Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
61
Eldsneytislaus tveggja hreyfla vél:
Sveif vélarvana 50 kílómetra
og lenti heilu og höldnu
TVEGGJA hreyfla flugrél af
gerðinni Piper Aerostar, skráð í
Mexíkó, varð eldsneytislaus 27
sjómflur út af Reykjanesi klukkan
rúnflega níu á laugardagskvöldið.
Flugmanninum tókst að láta vél-
ina svífa i 21 þúsund feta hæð í
15 mínútur og lenti hún heilu og
höldnu á Keflavíkurflugvelli. A
ferð með flugmanninum, Svia sem
flogið hefur hingað 25-30 sinnum,
voru 3 félagar hans. Þeir voru á
leið frá Goose Bay á Labrador til
Þýskalands. Eldsneytisskortinn
má rekja til þess að rafmagns-
dæla, sem flytur bensin úr vara-
geymi í aðaltanka, fór ekki i gang.
Við athugun flugvirkja kom i Ijós
að sprungnu öryggi var um að
kenna. Skúli Jón Sigurðsson deild-
arsjóri hjá Loftferðaeftirlitinu
segist ekki muna til þess að flug-
manni hafi áður tekist að bjarga
sér úr svipaðri raun með þessum
hætti.
Það var klukkan 19.57 að flug-
maðurinn, sem hafði verið á eðlilegri
flugleið og í sambandi við flugum-
ferðarstjóm í Reykjavík, tilkynnti að
hann nseði ekki bensíni af varageymi
á aðaltanka og ætti aðeins eftir elds-
neyti til klukkustundar flugs. Hann
var þá staddur um 200 sjómflur und-
an landinu. Flugvél flugmálastjómar
var þegar kölluð út, Landhelgis-
gæslan sendi Fokker-vél sína til að-
stoðar og þyrla og eldsneytisvél frá
Vamarliðinu voru til taks. Vél Flug-
málastjómar var komin að vélinni
klukkan tíu mínútur fyrir níu og tutt-
ugu og fímm mínútum síðar misstu
báðir hreyflamir afl. Þá var vélin í
21 þúsund feta hæð og 27 sjómflur,
50 kflómetra, frá Keflavík. Vélinni
var leiðbeint í áttina til Keflavíkur-
flugvallar og, eftir að hafa svifið
Morgunblaði8/PJJ
Skrautlegt stél Dash 7-flugvélar
frá London City Airways.
brautum jafnframt því sem hún
getur komið mjög hratt inn þar sem
aðflugsiými er þröngt, en hvort
tveggja á við London City-flugvöll-
inn. Enn sem komið er hafa flug-
mála-, umhverfis- og borgaryfirvöld
ekki gefíð leyfi til rekstrar annarra
flugvélategunda frá London City
en vonir standa til að leyfðar verði
lendingar og flugtök flugvéla á
borð við hina hljóðlátu flögurra
hreyfla þotu British Aerospace 146
áður en langt um líður. Með tilkomu
slíkra véla eykst notagildi London
City-flugvallarins enn meir því þá
gefst færi á að fljúga til fjarlægari
borga í Evrópu sem eru ekki síður
mikilvægar í viðskiptaheiminum,
s.s. Genf, Mflanó og Frankfurt svo
örfá dæmi séu nefnd. Bretar hafa
nú uppgötvað mikilvægi þess að
hafa flugvöll í hjarta stórborgarinn-
ar þvi æ meiri tími fer til spillis hjá
dýrmætum starfskröftum við að
koma sér til og frá flugvöllum, jafn-
vel þrisvar sinnum lengri tfmi en
það tekur að fljúga milli staða eins
og París og London. _ pjj
vélarvana um háloftin í 15 mínútur,
lenti hún þar heilu og höldnu klukk-
an 21.31.
Flugvélin er af gerðinni Piper
PA-60, Aerostar. Hún er skráð í
Mexíkó og ber einkennisstafína XB-
ANQ. Flugmaður og eigandi vélar-
innar er sænskur kaupsýslumaður.
Með honum í för voru þrír félagar
hans. Svíinn mun hafa flogið þessa
leið 25-30 sinnum áður. Þeir félagar
höfðu hér viðdvöl eina nótt en héldu
til Þýskalands frá Reykjavíkurflug-
velli á sunnudag. Þá hafði vélin ver-
ið yfirfarin og komið í ljós að sprung-
ið öryggi hafði valdið því að bensín-
dælan starfaði ekki.
„Þetta fór eins vel og hugsast
gat,“ sagði Skúli Jón Sigurðsson
deildarstjóri hjá Loftferðaeftirlitinu.
Hann sagðist ekki muna eftir hlið-
stæðu tilviki áður. „Það hefur verið
talsvert um það undanfarið að menn
hafi lent hér á síðustu dropunum,
eða jafnvel bensínlyktinni einni sam-
an, og ófáir hafa farið í hafíð en ég
hef aldrei horft upp á neitt í líkingu
við það að maður nái að láta tveggja
hreyfla vél svífa á dauðum mótorum
50 kflómetra leið 7 kflómetra uppi í
háloftunum."
Morgunblaðið/PTJ
Þessi mynd var tekin af tveggja hreyfla PA-60 „svifflugvélinni" á
Reykjavíkurflugvelli á sunnudag. Þá voru eigandinn og félagar hans
að undirbúa ferð sína til Þýskalands.
Vaxtasneið
Afmæli sreikningsins
er heil kaka
út af fyrir sig
Afmælisreikningur er sterkur reikningur sem upphaflega var stofnaður
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans 1986 og var aðeins opinn út afmælisárið.
Reikningurinn öðlaðist skjótt miklar vinsældir og hefur
nú verið opnaður á ný. Afmælisreikningur er að fullu verðtryggður og gefur
að auki fasta 7,25% ársvexti allan binditímann sem er aðeins 15 mánuðir.
Hann hentar því mjög vel til almennra
tímabundinna nota og er /f Landsbanki
auk þess kjörin afmælisgjöf. ' S A IsldndS
Banki allra landsmanna