Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
Aeroflot-flugvél á
Reylgavíkurflugvelli
Flutningaflugvél af gerðinni
Antonov AN-26 frá sovéska flug-
félaginu Aeroflot lenti á
Reybjavíkurflugvelli miðviku-
dagskvttidið 11. mai sl.
Flugvélin, sem flogið er af af
kúbanskri áJiöfn, var á leiðinni til
Rússlands frá Kúbu. Eftir því sem
næst verður komist er mjög líklegt
að vélin, sem var í felulitum en
með borgaralegum skrásetningar-
númerum, hafi áður tiheyrt flug-
hemum í Perú. Flugher Perú hefur
nýverið skipt út Antonov AN-26
flugvélum sínum fyrir aflmeiri vél-
ar af Antonov AN-32 gerð, sem
henta betur í hinu mikla Qalllendi
Suður-Ameríku, og hafa gömlu
flugvélamar verið teknar upp í
kaupverð hinna nýju. Það eru mörg
ár síðan flugvél Aeroflot lenti síðast
í Reykjavík en það má búast við
fleiri slíkum þvf alls eru flugvélam-
ar flmmtán sem Perúmenn seldu
aftur til Sovétríkjanna.
- PPJ
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri:
Lækkun bindiskyldu þýð-
ir aukinn viðskiptahalla
LÆKKUN bindiskyldu myndi
þýða aukinn viðskiptahalla, sagði
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, f samtali við Morgunblaðið.
Bindiskylduféð stendur gegn
gjaldeyrisvarasjóðnum og myndi
hann minnka um 650 milfjónir
króna fyrir hvert prósentustig
sem bindiskylda yrði lækkuð. Jó-
hannes sagði gjaldeyrisvarasjóð-
inn þegar það lítinn að Seðlabanki
myndi þurfa að taka erlend lán
til að vega upp á móti lækkun
bindiskyldu. Sjóðurinn mætti ekki
minnka meira.
Framsóknarmenn hafa lagt til f
ríkisstjóminni að „dregið verði úr
bindingu en bundið því skilyrði að
slíkt fjármagn verði notað til rekstr-
arlána í útflutningi og samkeppnis-
greinum og til nýrra atvinnfyrir-
tækja í þeim greinum. Bundið fé
verði án vísitölu en með einhveijum
vöxtum."
„Með því að losa bindingu er verið
að auka peningaþenslu í landinu,"
sagði Jóhannes Nordal. „Seðlabank-
inn hefur lagt til við rfkisstjómina
að bindiskylda verði hækkuð um 2%,
úr 13% í 15%, því að gengisbreyting
hefur alltaf viss þensluáhrif. Við töld-
um nauðsynlegt að koma til móts
við gengisfellinguna með aðhaldsað-
gerðum."
Jóhannes sagði að ef bindiskylda
yrði lækkuð myndi það verða til þess
að gjaldeyrisvarasjóðurinn myndi
minnka sem samsvaraði því út-
streymi. Þetta hefði það í för með
sér að verið væri að lána út fslenska
peninga sem myndi leiða til samsvar-
andi verri stöðu erlendis. „Gjaldeyri-
sjóðurinn er það lftill nú þegar að
við myndum væntanlega þurfa að
taka erlend lán til að vega á móti
lækkun bindiskyldu. Við teljum að
sjóðurinn megi ekki fara meira nið-
ur. Þetta myndi óneitanlega valda
eftirspumarþenslu og auka við-
skiptahallann.
Það þarf ekkert að fara í grafgöt-
ur með það að fyrst við vildum auka
bindingu þá teljum við að það að
minnka bindingu sé til þess fallið að
vinna gegn þeim markmiðum sem
stefnt er að. Það myndi stefna í öfuga
átt.“
Morgunblaðið spurði Jóhannes
ennfremur hvaða afleiðingar það
hefði að afnema verðtryggingu af
almennum lánum og spamaði, en
framsóknarmenn lögðu einnig fram
tillögu þess efnis. „Ef verðtrygging
er afnumin alls staðar f kerfinu
mjmdi það hafa í för með sér stór-
kostlegan samdrátt í innlendum
spamaði. Erlendar lántökur myndu
aukast og þetta jafnvel leiða til stór-
kostlegs viðskiptahalla. Verðtrygg-
ingin veitir mönnum tryggingu til
lengri tfma og ég held engan vafa
leika á því að ef menn vilja hafa
vexti nógu háa til að halda uppi inn-
lendum spamaði þá þyrftu þeir að
vera mjög háir. Afnám lánskjaraví-
sitölu yrði lántakendum síst til bóta.“
VEÐURHORFUR í DAG, 19. maí 1988
YFIRLIT í GÆR: Austur við Noreg er 995 mb lægð en hæðar-
hryggur á Grænlandshafi þokast austur. Heldur vaxandi lægðar-
drag við strönd Grænlands vestur af (slandi. Fremur kalt verður
áfram norðanlands og austan en sæmilega hlýtt að deginum á
Suður- og Vesturlandi.
SPÁ: Á morgun verður breytileg átt é landinu, víðast hvar gola eða
kaldi. Vestast á landinu veröur skýjað að mestu, en þurrt. Yfirleitt
verður lóttskýjað í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG og LAUGARDAG: Suðlægar áttir og held-
ur hlýnandi, einkum um norðanvert landið. Rigning eða súld með
köflum á Suður- og Vesturlandi á laugardag, annars skýjað að
mestu en þurrt.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■) 0 Hrtastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Ski/rir *
V El
‘(Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka
/ / / * / * = Þokumóða ’, ’ Súld
A r Skýjað / * / * Slydda / * / ©O Mistur —j- Skafrenningur
/ Alskýjað * * * * Snjókoma # * * |~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 / gær að ísl. tíma
hlti veftur
Akureyri +1 léttskýjað
Reykjavík 4 lóttskýjað
Bergen 6 skýjsð
Helsinki 14 hálfskýjaft
Jan Mayen 44 alskýjað
Kaupmannah. vantar
Narssarssuaq 4 rigning
Nuuk 0 slydduól
Osló 8 lóttskýjafi
Stokkhólmur 10 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 12 alskýjað
Amsterdam 9 rlgning
Aþena vantar
Barcelona vantar
Chtcago 7 heiðskfrt
Feneyjar 16 heiðskírt
Frankfurt 13 rigning
Qlasgow 2 léttskýjað
Hamborg B skýjað
Las Palmas vantar
London 8 rlgning
Los Angeles 14 heiðskfrt
Lúxemborg 10 rigning
Madríd 8 þokumóða
Malaga 17 skýjað
Mallorca 13 akýjað
Montreal 10 skýjað
New York 16 þokumóða
Parfs 11 rígning
Róm 17 þokumóða
San Dlego 16 skýjað
Winnipeg 16 alskýjað
Keppnin um ungfrú Alheim:
Akveðið í dag hveij-
ar komast í úrslit
ÆFINGAR, viðtöl við dómnefndir
og undanrásir standa nú sem hæst
f keppninni um ungfrú alheim,
Miss Universe, sem haldin er í
Taipei á Taiwan. Fulltrúi íslands
f keppninni er Anna Margrét Jóns-
dóttir, fegurðardrottning íslands.
67 stúlkur taka þátt í keppninni.
Úrslitakeppnin verður næstkom-
andi þriðjudag og ræðst f dag
hvaða stúlkur komast f úrslita-
keppnina. Morgunblaðið ræddi við
Onnu Margréti að morgni gær-
dagsins, samkvæmt þarlendum
tíma.
„Ég er á fullri ferð núna, við erum
að fara á æflngu f dag. Það er æft
að koma fram á sundbol og á kvöld-
kjól, síðan verður dæmt í þeim hluta
keppninnar í kvöld," sagði Anna
Margrét. Klukkan var sjö að morgni
hjá henni og dagurinn í raun byrjað-
ur, við náðum tali af henni rétt í
þann mund að hún var að hlaupa f
morgunmatinn. „Á morgun fer ég
síðan í viðtal við dómnefnd. Eftir
viðtalið er ákveðið hveijar komast í
úrslitakeppnina. Sjálf úrslitakeppnin
byijar svo klukkan níu að morgni
þann 24. og hún snýst aðallega f
kring um þær tíu sem komast í úr-
slitin."
Anna Margrét kvaðst ekki vera
bjartsýn á sína möguleika í keppn-
inni. Þetta væri svo stórt í sniðum
og margir keppendur. Hún sagði að
dagskráin væri mjög erfið. „Þetta
er svo stórfengleg athöfn og það
þarf að æfa og æfa fyrir hana. Mað-
ur er vakinn upp eldsnemma á
morgnana og svo eru veisluhöld á
kvöldin. Það er varla nokkur tfmi til
að hvílast," sagði Anna Margrét og
þegar hún var spurð, hvort henni liði
vel þama austurfrá, sagði hún: „Já,
vegna þess að það eru svo skemmti-
legar stelpur héma. Ég er með mjög
góðum herbergisfélaga, sem er
ungfrú Noregur, Berta Brunland.
Það bjargar þessu alveg."
Bogi Agústsson frétta-
slgóri ríkissjónvarps
MARKÚS Öm Antonsson, út-
varpsstjóri Rfkisútvarpsins, réði
Boga Ágústsson, blaðafulltrúa
Flugleiða, f stöðu fréttastjóra
Rfkissjónvarpsins f gær. Bogi
hafði áður fengið flest atkvæði f
stöðuna f Útvarpsráði.
„Nýja starfið leggst mjög vel í
mig, þótt það sé vissulega blandið
nokkrum trega að fara frá Flugleið-
um, ég kunni afskaplega vel við mig
þar enda er það kraftmikið fyrirtæki
með afbragðsgóðu starfsfólki," sagði
Bogi í samtali við Morgunblaðið. „Eg
hlakka til að takast á við ný verk-
efni - og þó gömul, því ég var frétta-
maður á sjónvarpinu í tfu ár.“
Aðspurður sagðist Bogi ekki ragur
við að hella sér út f samkeppnina
milli fréttastofa sjónvarpsstöðvanna.
„Ég hef aldrei verið hræddur við
samkeppni og er raunar talsmaður
þess að hún rfki sem á flestum svið-
um,“ sagði Bogi. „Ég er sfat hrædd-
ur við hana f fréttaflutningi."
Bogi er þijátfu og sex ára. Hann
er stúdent frá Menntaskólanum f
Reykjavík, en stundaði sagnfræði-
nám við Háskólann og kennslu í
íslensku og ensku með náminu. Hann
var fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu
frá 1977 til 1986, en þá tók hann
Bogi Ágústsson
við starfl aðstoðarframkvæmdastjóra
Rfkisútvarpsins. Bogi varð blaðafull-
trúi Flugleiða á síðasta ári. Kona
Boga er Jónfna Marfa Kristjánsdótt-
ir, kennari, og eiga þau þijú böm.