Morgunblaðið - 26.05.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
37
Brú
miltí
heims-
álfa
Enskur
verkfræð-
ingur, dr.
William
Brown,
virðirfyrir
sér nýja brú
á Sæviðar-
sundi, en
húntengir
saman Evr-
ópu og Asíu
I Istanbúlí
Tyrklandi.
Brown
hannaði
brúna, sem
verðurvígð
á sunnudag-
inn.
Reuter
Flugmenn hætta við lendingu á Heathrow;
Tóku eftir annarri
þotu á flugbrautinni
Lundúnum, Reuter.
FLUGMENN Concorde-þotu
breska flugfélagsins British
Airways hættu við lendingu á
Heathrow-flugvelli á föstudag
þegar þeir tóku eftir annarri
ERLENT
‘þotu á brautinni, að þvi er tals-
maður flugfélagsins sagði á
mánudag.
Talsmaðurinn sagði að ekki
hefði verið hætta á árekstri. Þo-
tunni hefði verið flogið í einn hring
áður en henni hefði verið lent.
Breskt dagblað skýrði frá því
að þotan hefði verið á hundrað
metra hæð yfir flugbrautinni þeg-
ar flugmennimir hefðu séð hina
þotuna. Farþegamir hefðu þrýstst
aftur í sætin þegar þotan hefði
hækkað flugið.
Michael Dukakis:
Velgengni að heiman en
erfiðleikar heimafyrir
Boston, frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara MorgunbUðsina.
MICHAEL Dukakis, fylkisstjóri Massachusetts og tilvonandi fram-
bjóðandi demókrata i forsetakosningunum síðar á þessu ári, stendur
frammi fyrir allt að 350 miljjón dollara halla á fjárlögum fylkisins
á yfirstandandi fjárhagsári. Dukakis hefur verið óþreytandi í barát-
tunni um útnefningu demókrata, að benda á hæfni sína í að koma
saman hallalausum fjárlögum og að hann sé eini frambjóðandinn
sem hafi reynslu af þvi að semja fjárlög. Samkvæmt skoðanakönnun-
um nýtur Dukakis mun meira fylgis en George Bush, frambjóðandi
repúblikana.
Undanfama daga hafa verið
miklar umræður á fylkisþinginu um
fjárlög rikisins og í hverri viku
berast nýjar upplýsingar um fyrir-
sjáanlegan halla á þessu ári. Fyrir
þremur til flórum vikum gerðu for-
ustumenn demókrata hér i Massa-
chusetts ráð fýrir að gjöld yrðu
70-90 milljónir dollara umfram
tekjur. Nú gera margir ráð fyrir
allt að 350 milljóna dollara halla.
Ráðgjafamefnd fylkisstjórans telur
að hallinn verði 252 milljónir doll-
ara, en á fimmtudag i siðustu viku
sagðist Richard Voke, þingmaður
demókrata og formaður ljárhags-
nefndar fulltrúadeildar fylkisþings-
ins, að Kklega yrðu gjöld umfram
tekjur 350 miljjónir dollara. Frank
Keefe, aðalráðgjafi Dukakis ( fjár-
lögum, viðurkennir að hallinn geti
orðið mun meiri en ráðgjafar fylkis-
stjórans reikna með.
Ráðgjafar Dukakis gera ráð fyr-
ir að brúa hallann með því að taka
fé úr ýmsum sjóðum sem fylkið á
til að mæta óvæntum útgjöldum.
Ein aðalástæða þess að Dukakis
horfir fram á meiri útgjöld en tekj-
ur leyfa er að aukning tekna hefur
verið Ktil á Uðnu ári, vegna þess
að efnahagslífið hefur ekki vaxið
eins mikið og áður. Á undanfömum
fimm ámm hefur verið hægt að
mæta auknum útgjöldum með
auknum tekjum án þess að auka
skattheimtu. Þessi leið er ekki leng-
ur fær og því verður Dukakis að
gripa til aðgerða til að halda flár-
lögum næsta árs (jafnvægi. Næsta
fjárhagsár fylkisins byijar 1. júlí
næstkomandi og hvemig Dukakis
tekst að ráða fram úr aðsteðjandi
fiárhagsvanda er talið gefa góða
vísbendingu um það hvemig hann
myndi stjóma fjármálum Banda-
ríkjanna ef hann næði kjöri sem
forseti.
Fjárlög næsta árs eru nú til
umræðu f fylkisþinginu. Dukakis
lagði fyrir helgi fram tillögur um
92 milljóna dollara niðurskurð á
ýmissri þjónustu, þar á meðal við
ófrískar unglingsstúlkur og AIDS-
rannsóknir. Talsmenn demókrata á
nær öUum tillögum fylkisstjórans.
Meirihluti demókrata feUdi einnig
á mánudag tillögur repúblikana um
272,7 miHjóna dollara niðurskurð.
Fjárlagafmmvarpið sem liggur fyr-
ir þinginu gerir ráð fyrir 11.860
milljóna dollara útgjöldum á næsta
fjárhagsári.
Fyrir fylkisþinginu liggja nú til-
lögur um aukna skatta. Samkvæmt
þeim verður settur söluskattur á
áfengi og aðgöngumiða sem kosta
meira en 16 dollara (um 650 ísl.
krónur). Gert er ráð fyrir að skatt-
ur á áfengi skili fylkinu um 30
milljónum dollara í auknar tekjur
og skattur á aðgöngumiða 10 millj-
ónum dollara. Talsmenn repúbUk-
ana hafa lagst gegn þessum tillög-
um með þeim rökum að þær komi
niður á þeim sem síst skyldi og
verið sé að breyta mannamótum,
eins og íþróttakappleikjum, í
skemmtanir sem aðeins hinir betur
stæðu geti sótt. Skatturinn á að-
göngumiða er mjög umdeildur enda
Boston með helstu íþróttaborga
Bandaríkjanna. Meirihluti demó-
krata hefiir einnig lagt fram tillögu
um sérstakan 5% söluskatt á vindl-
inga og telur að hægt sé að afla
40 milljónum dollara f auknar tekj-
ur með honum.
Dukakis segir að vandamál við
að koma saman Qárlögum fyrir
næsta Qárhagsár sé ekki meira en
á undanfömum árum og vUl gera
sem minnst úr aðsteðjandi vanda.
En vegna hugsanlegs framboðs
hans sem forsetaefni demókrata
taka fleiri eftir umræðum um §ár-
lögin en áður. Repúblikanar benda
hins vegar á að útgjöld Massa-
chusetts hafi aukist verulega um-
fram fjárlög bandarfska rfkisins á
undanfömum fímm ámm og ljóst
hafi verið fyrir nokkmm ámm að
f óefni stefndi. Frá 1983 til 1988
hafa útgjöld fylkisins aukist um
61,6% en rfkissjóðs um 30,1%.
Launagreiðslur og kostnaður við
ráðgjöf hafa hækkað um 112,5% á
sfðustu fimm ámm, en fjárhagsað-
stoð og heilsugæsla við láglauna-
fólk hefur hækkað um 49,1%.
Michael Dukaltís og kona hann Kitty.
þinginu hafa hins vegar lagst gegn
Reuter
UBO
Kaldsólaðir gæðahjólbarðar frá Hollandi.
_______Hagstætt verð og greiðslukjör.___
Tökum fulla ábyrgð á gæðum hjólbarðanna.
Hjólbarðadeild opin 9-6 virka daga.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
vörubílahjólbarðar