi sitt. Ástæðan er
sú að óp og öskur yfírgnæfa svo að
útilokað er að fjarstaddir hlustendur
geti notið þess að fylgjast með því
sem fram fer. Þátturinn sem fluttur
var 28. febrúar frá Vestmannaeyjum
setti þó met í hávaða. Er ekki hægt
að stilla hér í hóf?
Sjónvarpið hefur illa bmgðist
þeim vonum sem við það vom bundn-
ar í upphafi. Ég er þess fullviss að
allur fjöldi fólks taldi víst að nú
kæmi tæki inná heimilið sem færði
þangað fróðleik af ýmsu tagi og
þess á milli létt skemmtiefni. Víst
verið tekinn. Missir vagnsins fellur
okkur mjög þungt þar sem við eig-
um hann ekki heldur lánaði vina-
fólk okkar hér í Reykjavík okkur
hann. Og vagninn hefur mikið per-
sónulegt gildi fyrir þetta fólk því
þau notuðu hann þegar bömin
þeirra vom ung.
Við skrifum í þeirri von að ein-
hver hafí fundið vagninn eða viti
hvar hann er niður kominn, og hafí
samband við okkur í sima 27375.
Það myndi gleðja okkur mjög að
geta sagt vinafólki okkar að vagn-
inn hafí komið f leitimar.
Cathy og Larry Miners
ingu stofnana sem hér um ræðir. í
þessu tilfelli kostar styrkingin ekki
krónu umfram staðsetningu annars
staðar. Jafnvel minna, þar eð öll
aðstaða sýnist til staðar á Siglu-
firði. Þess vegna eiga stjómvöld að
láta rökhyggju ráða ferð fremur en
úrelt miðjusjónarmið.
Norðlendingur
er um það að þetta hefur hvort
tveggja átt sér stað. En ofbeldis-
myndir og allur annar óþverri sem
sýndur er meira eða minna flest
kvöld er þó ávallt í miklum meiri-
hluta. Væri það ekki verðugt verk-
efni fyrir þá mörgu reiknimeistara
sem eru á ríkisjötunni að kanna þau
áhrif sem myndir af þessu tagi hafa
haft á mannleg samskipti hér á
landi? Vist er um það að árás og
ódæðisverkum hefur ijölgað til mik-
illa muna. Ótrúlegt er að það sé
holl hugvekja undir svefnin að sjá
sundurtætta mannslíkama eða önn-
ur ódæðisverk sem þessi tæki eru
látin flytja myndir af inn á heimili
landsmanna flest kvöld. Svo tala
ráðamenn þessa fjölmiðils fjálglega
um það menningartæki sem sjón-
varpið á að vera.
Heggur sá er hlifa skyldi
Nú ætlar öll þjóðin að sameinast
í einu átaki um að fækka slysum í
umferðinni. Væri óskandi að það
bæri tilætlaðan árangur. En hvað
gerði þessi rúmlega sextíu manna
hópur fyrstu starfsdaga Alþingis?
Þeir leiddu í lög aukinn hraða úti á
þjóðvegum sem er þó ærinn fyrir
og hefur oft skilið eftir djúp sár á
mannfólkinu, auk eignatjóns sem
almenningur greiðir fyrir með hækk-
uðum tryggingaiðgjöldum.
En þær sextíu sálir í þinghúsinu
vildu láta til sín taka í upphafí starfs-
tíma sína og hafa nú þráttað marga
daga um bjór til viðbótar þeim böl-
valdi sem vínið er og allar þær hörm-
ungar sem ofneysla þess hefur af
sér leitt í auknum umferðarslysum.
Guðfinna Hannesdóttir
Sjónvarpið hefur brugðist
Týndur barnavagn
Innbú - dánarbú
Til sölu á vægu verði sófasett, borðstofusgtt, antik-
skápar, skatthol, fataskápar, frystikysta, myndirog fleira.
Til sýnis á Bergþórugötu 2 eftir kl. 14.00. í dag.
&
M
A Bergþórugötu
3ja herb. íbúð á 1. hæð, til sölu, í nýju húsi á Berg-
þórugötu. Tilbúin fljótlega.
Örn Isebarn, byggingameistari,
sími 31104.
MAZDi
HÝ HAGSTÆÐ KJÖR...
á nokkrum notuðum úrvals bílum!!
Viö getum nú boðið nokkra notaða úrvals bíla
á betra verði og greiðslukjörum en áóur hefur
þekkst.
Dæmi: Mazda 323, 4ra dyra, 1.3 LX, árg. ’87
Verð.................................... kr. 440.000
Útborgun 25%............................ kr. 110.000
Afsláttur............................... kr. 44.000
Eftirstöðvar sem greiðast með skuldabréfi á allt að 30
mánuðum með jöfnum afborgunum kr. 286.000.
Þessir bílar
fást á sambærilegum kjörum:
Fjöldi annarra bíla á staönum.
Opiö laugardaga frá kl. 1-5
MAZDA 323 Station árg. '86
Lancia Thema árg. ’87
MAZDA E-2200 sendibíll
árg. ’85
MAZDA 323 árg. ’85
MAZDA 323 árg. ’86
MAZDA 323 árg. '83
MAZDA 626 LTD árg. '87
MAZDA 626 LX árg. '83