Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 64
EIGIY4
MIÐUJMIV
27711
MNGHOLTSSTRÆTI 3
Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorieifur Guðmundsson, sölum.
ÞöróHur Halldórsson, lögfr - Unnsteinn Beck hrl., simi 12320
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Selsstaðir í Seyðisfirði:
13 kindur dráp-
ust í snjóflóði
Seyðisfirði.
SNJÓFLÓÐ féU á fjárhús og hlöðu
á bænum Selsstöðum, sem er ysti
bærinn í byggð að norðanverðu í
Seyðisfirði, seinnipartinn i gær.
Snjóflóðið féU á hlöðuna og hluta
fjárhúsanna. í húsunum voru 80
kindur og i gærkvöldi höfðu 13
þeirra fundist dauðar og ein með
lifmarki. Vonast var til þess að
ekki hefðu fleiri kindur orðið fyr-
ir snjóflóðinu, en ennþá var unnið
Bolungarvík:
Heiðrúnu
forðað
frástrandi
Bolungarvik.
EKKI mátti miklu muna að Ula
færi, er skuttogarinn Heiðrún
var að koma af veiðum á
að því að hreinsa siýó út úr fjár-
húsunum.
„Vissulega kemur þetta illa við
mann, því ég man vel eftir snjóflóði
sem féll 1974 og tók íjárhúsin alveg.
Þá bjuggum við skammt frá fjár-
húsunum, en eftir það var bærinn
fluttur á stað, sem talinn er örugg-
ari,“ sagði Svandís Jónsdóttir, hús-
freyja á Selsstöðum í samtali við
Morgunblaðið seint í gærkveldi.
Fjárhúsin eru um tíu mínútna
gang frá bænum. Svandís sagði að
snjóflóðið hefði runnið úr hjöllunum
fyrir ofan flárhúsin, þar sem heitir
Skógarhjalli, á hlöðuna og inn í hluta
Qárhúsanna. Menn voru við flárhúsin
um 3 leytið í gærdag, en ekki varð
vart við að snjóflóð hefði fallið fyrr
en um 8 leytið í gærkveldi, þar sem
svo dimmt var yfír að ekki sást til
fjárhúsanna.
Björgunarsveitarmenn héldu sjó-
leiðina frá Seyðisfírði fram að Sels-
stöðum í gærkveldi og þeir og fólk
af næstu bæjum aðstoðaði við að
hreinsa snjóinn út úr fjárhúsunum.
Garðar Rúnar
Sjá óveðursfréttir bls. 2-3.
Snjó kyngdi niður fyrir norðan og austan
Slæmt veður hefur verið á austanverðu Norður-
landi og norðanverðum Austfjörðum undanfarna
daga og spjó kyngt niður. Eins og hálfs metra
þykkur snjór var á Akureyri í gær til mikillar
ánægju fyrir ungviðið, eins og sést á þessum
myndum sem ljósmyndarar Morgunblaðsins,
Rúnar Þór Bjömsson og Bjarni Eiríksson, tóku
á Akureyri í gær.
nítjánda tímanum i gærkvöldi.
Af einhveijum ókunnum ástæð-
um drap aðalvél skipsins á sér
er skammt var ófarið að hafnar-
mynninu. Vindur var sex til sjö
vindstig á norðaustan og stóð
því beint á hafnarmynnið.
Áhöfn Heiðrúnar varpaði akker-
um en það stöðvaði ekki rek skips-
ins að fullu. Það var ekki fyrr en
vélbáturinn Páll Helgi kom út og
hóf að toga Heiðrúnu, að rek skips-
ins var stöðvað. Þá voru eftir innan
við 100 metrar að bijótsendanum.
Vélbátnum Páli Helga tókst að
draga Heiðrúnu nokkuð frá, en um
síðir tókst að koma vél Heiðrúnar
í gang og skipið sigldi fyrir eigin
vélarafli inn í höfnina. Ekki er vit-
að hvað olli því að vél skipsins
stöðvaðist. Afli Heiðrúnar í þessari
veiðiferð er 90 lestir.
Gunnar
William Hay, forseti skoska fiskimannasambandsins:
Offramboð íslendinga hef-
ur fellt þorskverð um 50%
Glasgow. Frá Hírti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÍSLENDINGAR hafa fellt verð
á þorski um 50% siðustu vikum-
ar á mörkuðunum í Hull og
Grimsby. Þeir moka inn fiskin-
um án tillits til þess hve mikið
markaðurinn þarf og allir tapa,
ekki aðeins þeir sjálfir heldur
enskir og skoskir fiskimenn.
Þeir einu sem græða em frysti-
húsin. Réttast væri að sett yrði
bann á landanir íslendinga haldi
þeir áfram að haga sér svona,“
sagði William Hay, forseti
skoska fiskimannasambandsins.
Andrew Bremner skipstjóri á
dragnótabátnum Boy Andrew, sem
til þessa hefur skilað mestu afla-
verðmæti á land af skoskum bát-
um, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að staða skoskra fiskimanna
Verzlunarskóli íslands:
Könnuð þörf fyrir
,,viðskiptaháskóla‘ ‘
VERZLUNARSKÓLI íslands
lætur nú kanna hvort gmndvöll-
ur sé fyrir þvi að skólinn bjóði
upp á „víðtækt viðskiptanám á
háskólastigi“ eins og Þorvarður
Elíasson skólastjóri orðar það.
Þorvarður sagði þessa hugmynd
fram komna þar sem mjög fáir
nemendur skólans fari nú að
vinna að loknu stúdentsprófi
heldur vilji þeir flestir afla sér
háskólamenntunar. Af því leiði
að skólinn geti ekki rækt það
hlutverk sitt að sjá atvinnulífinu
fyrir hæfu starfsfólki nema með
því að færa starfsemi sina á
háskólastig.
„Niðurstöður munu liggja fyrir
síðar á þessu ári. Þær verða kynnt-
ar stjóm Verzlunarráðsins, sem
ákveður hvort í framkvæmdir verð-
ur ráðist," sagði Þorvarður Elías-
son. „Það sem kallar á nám af
þessu tagi er það að fyrirtæki telja
sig hafa þörf fyrir viðskiptamennt-
að fólk sem lokið hefur styttra
námi en boðið er upp á til dæmis
í Viðskiptadeild Háskólans. Nám
sem yrði mjög hnitmiðað og miðað
við að búa menn undir að starfa
í fyrirtækjum," sagði Þorvarður.
„Það hefur alltaf verið hlutverk
og markmið með rekstri Verzlun-
arskólans að búa nemendur undir
að hefja störf við verslun og við-
skipti. Þar sem langflestir nemend-
ur fara nú í háskólanám að loknu
stúdentsprófi þykir eðlilegt að
skólinn breyti starfsemi sinni með
þessu móti eigi hann áfram að
geta tekið þátt í því að leggja at-
vinnulífinu til hæfa starfsmenn."
Þorvarður varðist allra frétta
af því hvemig prófí nemendur
muni ljúka og hvaða gráður skólinn
hugsi sér að útskrifa nemendur
með ef til kemur. „Það er ekki
hægt að tala um gráður sem ein-
falt og samræmt kerfí. Gráður eru
afar ólíkar frá hinum mismunandi
skólum og ekki hægt að hafa þær
sem samræmdan mælikvarða á
eitt eða neitt,“ sagði Þorvarður
Elíasson skólastjóri.
og útgerðar væri mjög erfíð um
þessar mundir. Afli hefði minnkað
um 30%, olía hækkað um 10% og
æ minna fengist fyrir fískinn á
mörkuðunum í Hull og Grimsby.
Skotar hefðu stutt íslendinga í
þorskastríðinu og verið á móti
löndunarbanni, en nú hlytu menn
að fara að hugsa um það hvemig
hægt væri að stöðva þessi ósköp
og líklega væri eina leiðin að banna
íslendingum aftur að landa.
William Hay sagði að mestu af
afla skoskra fískiskipa, 70-80%,
væri iandað í heimahöfnum, en það
sem færi á markaðinn á Humb-
erside-svæðinu gerði gæfumuninn.
Fengist gott verð væri afkoman
góð. Ef ekki, væri tap á öllu sam-
an og framboðið réði öllu um það.
„Við höfum lengi lifað í sátt og
samlyndi við íslendinga á þessum
mörkuðum. Við studdum þá í land-
helgisdeilunni, en nú er ástandið
að verða mjög erfítt. Lágt gengi
dollars og hátt gengi pundsins
veldur því að íslenski fískurinn
kemur í of miklum mæli hingað.
Við vitum að staðan heima fyrir
er erfíð, en þeir hjálpa hvorki sjálf-
um sér né öðrum með því að „gefa“
enskum frystihúsum fiskinn,"
sagði Hay.
Enski skipstjórinn George
Crawford tók í sama streng og
þeir Hay og Bremner. Það væri
einkennileg afstaða íslendinga að
útvega enskum frystihúsum físk-
inn á svo lágu verði að heimamenn
hefðu tæpast efhi á að veiða hann
og landa honum á sömu stöðum.
Þessu ylli fyrst og fremst misvaei
enska pundsins og dollarsins.
lendingar færu ævinlega þá leið
að hrúga fískinum á þann markað-
inn sem best borgaði án tillits til
annarra sem á sama markaði væru
og svo væru þeir þar að auki svo
seinir að átta sig að þeir seldu físk-
inn með tapi lengst af.
Vor í nánd:
14 tegundir
farfugla og
fargesta
ÞRETTÁN tegundir farfugla
og einn fargestur eru komnir
til landsins, samkvæmt upp-
lýsingum Náttúrufræðistofn-
unar.
Farfuglar eru þeir fuglar kall-
aðir sem verpa hér á landi en
hafa vetursetu í öðrum löndum.
Hluti af stofni sumra tegunda
er þó staðfuglar og sjást hér á
vetuma.
Af farfuglum eru þessir
komnir; sflamáfur, hettumáfur,
skógarþröstur, lóa, álft, gras-
gæs, hrossagaukur, grafönd,
gargönd, lóuþræll, steindepill,
sandlóa og jaðrakan.
Fargestir kallast þeir fuglar
sem hafa hér stutta viðkomu á
leið sinni til varpstöðva á Græn-
landi og í Kanada.