Morgunblaðið - 19.05.1988, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hlíðartúnshverfi
Mosfellsbæ
Blaðbera vantar í Hlíðartúnshverfi Mosfellsbæ.
Upplýsingar í síma 83033.
Morgunblaðið.
Laus staða
Við námsbraut í lyfjafræði lyfsala í lækna-
deild Háskóla (slands er laus til umsóknar
hlutastaða lektors (37%) í félagslyfjafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir í félagslyfjafræði, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 10. júní nk.
Menn tamáiaráðuneytinu,
10. maí 1988.
Apótek
Starfskraftur óskast í Borgar Apótek, hálfan
eða allan daginn. Reynsla af störfum í apó-
teki æskileg. Óskum einnig eftir fólki til sum-
arafleysinga.
Umsækjendur, ekki yngri en 20 ára, leggi inn
hjá auglýsingadeild Mbl. skriflega umsókn
með upplýsingum um aldur og fyrri störf
fyrir 22. maí nk. merkt: „T - 3737“.
Borgar Apótek
Álftamýri 1-3.
VBS Þróttur
Starfskraft vantar í sumarafleysingar við
símavörslu og afgreiðslustörf.
Upplýsingar í síma 25300.
Kjötiðnaðarmaður
Stór matvöruverslun úti á landi óskar að
ráða kjötiðnaðarmann frá 1. júní nk.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Kaupmannasamtaka Islands á 6. hæð í Húsi
verslunarinnar.
GILDIHF Wt
Birgðavörður
Óskum að ráða birgðavörð. Vaktavinna.
Skriflegar umsóknir er greini frá aldri og fyrri
störfum óskast sendar starfsmannastjóra,
fyrir 25. maí.
Gildihf.,
Hóte/Saga,
v/Hagatorg.
Vélstjóri
Vélstjóri óskast á Sigrúnu ÍS 900 sem er á
rækjuveiðum og frystir aflann um borð.
Upplýsingar í símum 94-3204, 94-3161 og
985-23925.
Stýrimaður með
framhaldsmenntun
(Diploma in shipping)
óskar eftir góðu starfi. Hef reynslu sem stýri-
maður og við alhliða flutningaþjónustu hjá
skipafélagi.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Shipping -4295“.
íslenskt-franskt
eldhús
Óskum að ráða starfskraft við útkeyrslu og
sölumennsku sem allra fyrst. Þarf að hafa
góða framkomu og vera reglusamur.
Upplýsingar á staðnum.
íslenskt-franskt eldhús,
Völvufelli 17,
sími 71810.
Lögregluvarðstjóri
Staða varðstjóra í lögregluliði umdæmisins
með aðsetur í Grundarfirði er laus til umsókn-
ar frá og með 15. júní nk.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsókn-
arfrestur til 5. júní nk. Nánari uppl. veitir
Eðvarð Árnason, yfirlögregluþjónn, sími á
skrifstofu 93-81220, heima 93-81253.
Sýslumaður Snæfelsnes- og
Hnappadalssýslu.
Bæjarfógetinn í Ólafsvík.
18. mai 1988.
Jóhannes Árnason.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STfiDUR
Læknaritari
Læknaritari óskast í 100% starf á háls-,
nef- og eyrnadeild.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma
696204 milli kl. 10.00 - 12.00.
Starfsmaður-
sumarafleysing
Starfsmaður óskast í 100% starf á líndeild
í sumar.
Upplýsingar gefur línstjóri í síma 696585.
Hjúkrunarfræðingar
óskast nú þegar til starfa í sumarafleysingar
og föst störf. Ýmsir vaktmöguleikar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
Vélavörður
II. vélstjóra vantar nú þegar á mb. Saxhamar
frá Rifi sem er á veiðum með fiskitroll en fer
síðan á veiðar með rækjutroll. Upplýsingar
í síma 93-66627.
Vantar sumarstarf
Framhaldsskólakennara (í raungreinum)
vantar vinnu í Reykjavík í júní og júlí.
Upplýsingar á kvöldin í síma 29345.
Ertu ungurog
hress...
og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verk-
efni? Ef svo er þá óskum við eftir fólki til
starfa við nýja og fullkomna einingaverk-
smiðju á Suðurhrauni 2, Garðabæ.
Hafir þú áhuga þá hafðu samband við verk-
stjóra (Jónas), í síma 651444 frá kl. 10.00-
12.00 nk. fimmtudag og föstudag.
Smiðir - járnamenn
Óskum að ráða smiði og járnamenn til starfa
í Bolungavík.
Upplýsingar í símum 94-7350 og 985-28283.
Jón Friðgeir Einarsson,
Byggingaþjónustan, Bolunga vík.
Rafeindavirki
Tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð hf. er eitt
af stærstu tölvufyrirtækjum á Islandi. Við höfum
umboð fyrir búnað frá Digital, Ericsson, NEC,
Tektronix svo eitthvað sé nefnt.
Starfsmenn tölvudeildar Skagfjörð eru um
þrjátíu. Þetta er samstilltur hópur, sem ein-
kennist af elju og áhuga.
Við auglýsum eftir starfsmanni á vélbúnaðar-
svið.
Starfið:
- Viðhald tölvubúnaðar frá ofangreindum
framleiðendum.
- Sérsvið PC, skjáir og prentarar.
- Vinna í nánu sambandi við notendur.
- Að vinna í hópi ungs fólks, sem einkenn-
ist af framsækni og vinnugleði.
Við leitum að starfskrafti:
- sem hefur áhuga á tölvum og tölvutækni,
- sem hefur ánægju af samskiptum við ann-
að fólk,
- sem er fljótur að tileinka sér nýjungar,
- sem getur unnið sjálfstætt og skipulega,
- sem er tilbúinn að vinna langan vinnudag,
- sem skilar árangri.
Menntun:
Rafeindavirkjun.
Ef þú vilt starfa innan fyrirtækis í örum
vexti, og leggja hart að þér, hafðu þá sam-
band við Jónínu G. Jónsdóttur eða Jóhann
Þ. Jóhannsson milli kl. 13.00 og 17.00 í síma
24120.
KRISTJÁN Ó
SKAGFJÖRD HF
Hólmaslóð 4 Box 906 121 Reykjavik