Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
Hliðargötur ferða-
þjónustunnar
/
/*•
Tilvalið þótti að sýna ferðamönnunum hvar landsþekkt skáld bjó á
fyrri öldum, en þegar komið var með ferðamennina á staðinn sáust
varla bæjarrústirnar fyrir alls kyns drasli s.s. olíutunnum, spýtna-
braki, steypurörum o.fl. í baksýn voru raðir af aflóga vinnuvélum.
eftirBirnuG.
Bjamleifsdóttur
Ferðaþjónusta á íslandi hefur
tekið mikinn Qörkipp á allra síðustu
árum ekki sfst í dreifbýlinu. Um
það vitna bæði ferðamálasamtökin
sem stofnuð hafa verið í öllum
landshlutum og ekki síður sú aukna
fjölbreytni í ferðavali sem orðið
hefur. Á mörgum dreifbýlisstöðum
er nú boðið upp á ferðir og aðra
afþreyingu þar sem ekkert sérstakt
var á seyði fyrir ferðamenn fyrir
nokkrum árum. Má þar nefna báts-
ferðir um Breiðamerkurlón, báts-
ferðir með spaðabátum frá Vík,
ferðir á Vatnajökul frá Höfii í
Homafirði, hestaferðir norður Kjöl
og víða um aðra landshluta, hesta-
ferðir, gönguferðir og veiðiferðir á
Amarvatnsheiði, bátsferðir í Mjóa-
§örð og bátsferðir um Breiðaflörð.
Víða um land er hægt að komast
á hestbak, f bátsferðir og í sjó-
stangaveiði. Eftir því sem mér skiist
em ferðimar oft famar með fáa
farþega hveiju sinni svo að ekki er
alltaf mikill hagnaður hjá þeim sem
að ferðunum standa, en framtakið
sýnir aukinn áhuga og aukna með-
vitund um það sem kallast ferða-
þjónusta.
Auk fyrrgreindra ferða eru víða
í boði hinar hefðbundnu skoðunar-
ferðir í bíl þar sem leiðsögumaður
er fenginn til að hafa ofan af fyrir
farþegunum, sýna þeim merkisstaði
og segja frá landi og þjóð. Þegar
slíkar skoðunarferðir eru skipulagð-
ar er haft í huga að velja staði þar
sem einhver eftirminnileg persóna
hefur búið, einhver eftirminnilegur
atburður hefur gerst eða valin er
leið þar sem sést opinber bygging,
atvinnufyrirtæki eða fallegt útsýni.
Ekki er víst að aliir þessir staðir
hafí verið eða séu í alfaraleið dags
daglega og þegar farið er a veija
greiðfærustu ökuleið milli staðanna
sem skoða á eru hugsanlega famar
ýmsar hliðargötur. Og þá getur
ýmislegt óvænt komið í Ijós sem
ekki blasir við frá framhliðinni,
ýmislegt sem enginn hefur tekið
eftir að var til staðar, en ýmislegt
sem hið glögga gestsauga dæmir
staðinn eftir. Þetta minnir á það
„Ekki er víst að allir
þessir staðir hafi verið
eða séu í alfaraleið
dags daglega og þegar
farið er að velja greið-
færustu ökuleið milli
staðanna sem skoða á
eru hugsanlega farnar
ýmsar hliðargötur. Og
þá getur ýmislegt
óvænt komið í ljós.“
þegar forsetaheimsókn var í vænd-
um á ónafngreindum stað á ís-
landi. Bæjarbúar vildu sýna forseta
sínum hvað staðurinn væri hrein-
legur og snyrtilegur, en ekki vannst
tími til að mála allar hliðar húsanna
og voru bakhliðar sumra húsanna
skildar eftir. Þegar forsetinn fór
óvænt f kvöldgöngu um kvöldið
valdi hann fáfamari leiðir og sann-
leikurinn kom í ljós.
Mig langar til að sýna þér, les-
andi góður, fáeinar myndir sem
teknar voru á stöðum sem nýstofn-
uð ferðamálasamtök töldu sýning-
arverða og áhugaverða fyrir ferða-
menn vegna sögunnar sem að baki
bjó. Vonandi verða þessar myndir
til þess að minna okkur á að í skoðu-
arferðum fyrir ferðamenn þarf ekki
síður að huga að umhverfinu en
sögunni. Munum að ferðamennimir
em gestir okkar sem við viljum
gjaman að fái jákvæða mynd af
staðnum okkar. Svo jákvæða að
þeir geti mælt með þvf við vini sína
að þeir fari líka að skoða staðinn.
Ánægður farþegi er nefnilega besta
auglýsingin.
Höfundur er leiðsögumaður.
Þegar ferðamennirnir snéru sér við og ætluðu að ganga inn í hóp-
ferðabilinn blasti við þessi sjón: Brotajámshaugur, grotnandi stýris-
hús af bát, tómir trékassar, rúlla undan vir og fleira i þeim dúr.
Siðan var haldið að fallegum útsýnisstað, en rétt við veginn hafði
einhver losað sig við gamla jólatrés„seriu“, plastfötu, peysu, síldar-
dós, bunka af tímaritum, strigaskó, gosflösku, límtúbu, masónit-
plötur, dós undan bílabóni og svo mætti lengi telja.
Þegar á útsýnisstaðinn sjálfan kom tók ekki betra við: Miðstöðva-
rofn, ryðguð málningardós, leifar af gamalli eldhúsinnréttingu og
við himin bar búðarvog og skældan stól með skærgrænu áklæði.
Ga rðverkfæri
uiMtn
Grandagarði 2 - sími 28855 - 101 Rvík.