Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
43
Félag Sambandsfiskframleiðenda:
Gjaldeyrisverslim
verði gefin frjáls
- hömlur ella settar
á innlendan kostnað
Á aðalfundi SAFF, Félags
Sambandsfiskframleiðenda, var
samþykkt ályktun þar sem segir
að það sé fráleit stefna að binda
gengi íslensku krónunnar á með-
an litlar sem engar hömlur séu
hafðar á innlendum kostnaði.
Telur fundurinn að annaðhvort
verði að takmarka innlendan
kostnað i samræmi við gengis-
skráningu, eða að láta framboð
og eftirspurn ráða verði gjald-
eyris, óháð afskiptum stjórn-
valda. Fram kom að frystiiðnað-
urinn væri nú rekinn með 6,6%
halla, en liallareksturinn hefði
verið 15% ef ekki hefði komið
til gengisfellingarinnar nú.
í ályktunum aðalfundarins er
lagt til að allir helstu útflytjendur
taki upp samstarf um að leita leiða
til „að tryggja að erlendur gjaldeyr-
ir verði aldrei afhentur undir kostn-
aðarverði", og einnig er því beint
til stjómar SAFF að beita sér fyrir
stofnun hagsmunasamtaka með
þatttöku allra fyrirtækja í fisk-
vinnslu.
Á fundinum var gerð grein fyrir
afkomu frystihúsa innan SAFF, en
rösklega 5% tap varð á þeim á
síðasta ári, miðað við þau uppgjör
sem liggja fyrir. Heildartap fram-
leiðenda vegna falls dollarans er
metið á 240 milljónir króna, en það
tap telst bætt til hálfs með hækkun
á sterlingspundi og þýsku marki.
Alls fluttu frystihúsin út 66.400
Úlfur Ragnars-
son sýnir mynd-
verk í Eden
ÚLFUR Ragnarsson læknir sýnir
myndverk í Eden í Hveragerði
um þessar mundir.
Sýningin var opnuð 17. maí og
henni lýkur 30. maí. Þetta er tíunda
sýning Úlfs. Sýnir hann að þessu
sinni 65 fjölbreytilegar myndir,
bæði að efni og stærð. _
Þess má geta að Úlfur hefur
sérstakan áhuga á manneðlinu og
áhrifum þess á framvindu þróunar-
innar og kemur það ljóslega fram
í því sem þama ber fyrir augu.
(Fréttatílkynning)
lestir af sjávarafurðum í gegnum
Sjávarafurðadeild Sambandsins
fyrir 7,4 milljarða króna, þar af
52.800 tonn af frystum afurðum
fyrir rösklega 6,5 milljarða króna.
Verðmæti útfluttra afurða jókst um
6,5% frá árinu áður, en magn þeirra
dróst saman um 3,8%. Veruleg
breyting varð á mörkuðum fyrir
ftystar sjávarafurðir, því í fyrsta
skipti var flutt út meira til Evrópu
en Bandaríkjanna, 20.300 tonn á
móti 18.600 tonnum. Þá varð vera-
leg aukning á útflutningi til Aust-
ur-Asíu, einkum Japans.
Hlutdeild Sjávarafurðadeildar
Sambandsins í heildarvöraútflutn-
ingi landsmanna var 13% á síðasta
ári, en 33% í útfluttum freðflski.
Tryggvi Finnsson var endurkjör-
inn formaður stjómar SAFF.
Morgunblaðið/Bjami
Fulltrúar Rauða kross íslands með islenskt kranavatn sem verður selt um hvítasunnuhelgina til styrkt-
ar þróunarverkefni RKÍ í Eþiópíu. F.v.: Gunnlaugur Geir Snædal, sem hefur umsjón með fjársöfnun-
inni, Hannes Hauksson, framkvæmdastjóri RKÍ, Guðjón Magnússon, formaður RKÍ og Jakobína Þórðar-
dóttir, deildarstjóri Alþjóðadeildar rauða krossins.
Fjásöfnun Rauða krossins;
Vatn á dósum selt um hvítasunnuna
RAUÐI kross íslands stendur
fyrir fjársöfnun um hvítasunnu-
helgina vegna þróunarverkefnis
RKI í Eþiópíu og er markmiðið
að safna 20 milljónum. Selt verð-
ur islenskt kolsýrt kranavatn á
dósum og mim fimleikasamband
Islands annast sölu á fjölförnum
stöðum á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, Suðurnesjum, Vestmanna-
eyjum, Hveragerði, Selfossi og
víðar. Þróunarverkefnið felst
aðallega í vemdun vatnsbóla og
væntir Rauði krossinn þess að
honum takist að tryggja hálfri
milljón manna hreint neysluvatn.
Einnig verður unnið að tijárækt.
Þróunarverkefnið er unnið í sam-
vinnu við Eþíópíska rauða krossinn,
sem hefur átt samstarf við Rauða
kross félög t.d. á Norðurlöndum.
Samstarfið byggir á því að deildir
í viðkomandi landi leggja fram fjár-
magn og fólk og starfa í beinum
tengslum við ákveðna deild
Eþíópíska rauða krossins. Rauði
kross íslands mun starfa í Gojjam-
héraðinu í vesturhluta Eþíópíu.
Stefán Jón Hafstein, sendifulltrúi
RKÍ, er nýfarinn til Gojjam, þar sem
hann mun dvelja í 3 mánuði og
vinna að framkvæmda- og §ár-
hagsáætlun fyrir fyrsta samstarfsá-
rið ásamt forsvarsmönnum Gojj-
am-deildarinnar. í upphafi er gert
ráð fyrir 3 ára samstarfí og munu
fyrstu 2 sjálfboðaliðar Rauða kross
íslands fara út í júlí næstkomandi
og dvelja í 6-12 mánuði. í tengslum
við vemdun lindanna er þeim ætlað
að veita almenningi fræðslu um
hreinlæti og heilsuvemd.
Kostnaður við vemdun eins
vatnsbóls er 75.000 kr. og getur
slík lind þjónað allt að 3.000 manns.
En mengað neysluvatn er einn af
helstu skaðvöldum meðal fátækra
þjóða.
Gojjam-héraðið er 64.000 km að
stærð og era íbúar þess um 3 millj-
ónir. Um 14 þúsund manns era í
Rauða kross deildinni þar og hafa
aðallega starfað að sjúkraflutning-
um, skyndihjálp og fyrirbyggjandi
aðgerðum, m.a. gróðursetningu
tijáa. Gojjam var áður fijósamt
hérað en á síðustu áram hafa að-
stæður þar breyst til hins verra
vegna þess að jarðvegur hefur ýmist
fokið vegna þurrka eða skolast burt
í flóðum.
Hver dós af vatni kostar 200
krónur en einnig verða sendir gíró-
seðlar á öll heimili.
Iceland Seafood Corporation:
Erlendur Einarsson og Gísli
Jónatansson úr stjórn
Á aðalfundi Iceland Sefood
Corporation, sölufyrirtækis
Sambandsins í Bandarikjunum, á
Hótel Sögu í gær var staðfest
skipan nýrrar stjórnar félagsins.
Erlendur Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður fyrirtækisins,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs
og Gisli Jónatansson, kaupfé-
lagsstjóri á Fáskrúðsfirði, náði
ekki kjöri sem annar af tveimur
fulltrúum SAFF, Félags Sam-
bandsfiskframleiðenda, á aðal-
fundi SAFF á þriðjudaginn. í
hans stað kemur Hermann Hans-
son, kaupfélagsstjóri á Höfn í
Hornafirði.
Auk Hermanns var Marteinn
Friðriksson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar á Sauðárkróki, endur-
kjörinn í stjómina af SAFF, og af
hálfu Sambandsins vora þrír menn
tilnefndir; Guðjón B. Ólafsson, sem
Morgunblaðið/Sverrir
Guðjón Pálsson eigandi íshússins og ungur viðskiptavinur í nýju
ísbúðini.
Gerðuberg:
Ný ísbúð opnuð
NÝ ÍSBÚÐ hefur verið opnuð
í Verslunarhúsinu í Gerðubergi
og ber hún heitið íshúsið. Boð-
ið er upp á 15—20 sérlagaða
ísrétti auk veqjulegs íss.
Eigandi íshússins er Guðjón
Pálsson, byggingameistari, og á
hann raunar allt Verslunarhúsið
þar sem koma til með að vera 14
fyrirtæki. Þegar era komin í hú-
sið eftirtalin fyrirtæki auk ís-
hússins: Blóm og speglar, Vídeó-
höllin, Kaffihúsið, Hárhúsið og
Snyrtistofan Viktoría.
Húsafell:
Tjaldstæðin lokuð
um hvítasunnuna
Mikil eldhætta
í skóginum
TJALDSTÆÐIN í HÚsafeUs-
skógi verða lokuð nú um hvíta-
sunnuhelgina vegna mikillar
eldhættu.
Kristleifur Þorsteinsson bóndi á
Husafelli sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði ákveðið að
loka tjaldstæðunum' vegna eld-
hættu, en hann hefur undanfama
daga barist við sinuelda og hefur
slökkviliðið átt fullt í fangi við að
ráða við eldinn. Kristleifur vildi því
beina þeim tilmælum til þeirra sem
eiga sumarbústaði í skóginum að
fylgjast vel með þeim og sjá til
þess að þar yrði aðeins ábyrgt fólk
yfir helgina þar sem það gæti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar ef
kviknaði í skóginum.
Auk eldhættunnar er enn frost
í jörðu og gróður viðkvæmur og
því ekki að ástæðulausu að tjald-
stæðunum er lokað. Þau verða
síðan opnuð um næstu mánaðamót
eins og venjulega.
Guðmundur
Kristinn SU
seldi ytra
Guðmundur Kristinn SU seldi
í Grimsby 77 tonn af þorski á
þriðjudag. Fékk hann 4 milljónir
fyrir aflann, meðalverð 52,22
krónur.
177 tonn af gámafiski seldust í
Bretlandi á þriðjudag, og fengust
12,8 milljónir króna fyrir. Megin-
hlutinn var ýsa, 122 tonn, og feng-
ust fyrir hana 79,81 króna að með-
altali. Meðalverð yfír heildina var
72,41 króna.
er formaður stjómarinnar, Sigurður
Markússon, framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar Sambandsins,
og William D. Boswell, lögfræðing-
ur Ieeland Seafood í Bandaríkjun-
um. Fimm menn era í nýju stjórn-
inni í stað sex áður.
Gísli Jónatansson sagði í samtali*-
við Morgunblaðið í gær að ekki
hefði verið um formlegt framboð
að ræða, en fundarmenn hjá SAFF
hefðu vitað að hann væri í kjöri.
Gísli vildi ekki tjá sig um hugsan-
legar ástæður þess að hann var
ekki endurkjörinn.
Martin Finkelstein, settur fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Corporation, flutti skýrslu um starf-
semi fyrirtækisins síðasta ár og
kom þar fram að verðmætaaukning
jókst um tæp 10% frá árinu 1986,
úr 157,1 milljónum dollara í 172,7
milljónir dollara, þrátt fyrir 6%
magnminnkun, niður í 46.300 tonn.
Guðjón B. Olafsson sagði í san\-
tali við Morgunblaðið í gær að eftir
miklar verðhækkanir á fyrri hluta
síðasta árs hefðu margir staðir tek-
ið fiskrétti af matseðlum sínum á
síðasta ársijórðungi og hefðu því
safnast upp veralegar birgðir hjá
fyrirtækinu. Verð hefði síðan farið
lækkandi frá áramótum og tap
vegna þess næmi nokkram milljón-
um dollara.
Aðalfundur Iceland Seafood Lim-
ited, sölufyrirtæki Sambandsins í
Evrópu, var einnig haldinn í gær,
en engar breytingar urðu á stjóm-
inni þar. í henni sitja: Guðjón B.
Ólafsson, stjómarformaður, Sigurð-
ur Á. Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri, Sigurður Markússon,
Tryggvi Finnsson og Guðni Jóns-
son. Fyrirtækið seldi fískafurðir
fyrir 40,1 milljón sterlingspunda,
sem er nær 18% verðmætaaukning
frá fyrra ári. í fyrra var sala á freð-
físki til Evrópu í fyrsta sinn meiri
en til Bandaríkjanna.