Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
21
Hagvirki hf.:
Nýtt íbúðahverfi á Seltjarnarnesi
Frá vinstri Sverrir Kristinsson frá Eignamiðlun, sem sér um sðlu lóðanna, Ragnar Atli Guðmundsson
aðstoðarforstjóri, Valdimar Harðarson arkitekt og Páll Gunnlaugsson arkitekt.
HAGVIRKI hf. hefur keypt 5
hektara lands i Kolbeinsstaðamýri
á Seltjamarnesi og er fyrirhugað
að þar risi i fyrsta áfanga 100
ibúðir í fjölbýli og um 70 i sérbýli
á næstu 3 árum. Þegar er búið
að hanna hverfið og hyggst fyrir-
tækið se\ja hveija ióð eða ibúð
fyrir sig ásamt teikningum. Reikn-
að er með að lóð undir raðhús
kosti um 1,5 miiyónir króna.
„Þetta er I fyrsta skipti sem einn
aðili sér um hönnun á stóru svæði
og það sem fyrir okkur vakir er að
ná fram ákveðnum heildarsvip yfir
allt hverfið," sagði Ragnar Atli Guð-
mundsson, aðstoðarforstjóri Hag-
virkis. Fyrirtækið hefur ráðið til sín
þijá arkitekta, þá Valdimar Harðar-
son, Pál Gunnlaugsson og Pétur
Jónsson, sem er landslagsarkitekt,
og hafa þeir hannað öll hús, skipu-
lagt lóðimar, götur, landslag og sam-
eiginleg útivistarsvæði. Lóðimar
verða seldar með viðeigandi teikn-
ingnum og er kaupanda gefið visst
ftjálsræði með innra skipulag ibúð-
anna en ytra útlit er fastmótað af
arkitektunum. Kaupandinn getur
vaiið sinn eiginn verktaka eða óskað
eftir að Hagvirki sjái um allar fram-
kvæmdir eða hluta þeirra. Landið
hefur verið kannað að sögn Ragnars
og kom þá í ljós að um 2,6 metrar
em niður á fast þar sem tekin vom
jarðvegssýni.
„Lóðunum verður ráðstafað á
þessu ári og á næsta ári eiga húsin
að vera fokheld en innréttuð þriðja
árið. Ef allt gengur að óskum verður
ráðist i sölu lóða í siðari áfanga, sem
er svipaður að stærð, þegar á næsta
ári og sami háttur hafður á. Hverfið
ætti þess vegna að verða fullbyggt
og frágengið eftir fjögur ár,“ sagði
Ragnar. „Við munum fylgja þvf eftir
að enginn dragist aftur úr og tefli
framkvæmdir og munum hugsanlega
rifta kaupsamningnum ef illa geng-
ur.“
„Það hafa áður verið gerðar til-
raunir með að ná heildarsvip yfir
ákveðin hverfi án þess að það hafi
tekist nægjanlega vel,“ sagði Valdi-
mar Harðarson, arkitekt. „Ef eitt-
hvað er gefið eftir þá fer allt úr
skorðum. Þess vegna verður haldið
fast við útlit húsanna með samræmi
í gluggasetningu milli raðhúsa og
fjölbýlishúsa, ákveðnir litir ríkjandi
á húsunum, sama þakeftii og sömu
girðingar á lóðarmörkum."
Gert er ráð fyrir þremur 3ja hæða
Qölbýlishúsum með 2ja, 3ja, 4ra eða
6 herbergja ibúðum, eftir endilöngu
hverfinu miðju en raðhús, parhús og
einbýlishús eru með jaðrinum. „Með
þvi að setja fjölbýlishúsin í mitt
hverfið viljum við freista þess að ná
þar fram ákveðnum borgarbrag.
Sjálft útlit húsanna er látlaust, með
gróðurskálum i beinu framhaldi af
setustofunni," sagði Valdimar.
„Það skiptir miklu máli að vel ta-
kist til með þetta verkefni. Sveitarfé-
lagið sýnir okkur mikið traust og ef
allt gengur vel verður það bkkur
gott veganesti þegar önnur sveitarfé-
lög fara út á þessa braut en hún er
alþekkt erlendis og þá jafnvel á
stærra landsvæði," sagði Ragnar.
HITAMÆLAR
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Hvítasunnan:
Músíkmessa
í Eyjum
UM Hvítasunnuna munu Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeist-
ari og Gunnar Kvaran sellóleik-
ari leika í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum ásamt Guðmundi
H. Guðjónssyni organista kirkj-
unnar við hátiðarguðsþjónustu.
Leikin verða verk eftir Haydn,
Bach, Schumann og fleiri, en
Kirkjukór Landakirkju mun flytja
Hallelújakórinn úr óratoríunni
Messíasi. Séra Kjartan Öm Sigur-
bjömsson sóknarprestur í Vest-
mannaeyjum prédikar, en þetta
er síðasta guðsþjónusta hans í
Eyjum áður en hann fer í árs leyfí
og framhaldsnám í Bandaríkjun-
um. Tónlistarþátturinn í kirkjunni
er eins konar ferðakveðja til sókn-
arprestsins og fjölskyldu hans.
Ráðningarstofa
landbúnaðarins:
Útlendingar
ráðnir
til bænda
Ráðningarstofa landbúnaðar-
ins annast nú ráðningu útlend-
inga sem sækjast eftir vinnu hjá
bændum. Umsjón með þessari
þjónustu var áður þjá Ferðaþjón-
ustu bænda.
Tekin eru gjöld af þeim sem óska
eftir þjónustu ráðningarstofunnar
og er skráningargjald fyrir útlend-
inga krónur 2.000, fyrir fullorðna
íslendinga krónur 1.500, unglingar
13—16 ára greiða 1.000 krónur og
böm 12 ára og yngri 500 krónur.
Ráðningargjald sem innheimt er
eftir ráðningu fyrir tvo mánuði eða
skemmri tíma er krónur 3.000 fyrir
útlendinga og fullorðna fslendinga
en 5.000 krónur ef um lengri ráðn-
ingu er að ræða. Ekkert ráðningar-
gjald er tekið vegna bama og ungl-
inga. Forstöðumaður Ráðningar-
stofunnar er Eiríkur Helgason.
Vistun bama 11 ára og yngri
annast Stéttarsamband bænda und-
ir umsjón Halldóru Ólafsdóttur.
RÝMINGAR-
SALA
%
Vegna eigendaskipta og
breyttrar sölustefnu verður
rýmingarsala á ýmsum
vörum hjá okkur
í nokkra daga.
Við erum aðeins
að skapa rými fyrir
nýjar vörulínur!
Notið tækifæri
sem ekki gefst aftur
og gerið hagkvæm kaup.
Á rýmingarsölunni bjóöum viö m.a.:
Verðdæmi
-Heilar tepparúilur Afsláttur 20% Ballet Áður: 139.500 Nú: 111.600
-Teppabúta og afganga 30-50% Ýmsir 5.000 2.500
-Motturogstökteppi 20% L. 1,70 X 2,40 36.025 28.820
-Fyrsta flokks gólfdúka 25% Rikett fm. 595 446
-ítölsk leðursófasett 20% Altana 121.000 96.800
-Sófaborð 30% Turin 15.250 12.200
-Borðlampa 20% Lampi 6.450 5.160
-Amerískmálverk 30% Stærsta gerð 21.900 17.520
Góöirgreiðsluskilmálar— Eurokredit — Visa-raðgreiðslur.
TEPPABVBIN hf.
SUÐURLANDSBRAUT 26, S. 681950 - 84850.
Verið velkomin!