Morgunblaðið - 27.04.1988, Side 35

Morgunblaðið - 27.04.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988 35 Minning: Gunnar Ingólfsson bóndi, Hámundarstöðum Fæddur 18. september 1955 Dáinn 19. apríl 1988 I minningu pabba. Guð leiði þig, en líkni mér sem lengur má ei fylgja þér. En ég vil fá þér englavörð, míns innsta hjarta bænargjörð: Guðleiðiþig. (MattJoch.) Við þökkum elsku pabba okkar allar ánægjustundimar. Lóa, Linda og Erla Björg Skyndilegt fráfall Gunna, fyrr- verandi mágs okkar og vinar, kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ótal minningar streyma fram í hug- ann þegar litið er yfir farinn veg. Við kynntumst Gunna fyrst er hann og Eygló, systir okkar, fóru að vera saman. Þá var Gunni 17 ára, með dökkt og mikið hár og stríðnislegt bros. Nákvæmlega þannig var hann síðast er við sáum hann, og þannig viljum við minnast hans. Gunni var fastagestur á heimili okkar á Engjaveginum árum saman og eftir að hann og Eygló giftu sig og hófu búskap vorum við tíðir gestir hjá þeim, bæði á Þórustöðum og Hámundarstöðum og myndaðist þar sterkt vináttusamband sem ekki rofnaði þó að leiðir þeirra hefðu skilið. Gunni var einstakt náttúrubam, og gat hvergi annars staðar hugsað sér að búa en í sveitinni, þar sem hann gat sinnt einlægu áhugamáli sínu, hestunum. Hann var mjög sterkur persónu- leiki, sagði sína meiningu ákveðið og var ekkert að fara í kringum hlutina, en gat jafnframt komið öllum í kringum sig til að hlæja með skondnum athugasemdum og hnyttnum tilsvörum. Að eðlisfari var hann mjög stríðinn, og fengum við systur svo sannarlega að kynn- ast því, en það risti ekki djúpt og oftast hlógum við mest sjálfar, þvf hann var aldrei illkvittinn. Gunni laðaði að sér fjölda fólks með persónutöfrum sínum og ber stór vina- og kunningjahópurinn þess best vitni. Gunni ólst upp í stórum systkina- hópi, fyrst í Hafnarfirði og síðan á Þórustöðum í Ölfusi, þar sem leiðir hans og Eyglóar lágu fyrst saman. Þau eignuðust dætumar Lindu Dröfn, f. 19.07.75, og Erlu Björgu f. 16.10.78. Fyrir átti Gunni Eygló Svövu, f. 30.09.74. Stelpumar eyddu flestum summm hjá honum og var þær farið að hlakka til að komast í sveitina til pabba síns. Þau hittust fyrir aðeins nokkrum dög- um, er Lóa, elsta dóttirin, var fermd, og gerðu áætlanir fyrir kom- andi sumar, sem nú em að engu orðnar. Elsku stelpur, við finnum til með ykkur af öllu hjarta, en vitum að þið getið ávallt huggað ykkur við góðar minningar um ástkæran föð- ur og félaga. Einnig sendum við hugheilar samúðarkveðjur til Ing- ólfs, Bjargar, Villa, Einars, Stef- áns, Auðar og Trausta. Hvíli elsku Gunni í friði. Friður Guðs blessi hann. Magga og Hrönn, Selfossi. Himinninn, grænar víðáttur heið- anna og svarfblátt hafíð — er um- hverfi Hámundarstaða við Vopna- fyörð. Þessi víðáttumikla jörð er ein þessara jarða útskaganna þar sem ferskleikinn og heiðríkjan ríkja og hretviðri og snjóalög vetrarins reyna á þol mannanna. Gunnar Ingólfsson undi sér vel í þessu umhverfí. Hross og sauðfé dreifði sér um gróinn afréttinn og allir staðhættir og umhverfi virtust falla að gerð Gunnars. Einkenni hans vom ferskleiki og einarðleiki. Hann skar sig úr, hann var enginn múgamaður, öll stöðlun var honum fyarri. Hann var ómyrkur í máli, orðheppinn og fullur af lífí og húm- or. Útlistanir hans á mönnum og málefnum vom alltaf á kjammiklu máli, lifandi og skemmtilegar, og hann hitti alltaf í mark. Hann var líka líkastur ferskum gusti heiða og hafs þar sem víddimar ríkja. Gunnar ólst upp frá níu ára aldri á Þómstöðum í Olfusi með foreldr- um sínum og systkinum. Foreldrar hans vom Ingólfur Guðmundsson bóndi af Kollsvíkurætt á Rauða- sandi og Björg Eyjólfsdóttir frá Engey og Brautarholti á Kjalamesi í ættir fram. Búskapur og heimilishættir á Þómstöðum vom sérstæðir. Þau hjónin Ingólfur og Björg hófu þar búskap 1964 og bjuggu þar til 1972. Ingólfur dvaldi þar til 1976. Búið varð bráðlega eitt arðmesta bú landsins og skar sig úr hvað varðaði þrifnað og reglusemi. Þetta var á þeim tima þegar fmmkvæði og reisn mátti sín einhvers í bú- rekstri, áður en vissum öflum tókst að ná áhrifum til fjarstýringar í íslenskum landbúnaði. Duglegir bændur gátu þá enn um frjálst höfuð strokið. Húsráðendur á Þóm- stöðum vom lítt hrifnir af afskipta- semi og ráðsmennsku forráðshyggj- unnar. Þau stjómuðu sjálf búinu. Innanstokks mótaði húsmóðirin alla hætti — reisn og smekkur vom mótandi og samofin siðuðu og menningarlegu umhverfí bóka og hljómlistar. Bókasafnið var valið safn og þar var mikið lesið. Þau hjón áttu margt kunningja og vina og það var alltaf gott að njóta gisti- vináttu þeirra. Gestrisni þeirra var einstök. Gunnar ólst upp í þessu andrúmslofti og mótaðist af því — islenskum menningararfi, virðingu fyrir tungu og sögu og ömun á þeim lágmenningarfyrirbrigðum sem vom tekin að láta á sér kræla um þessar mundir. 1976 fluttu þeir feðgar Ingólfur og Gunnar að Hámundarstöðum og hófu þar búskap. Búið blómgaðist og Gunnar tók síðan við og stofn- aði til félagsbús með Önnu Dóm Halldórsdóttur fyrir nokkmm miss- emm. Bústofninn var sauðfé og hross, en Gunnar var ágætur tamn- ingamaður og átti ágæta hesta. Hann aðlagaði búskap sinn lands- gæðum eins og íslenskir bændur hafa gert um aldir og gera enn, þó með nokkmm undantekningum síðustu áratugina. Gunnar eignaðist þijár dætur, tvær með fyrrverandi eiginkonu sinni, Eygló Bjamþórsdóttur, og eina dóttur áður en hann kvæntist henni. Dætur hans dvöldu jafnan með honum á sumrin á Hámundar- stöðum og var það þeim hátíð og föður þeirra. Allir sem kynntust Gunnari náið hrifust af honum, hann var sannar- lega lifandi og heill, ærlegur og ræktarsamur og hann var skemmti- legur, mjög skemmtilegur. Það er erfitt að horfast í augu við þá staðreynd að eiga aldrei framar eftir að eiga tal við Gunnar og njóta návistar við hann. Um- hverfíð og heimurinn smækkar við fráfall hans. En minningin um Gunnar lifir f hugum þeirra sem áttu hann að vini og efinn, trúin og vonin búa í hjörtum mannanna. Við hjónin vottum foreldrum Gunnars, Björgu Eyjólfsdóttur og Ingólfi Guðmundssyni, systkinum hans og Vilhjálmi Ólafssyni, fyrr- verandi eiginkonu hans og dætrum hans þremur og sambýliskonu hans Önnu Dóru Halldórsdóttur og öllum ættingjum hans og vinum innilega samúð. Siglaugur Brynleifsson Frændi minn, Gunnar Ingólfsson, er dáinn, aðeins 32 ára að aldri. I fyrstu greip mig heiftarleg reiði yfír örlögum hans, en brátt tóku við tómleiki og sorg. Á þeim dögum sem liðnir eru frá andláti Gunnars hafa flogið í gegnum huga mér ýmsar góðar minningar um hann og þær megna svo sannarlega að hlýja manni um hjartarætur. Gunnar var sonur Bjargar Eyj- ólfsdóttur, föðursystur minnar, og Ingólfs Guðmundssonar, móður- bróður míns. Okkur krökkunum þótti mikið til um skyldleika okkar þegar við vorum yngri og vorum sannfærð um að við værum allt að því jafnskyld og systkin, allavega hálfsystkin. Við vorum líka á marg- an hátt eins og systkin. Fjölskyldur okkar bjuggu í sama húsi í Hafnar- firði fyrstu æviár okkar og þar ól- umst við upp saman. Þegar Gunnar var 8 ára gamall fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni að Þórustöðum í Ölfiisi og þar bjó hann fram á fullorðinsár. Ég og systkini mín vorum mikið á Þóru- stöðum, ýmist í sumardvöl eða styttri heimsóknum. Þangað var alltaf jafn gaman að koma. Systkin- in voru 5 á bænum, svo þar var alltaf líf og fjör. Gunnar var ávallt einstaklega hress og kátur og prakkarinn aldrei langt undan. Auk þess var hann svo bráðfyndinn, að hann gat alltaf fengið alla til að veltast um af hlátri, alveg sama hveijar aðstæður voru. Bemsku- og unglingsárin voru fljót að líða og hvert af öðru stofn- uðum við okkar fyölskyldur. Gunnar giftist Eygló Bjamþórsdóttur, en þau slitu samvistir fyrir nokkmm ámm. Þau hafa ætíð haldið góðu sambandi sín á milli og hafa dætur þeirra dvalist í sveitinni hjá föður sínum á sumrin. Dætur Gunnars, sem nú sjá á bak elskulegum föður em þiján Eygló Svava, 13 ára, Linda Dröfn, 12 ára, og Erla Björg, 9 ára. Síðustu árin bjó Gunnar ásamt föður sínum á Hámundarstöðum I í Vopnafírði. Síðan faðir hans flutti suður í fyrra hafa þau Gunnar og Anna Dóra, sambýliskona hans, búið þar. Eftir að Gunnar flutti til Vopnaflarðar sá ég hann sjaldnar en áður, en þegar við hittumst var hann alltaf sami hressi og skemmti- legi strákurinn, sem ég man svo vel eftir þegar við vomm yngri. Hans verður því sárt saknað. Elsku Anna Dóra, Gagga, Gúlli, Villi, litlu telpumar hans Gunnars, systkinin og aðrir, sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls hans; þótt fátt geti mildað sorgina eins og er, þá mun minningin um góðan dreng verða ykkur og okkur öllum styrkur um ókomin ár. Ég, foreldrar mínir, systkin og fjölskyldur okkar kveðjum elsku frænda okkar hinstu kveðju með þökk fyrir allt sem hann var okkur og biðjum Guð að geyma hann. Sigrún Reynisdóttir Genginn er góður og glæsilegur drengur, langt fyrir aldur fram að mínum dómi, en sá sem öllu ræður hefur aldrei farið eftir þeirri röð sem okkur finnst sanngjömust. Ég kynntist Gunnari í þann mund er ég og móðir hans gengum í hjónaband árið 1975. Hann var glæsilegt ungmenni, 19 ára gam- all, glaður, greiðvikinn og hjarta- hlýr og urðum við fljótt hinir mestu mátar. Aldrei var ég í vafa um að hans biði björt framtíð og glæsileg. Hugur hans hneigðist strax til bú- skapar, enda var hann alinn upp ásamt fjórum systkinum á glæsi- legu myndarheimili foreldra sinna, Bjargar Eyjólfsdóttur og Ingólfs Guðmundssonar, sem ráku stórbú að Þórustöðum í Ölfusi. Á fyrsta búskaparári okkar Bjargar í Grænuhlíð 12 í Reykjavík bjó hjá okkur unnusta og síðar eig- inkona Gunnars, Eygló Bjamþórs- dóttir, sem þá var við sjúkraliðanám á Borgarspítalanum. Á meðan hún bjó hjá okkkur fæddist eldri dóttir þeirra, Linda Dröfn, og varð hún að sjálfsögðu strax sólargeislinn á heimilinu. Áður hafði Gunnar eign- ast Eygló Svövu með Guðlaugu Gísladóttur og var hún annar sólar- geislinn til, því oft var hún sótt í Grænuhlíðina. Seinna, eftir að Gunnar og Eygló höfðu stofnað heimili að Hámundarstöðum I, í Vopnafirði, ásamt Ingólfi föður Gunnars, eignuðust þau þriðja sól- argeislann, Erlu Björgu. Gunnar og Eygló slitu samvistir árið 1981, en ávallt hefur verið gott samband milli þeirra og telpumar dvalið hjá föður sínum á sumrin. Fyrir ári brá Ingólfur búi og seldi sinn hlut til Önnu Halldórsdóttur, sambýliskonu Gunnars. Hjá þeim dvöldu allar systumar þijár síðast- liðið sumar og fór mjög vel á með þeim og Önnu. Mikið var búið að ráðgera af þeim systmm og föður þeirra fyrir þetta sumar og reis þar hæst áætlun um hestamennsku. Ég sá Gunnar síðast er hann kom hér suður til að vera við fermingu elstu dótturinnar 10. apríl sl. Hann verður mér ávallt minnisstæður er hann gekk með dóttur sinni til altar- is í Lagafellskirkju í geislandi sól- skini, stór maður og fallegur, með svip þess sem átti lífíð framundan. Fari vinur minn vel og hafí þökk fyrir okkar góðu kynni. Vilhjálmur Ólafsson Símar 3540$ og 83033 UTHVERFI Síðumúli o.fl. Sæviðarsund, hærritölur VESTURBÆR SELTJARNARNES Hofgarðar Barðaströnd Framnesvegur1-35 AUSTURBÆR Stigahlíð 49-97 Barónsstígur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.