Morgunblaðið - 19.05.1988, Qupperneq 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
112. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 19. MAI 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Punjab:
Síkarnir í Gullna
hofinu gáfust upp
Þrír frömdu sjálfsmorð og tveir voru drepnir
Amritsar í Indlandi, Reuter.'
UMSÁTRINU við Gullna hofið,
sem staðið hafði í tíu daga, lauk
í gær þegar 46 síkar gáfust upp
fyrir sérsveitum indversku lög-
reglunnar. Þrír til viðbótar
frömdu sjálfsmorð og tveir voru
skotnir til bana eftir að hafa
reynt að flýja.
Talsmenn lögreglunnar sögðu að
í gær hefði tekist að ná nokkrum
af herskáustu aðskilnaðarsinnun-
um, sem beijast fyrir sjálfstæði
Punjab. Lögreglustjórinn í Punjab
sagði að lögreglan hefði náð öllum
síkunum sem hafst hafa við í Gullna
hofinu.
Lögreglan hafði sagt síkunum
að veifa klút væru þeir tilbúnir að
gefast upp. Pimm mínútum síðar
birtist appelsínugulur klútur í ein-
um glugga hofsins, en í hugum síka
er appelsínugult litur píslarvættis-
ins. Stuttu síðar komu síkamir, þar
á meðal nokkrar konur og böm,
út úr hofinu og bugtuðu sig fyrir
framan það áður en þeir gengu í
átt til lögreglunnar.
Þrír aðskilnaðarsinnanna höfðu
Líbanon:
Hóta að drepa
erlenda gísla
Beirut, Reuter.
Mannræningjar hafa hótað að
drepa vestræna gísla í Beirut
reyni sýrlenskir hermenn að binda
enda á átökin milli tveggja fylk-
inga shfta í borginni.
„Mannræningjamir hafa hótað að
drepa alla erlenda gísla, sem þeir
hafa á valdi sínu, fari sýrlensku her-
mennimir inn í suðurhverfi borgar-
innar,“ sagði háttsettur shíti úr þeirri
fylkingunni, sem styður Sýrlendinga,
við fréttamann Reuters. í fyrradag
skipuðu Sýrlendingar 7.000 her-
mönnum sínum að stía í sundur
stríðsmönnum Amal-hreyfingarinnar
og Hizbollah-hreyfingarinnar en ír-
anir styðja þá síðamefndu.
Talið er, að 22 útlendingar séu í
höndum mannræningja, þar af tíu
Bandaríkjamenn og þrír Bretar.
gleypt eitur inni í hofinu. Tveir til
viðbótar reyndu að flýja en sérsveit-
ir lögreglunnar skutu þá til bana.
Ríkisstjóri Punjab, S.S. Ray,
sagði að uppgjöf síkanna væri
hvorki sigur né ósigur fyrir ind-
versk stjómvöld, og raunar ekki
heldur fyrir aðskilnaðarsinnana.
Á þriðjudagskvöld drápu aðskiln-
aðarsinnar 30 hindúa, sem störfuðu
við gangagröft skammt frá Chand-
igarh, höfuðborg Punjab, í hefndar-
skyni vegna umsátursins. Þeir sem
lifðu þá árás af sögðu í samtali við
fréttamann Reuters að aðskilnaðar-
sinnarnir hefðu rekið verkamennina
út úr húsum sínum, raðað þeim upp
og hafið skothríð á þá. Sjálfstæðis-
barátta síka hefur kostað 950
manns lífið á þessu ári, en í fyrra
féllu 1.230 manns.
Reuter
Tveir lögreglumenn standa vörð við Gullna hofið í Amritsar eftir að aðskilnaðarsinnar höfðu yfirgefið
það í gær.
Sovétríkin:
Sprenging gætí tafíð fram-
leiðslu kjamorkuflauga
Sovétmenn segja að sprengingin hafi orðið í efnaverksmiðju
Washington, Moskvu, Reuter.
EINA byggingin í Sovétrílqunum
þar sem aðalhreyflamir i SS-24
kjarnorkueldflaugar Sovét-
manna hafa verið framleiddir
eyðilagðist í mikilli sprengingu
síðastliðinn fimmtudag, að sögn
talsmanna bandaríska varnar-
málaráðuneytisins. Þeir segja
ennfremur að sprengingin, sem
varð í verksmiðju nálægt Pavlo-
grad, gæti tafið framleiðslu SS-
24 eldflauga í að minnsta kosti
hálft ár. Sovétmenn segja hins
vegar að sprengingin hafi orðið
í efnaverksmiðju, sem tengist
ekki kjarnorkueldflaugum. Þrír
líklega eldflaugaframleiðslu Sovét-
manna. Sprenging varð í verk-
smiðju sem framleiðir eldflauga-
eldsneyti í Las Vegas í Banda-
ríkjunum 4. maí, þar sem tveir fór-
ust. Ekki var ljóst í gær hvað hefði
valdið sprengingunni í Sovétríkjun-
um.
PAVLOGRAD
Skammt frá borainni er
eldflaugahreyflaverksmiöjan, I
sem eyddist í mikilli spreng-1
ingu síöastliöinn fimmtudag. I
Morgunblaöiö / AM
Noregur:
Eitraðir þörungar
ógna fiskeldisstöðvum
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
SVARTUR sjór af eitruðum þör-
ungum hefur drepið allan fisk í
14 norskum fiskeldisstöðvum
síðustu tvo dagana og blasir nú
gjaldþrot við sumum þeirra.
Virðast þörungarnir hafa borist
með straumnum frá vestur-
strönd Svíþjóðar þar sem þeir
hafa einnig valdið miklum usla.
Sjávarlíffræðingar vita ekki enn
fyrir víst um hvaða þörungategund
er að ræða en þeir óttast, að plág-
an geti borist alla leið norður að
Sognsæ á Vesturlandinu. Pyrir eig-
Morgunblaðsins.
endur sumra fiskeldisstöðvanna er
áfallið svo mikið, að þeir komast
líklega ekki hjá gjaldþroti, þar sem
komið hefur í ljós, að fiskurinn var
ótryggður hjá nokkrum þeirra.
I mörgum fiskeldisstöðvum á
Suðvesturlandinu hefur allur fiskur
verið skorinn vegna óttans við, að
þörungamir drepi hann. Er hann
síðan seldur og tapið því minna en
ella hefði verið.
Þörungamir leggjast á tálknin í
fiskinum og og kæfa hann á aðeins
tveimur klukkustundum.
fórust og fimm slösuðust í
sprengingunni.
„Þetta var gríðarleg sprenging,"
sagði talsmaður bandaríska vamar-
málaráðuneytisins í samtali við
fréttamann Reuters. „Eina sem eft-
ir er af einni byggingu verksmiðj-
unnar er hola í jörðinni. Aðalhreyfl-
ar SS-eldflauganna hafa hvergi
verið framleiddir nema í þessari
byggingu. Það tekur líklega hálft
ár að hefja framleiðsluna að nýju,“
sagði hann meðal annars.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins, Gennadíj Gerasímov,
sagði í samtali við fréttamann Reut-
ers í Moskvu að sprengingin væri
hvorki tengd eldflaugaeldsneyti né
eldflaugum. Hann sagði að þrír
hefðu farist og fimm slasast í
sprengingu í efnaverksmiðju í
Ukraínu sem framleiddi sprengiefni
sem notuð væru í iðnaði.
í yfirlýsingu leyniþjónustu
bandaríska vamarmálaráðuneytis-
ins segir hins vegar að sprengingin
hafi orðið í verksmiðju sem fram-
leiði fast eldsneyti í eldflaugar. Þar
segir einnig að sprengingin tefji
Bandaríska vamarmálaráðuneytið
*
Ognvænlegasta kjarnorkuvopnið
Kjamorkueldflaugar Sovétmanna af gerðinni SS-24 eru að öllum
líkindum öflugustu gereyðingarvopn sem smíðuð hafa verið. í nýútgef-
inni ársskýrslu bandaríska vamarmálaráðuneytisins um styrk herafla
Sovétríkjanna segir að eldflaugamar, sem em langdrægar, geti borið
tíu kjamaodda 9.920 kílómetra leið. Flaugamar eru geymdar í jám-
brautarvögnum og eru því hreyfanlegar. Er af þessum sökum talið
nánast óhugsandi að unnt yrði að eyðileggja eldflaugamar áður en
þeim yrði skotið á loft í hugsanlegum kjamorkuátökum. Herafli Sovét-
manna ræður einnig yfir eldflaugum af gerðinni SS-25, sem einnig
eru hreyfanlegar og bera einn kjamaodd. Frank Carlucci, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í síðasta mánuði að Sovét-
menn hefðu komið tíu SS-24-flaugum fýrir á jámbrautarvögnum.
Bandaríkjamenn ráða hins vegar enn ekki yfir hreyfanlegum lang-
drægum landeldflaugum.