Morgunblaðið - 19.05.1988, Síða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
Reuter
Alaln Prost fagnar sínum 30. sigri
í Formula 1-keppni í Mónakó
Prost
vann sinn
30. sigur
Frakkinn Alain Prost vann sinn
þrítugasta sigur í Formula 1
kappakstri, þegar hann kom fyrstur
í mark í Mónakó-kappakstrinum á
sunnudaginn. Prost
Gunnlaugur vann á McLaren eft-
Rögnvaldsson jr að félagi hans
skrifar Ayrton Senna gerði
sig sekan um mistök
á lokasprettinum eftir að hafa leitt
,keppnina í 66 af 78 hringjum sem
eknir voru.
Prost hefur nú góða forystu í heims-
meistarakeppni ökumanna, en Ger-
hard Berger frá Austurríki er hon-
um næstur. Hann náði öðru sæti í
Mónakó á Ferrari. ítalinn Michele
Alboreto varð þriðji á Ferrari. „Ég
trúði ekki mínum eigin augum, þeg-
ar ég sá bremsuförin eftir Senna
þar sem bíll hans rakst á. Ég var
alveg búinn að sætta mig við annað
sætið, fór varlega og ætlaði ekki
að lenda í klandri á braut sem er
erfíð þar sem hún liggur á venjuleg-
um götum með veggi á varasömum
stöðum. Ég reyni að ná heimsmeist-
aratitilinum aftur, en aðeins með
því að fara varlega“ sagði Prost
eftir sigurinn. Senna vann síðustu
keppni og verður að teljast líklegur
til afreka í ár. Brasílíumaðurinn
Nelson Piquet hlaut titil ökumanna
í fyrra, en átti ekki velgengni að
fagna í Mónakó. Ekið var á bíl
hans áður en ræst var og hann
komst ekki af stað. Bretinn Nigel
Mansell hætti í 33. hring eftir að
Michele Alboreto ók utaní Williams
bíl hans, sem skemmdist.
Aðeins 10 bílar af 26 luku keppni,
sem var sú þriðja af 16 sem gilda
til heimsmeistaratitls Formula 1
ökumanna.
Lokastaðan í Mónakó aksturstími klukku-
stundir
1. Alain Prost, McLaren.1:57,17.089
2. Gerhard Berger, Ferrari...1:57,37.499
3. Michele Alboreto, Ferrari.1:18,33.400
4. Dereck Warwick, Arrows hring á eftir
5. Jonathan Palmer, Tyrell hring á eftir
6. Riccardo Patrese, Williams hring á eftir
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Þmmuskot Júlíusar
ná 100 km hraða
Skotkraftur landsliðsmanna mældur í Japan
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik er nýkomið úr
keppnisferð til Japan. Auk
þess að leika þar fjóra lands-
Íeiki voru framkvœmdarýms-
ar mælingar á íslensku leik-
mönnunum og m.a. mældur
skotkraftur. Þar var Júlíus
Jonasson fremstur í flokki og
samkvæmt niðurstöðum
mælinganna ná þrumuskot
Júlíusar 100 km. hraða.
Það voru nemendur í íþrótta-
háskólanum í Tókyó sem
stóðu fyrir þessum mælingum, en
hugmyndin var að komast að hve
líkamlega sterkir
Július íslensku leikmenn-
Sigurjánsson jmjr eru. Japanska
sknfar landsliðið, sem
tekur einnig þáttí
Morgunblaðið/Júlíus
Júlfus Jónasson lyftir sér upp í Ólympiuhöllinni í Tókýó. Hvort þetta skot hans náði
100 km. hraða er ekki vitað, en í netið fór knötturinn.
Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, er hér kominn
í skotstöðu með íslenska landsliðinu 1977. Hann hefur greini-
lega engu gleymt.
Skotkraftur
landsliðsmanna
Hér er listinn yfír skotföstustu leikmenn
landsliðsins. Fyrst kemur meðaltal úr þremur
skotum og í sviga fastasta skot viðkomandi
leikmanns:
Júlíus Jónasson.............99,3 (100)
Stefán Kristjánsson.........96,3 (98)
Óskar Ármannsson............94,6 (95)
Birgir Sigurðsson...........94,0 (96)
Jakob Sigurðsson............93,6 (96)
Ámi Friðleifsson............93,6 (96)
Jón Hjaltalín Magnússon.....93,5 (94)
Bjarki Sigurðsson...........91,6 (96)
Einar Þorvarðarson..........89,3 (91)
Guðmundur Guðmundsson.......89,0 (90)
Geir Sveinsson..............86,6 (88)
Atli Hilmarsson.............86,3 (89)
Karl Þráinsson..............84,6 (87)
Guðmundur Hrafíikelsson.....83,3 (86)
Hrafn Margeirsson...........82,0 (84)
Þorgils Óttar Mathiesen.....81,0 (83)
Ólympíuleikunum í Seoul, mun
svo nota niðurstöðumar úr þess-
um mælingum við undirbúning
sinn og takmarið er að ná sama
styrk og íslensku leikmennimir.
Auk þess að mæla skotkraft fóm
einnig fram mælingar á stökk-
krafti, húðfitu, vöðvastyrk og hve
liðugir íslensku leikmennimir
væm. Það var þó útkoman í könn-
unni á skotkrafti íslensku lands-
liðsmannanna sem _ vakti mesta
athygli. Júlfus Jonasson átti
fastasta skotið og mældist hraði
boltans 100 km. hraða á klukku-
stund.
KrafturíJónl
Jon Hjaltalín Magnússon, formað-
ur HSÍ, sem var ein mesta skytta
landsliðsins hér á ámm áður, tók
einnig þátt í þessari könnun. Hann
náði mjög góðri útkomu og hafði
á orði að hann þyrfti greinilega
að taka handknattleiksskóna fram
að nýju!
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKIR
Amljótur valinn
í fyrsta skipti
Sveinbjörn Hákonarson tekinn í sátt
Amljótur Davíðsson hefur verið
valinn í landsliðshópinn fyrir
leikina gegn Portúgölum og ítölum
í undankeppni Olympíuleikanna.
Þetta er f fyrsta sinn, sem hann
er valinn í landsliðshóp, en auk
hans hafa þrír leikmenn í hópnum
ekki leikið a-landsleik, þeir Guð-
mundur Hreiðarsson, Kristinn R.
Jónsson og Þorsteinn Guðjónsson.
Siegfried Held, landsliðsþjálfari,
sem kemur til landsins í dag, valdi
21 leikmann að þessu sinni. Leikur-
inn gegn Portúgölum verður á
Laugardalsvellinum á þriðjudaginn,
én 29. maí verður leikið gegn ítölum
á sama stað.
Sveinbjöm Hákonarson hefur verið
tekinn í sátt, en sem kunnugt er
fór hann ekki með í leikina gegn
Hollendingum og Austur-Þjóðveij-
um vegna misskilnings.
Eftirtaldir leikmenn eru í hópnum,
landsleikjafjöldi í sviga:
Friðrik Friðriksson, B-1909 (10),
Birkir Kristinsson, Fram (2), Guð-
mundur Hreiðarsson, Víkingi (0),
Ágúst Már Jónsson, KR (16), Ólaf-
ur Þórðarson^ ÍA (18), Heimir Guð-
mundsson, IA (4), Guðmundur
Steinsson, Fram (17), Viðar Þor-
kelsson, Fram (15), Þorsteinn Þor-
steinsson, Fram (8), Kristinn R.
Jónsson, Fram (0), Jón Grétar Jóns-
son, Val (1), Valur Valsson, Val
(3), Halldór Áskelsson, Þór (17),
Þorvaldur Örlygsson, KA (4), Guð-
mundur Torfason, Winterslag (11),
Amljótur Davíðsson, Fram (0), Pét-
ur Ámþórsson, Fram (14), Ingvar
Guðmundsson, Val (6), Rúnar
Kristinsson, KR (4), Þorsteinn Guð-
jónsson, KR (0) og Sveinbjöm Há-
konarson, IA (8).
Ormarr Örlygsson gaf ekki kost á
sér, vegna prófa í Háskóla íslands.
Arnljótur Davfósson.
íttímw
FOLK
■ LJUBOMIR Radanovic, fyr-
irliði júgóslavneska landsliðsins í
knattspymu, skrifaði undir tveggja
ára samning í gær við belgíska 1.
deildarliðið Standard Liege. Rad-
anovic er 27 ára vamarmaður og
á að baki 31 landsleik. Hann hefur
leikið með Partizan Belgrad í
júgóslavnesku 1. deildinni.
I KLAUS Allofs, fyrirliði vest-
ur-þýska landsliðsins í knattspymu,
vonast til að verða orðinn góður
hnémeiðslunum fyrir úrslitakeppni
Evrópumótsins sem hefst 10. júní.
AUofs, sem leikur með franska lið-
inu Marseille, fór í uppskurð 25.
apríl. Hann sagðist geta farið að
sparka bolta aftur fyrir mánaðar-
mót. „Ef aðgerðinn heppnast vel
vonast ég til að geta leikið með
vestur-þýska landsliðinu í síðasta
æfíngaleiknum fyrir EM gegn Jú-
góslövum 4. júní,“ sagði Allofs.