Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
5
Sjónvarpið sýn-
ir „Glerbrot44
Samdráttur lífeyrissjóðslána:
Fækkun lána um
37% á síðasta ári
GLERBROT er sjónvarpsmynd
eftir Kristínu Jóhannesdóttur og
byggist á leikritinu „Fjaðrafok"
eftir Matthias Johannessen.
Myndin fjallar um unglingsstúlk-
una Maríu sem er í unglinga-
hljómsveit og straumhvörfin í lífi
hennar þegar foreldramir gef-
ast upp á hlutverki sinu og senda
hana á uppeldisstofnun fyrir
ungar stúlkur. Þar hefur forsjá
og umhyggja fyrir löngu snúist
upp í valdbeitingu og er ýmsum
misjöfnum meðulum beitt. María
grípur til sinna ráða og hyggur
á flótta. Sjónvarpsmyndin „Gler-
brot“ byggist alls ekki á raun-
verulegum persónum né atburð-
um.
Björk Guðmundsdóttir leikur
Maríu, Kristbjörg Kjeld forstöðu-
konuna, Margrét Guðmundsdóttir
konuna, Helgi Skúlason afa Maríu,
Pétur Einarsson Jón, föður Maríu,
Margrét Ákadóttir Líneyju, stjúp-
móður Maríu, og Björn Baldvinsson
vin Maríu. Leikstjóm, klippingu og
stjóm upptöku annaðist Kristín Jó-
hannesdóttir, myndatöku og lýs-
ingu Snorri Þórisson, hljóð Halldór
Bragason, leikmynd og búninga
Guðrún Sigríður og tónlist Hilmar
Öm Hilmarsson. Mjmdin er 52
mínútur á lengd.
Matthías Johannessen er löngu
kunnur fyrir ritstörf. Hann er
kannski þekktastur fyrir ljóð sín
auk samtalsbóka en þó hafa leikrit
hans ávallt vakið mikla athygli þeg-
ar þau hafa verið sýnd og stundum
valdið fjaðrafoki. Leikritið sem
Kristín byggir sjónvarpsmynd sína,
„Glerbrot“, á var eitt slíkra verlca
enda hét það „Fjaðrafok“. Það er
þó engan veginn þess vegna sem
þetta verk var valið til sjónvarps-
gerðar heldur vegna þess að það
fól í sér mjög sérstæða möguleika
til myndvinnslu. Leikritið „Fjaðra-
fok“ var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
árið 1969.
Þess ber að geta að engar
skírskotanir em í þekktar persónur
né atburði nýliðna né löngu liðna í
hinu nýja verki. Hins vegar hefur
leiktexti Matthíasar verið notaður
óbreyttur en mikið styttur, til þess
að þjóna nýju sjónvarpsverki.
Krístin Jóhannesdóttir
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri
dvaldi í Frakklandi til margra ára
þar sem hún lauk fyrri hluta dokt-
orsgráðu í kvikmyndafræðum við
Universitet Paul Valery og námi í
kvikmyndaleikstjóm í Conservato-
ire du Cinema í París. Hún kom
heim frá_ Frakklandi til að kvik-
mynda „Á hjara veraldar" 1982 og
hefur starfað hér á landi síðan. Hún
hefur meðal annars unnið fyrir
Stúdentaleikhúsið, Nemendaleik-
húsið og stýrt leikritum í útvarpi.
„Glerbrot" er annað leikritið sem
hún leikstýrir fyrir sjónvarpið, hið
fyrra var „Líf til einhvers" sem
sýnt var á nýársdag 1987.
(FréttatUkynning frá sjónvarpinu.)
MIKILL samdráttur varð á sjóð-
félagalánum lífeyrissjóðanna á
milli áranna 1986 og 1987 sam-
kvæmt könnun sem Samband
almennra lífeyríssjóða lét gera
varðandi eftirspurn sjóðfélaga
eftir lífeyrissjóðslánum. Fækk-
un veittra lána 1987 nam um
37% miðað við 30% fækkun árið
1986, að því er fram kemur i
Fréttabréfi Sambands al-
mennra lifeyríssjóða.
Árið 1986 veittu sjóðimir 4.882
lán samtals 1.543 milljónir króna,
en 1987 voru veitt lán til 3.068
sjóðfélaga að fjárhæð 1.117 millj-
ónir króna. Til samanburðar má
geta þess að á árinu 1984 vom
veitt 10.443 lífeyrissjóðslán og
1985 vom veitt 6.913 lán.
Heildarlánsupphæð lækkaði í
krónutölu um 27,5% milli áranna
1986 til 1987. Miðað við hækkun
lánskjaravísitölu milli ára var hins
vegar um 62% raunlækkun að
ræða. Ef árið 1987 er hins vegar
borið saman við 1985 nemur raun-
lækkunin um 94%. Á árinu 1984
lánuðu lífeyrissjóðimir um 63% af
ráðstöfunarfé sínu til sjóðfélaga.
Áætlað er að þetta hlutfall hafí
hrapað niður í 11% á síðasta ári.
Ástæður fyrir þessum sam-
arætti lífeyrissjóðslána em taldar
vera aðallega tvær: Skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóðanna af Hús-
næðisstofnun ríkisins hafa stórau-
kist að undanfömu, enda fara nú
réttindi lánþega hjá Byggingar-
sjóði ríkisins eftir skuldabréfa-
kaupum lífeyrissjóðanna. I öðm
lagi hækkuðu vextir af lífeyris-
sjóðslánum vemlega á síðasta ári.
Vextir vom í ársbyijun 1987 6,2%
en námu í árslok 9,5%.
oq við erm med futtar buðir
af meiriháttar fatnaði.
KARNABÆR
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Laugavegi 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Sími 45800 frá skiptiborði