Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 4
4 !8et IMUl .r HUOAQUXIVGIK ,(IiaAJaMUOflOIA MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988 Undirritaði bókun um sam starf á sviði jarðvísinda Kínaheimsókn iðnaðarráðherra: FRIÐRIK Sophusson iðnaðarráðherra er nýkominn heim úr opin- berri heimsókn til Kína og var markmið ferðarinnar aukið sam- starf á sviði jarðhitamála. í ferðinni átti Friðrik viðræður við kínverska ráðamenn og undirritaði hann og Zhu Xun, ráðherra jarðefna og jarðauðlinda í Kínverska alþýðulýðveldinu, bókun um samstarf á sviði jarðvísinda og jarðhitamála. Framkvæmd verkefn- isins er þó háð því að kinversk yfirvöld geti greitt fyrir ráðgjöf- ina með vörum eða þjónustuviðskiptum. Friðrik sagði að hér væri ekki um stórviðskipti að ræða, en þau gætu samt orðið ákaflega mikil- væg fyrir síðari tíma. Hugsanlegt væri að Álafoss gerði verksamning við Kínveija um að þeir ynnu íslen- skar ullarvörur í staðinn. Hann kvaðst bjartsýnn á að úr þessu S;ti orðið enda hefðu forystumenn afoss áhuga á að reyna fyrir sér með þessum hætti. Vandi ullar- vörufremleiðenda hér á landi væri mikill, vinnulaun hér mun hærri en í Kína og því kæmi vel til greina að hluti framleiðslunnar færi fram í þar, en markaðskipulag Álafoss notað við dreifíngu og sölu vörunn- ar. Aðalatriðið væri að komast inn á þennan markað og mynda nauð- synleg viðskiptasambönd á þessum markaði sem gæti orðið afar mikil- vægur í framtíðinni. Hann sagði að búist væri við frekari samning- um við Kínveija síðar á árinu. Fram kom hjá Friðrik að vöru- skipti okkar við Kínveija, eins og sakri stæðu, væru okkur afar óhagstæð. Hingað væru fluttar inn vörur fyrir um 100 milljónir króna en útfluttningur okkar væri aðeins um 7 milljónir. Kínaheimsókn iðnaðarráðherra stóð yfír dagana 20. - 27. maí og voru með honum í ferðinni Jakob Bjömsson orkumálastjóri, Andrés- Svanbjömsson verkfræðingur, Guðrún Zoéga aðstoðarmaður iðn- aðarráðherra, Halldór Kristjánsson lögfræðingur, Valur Valsson bankastjóri og Ámi Ámason skrif- stofustjóri. VEÐUR Heimild: Veðurstofa Islands á veðurspá kl. 16.15 I gaer) / DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 1. JÚNÍ 1988 YFIRLIT ( GÆR: Nálægt Jan Mayen er 1027 mb. hæð en heldur minnkandi 995 mb. lægð vestur af Skotlandi og önnur álíka djúp um 1200 km suðvestur I hafi þokast aust-norð-austur. Við norður- og austurströndina verður 3—7 stiga hiti en vlða 10—16 stiga hiti í öörum fandshlutum aö deginum. SPÁ: Hæg breytileg átt SV-lands, en austan og norðaustan-gola eða kaldi í öðrum landshlutum. Dálítil súld eða rigning viö austur- ströndina og á annesjum norðanlands, annars þurrt að mestu. Hiti 8 til 16 stlg sunnanlands en 4 til 10 stig fyrir norðan. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg norðlæg átt um land allt. Sæmilega hlýtt inn til landsins að deginum, annars frem- ur svalt, einkum þó Norðanlands. Sennilega úrkomuvottur við norð- ur-ströndina, en þurrt og víöa bjart veöur í öðrum landshlutum. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius '(ff)’ Heiðskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir er 2 vindstig. * Él l V \ JmL Léttskýjað / / / / / / / Rigning EE Þoka / / / ZZIl Þokumóða 'Cmk Hál,*ký>að * / * 5 5 Súld Skýjað ' * / * Siydda / * / oo Mistur —1* Skafrenningur jjj| A'skýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl vB*ur Akureyri B skýjað Reykjavfk ð þokumóða Bergon 17 hálfskýjað Helsinki 23 léttskýjað Jan Mayen -1 alskýjað Kaupmannah. 16 skýjað Naraaarsauaq 7 hálfskýjað Nuuk 1 alskýjað Osló 20 lóttskýjað Stokkhólmur 17 þrumuveður Þórshöfn ð alskýjað Algarve 24 heiðskfrt Amcterdam 12 skúr Aþena vantar Barcelona 20 léttskýjað Chlcago 21 léttskýjað Feneyjar 24 skýjað Frankfurt 16 úrkoma Glasgow 13 mistur Hamborg 16 skýjað Laa Palmas 24 léttskýjað London 16 skúrir Los Angeies 12 haiðskfrt Lúxemborg 12 skúrir Madrfd 24 hátfskýjað Maiaga 21 þokumóða Mallorca 26 léttskýjað Montreal 1ð alskýjað NawYork 24 skýjað París 13 rigning Róm 23 skýjað San Dlego 13 léttskýað Winnlpeg 23 skýjað Morgunblaðið/Þorkell Atkvæði greitt hjá Jóni Skaftasyni yfirborgarfógeta í gær. Forsetakosn- ingamar hafhar Atkvæðagreiðsla utan kjör- funda vegna forsetakosninga 1988 hófst á mánudag. Sam- kvæmt upplýsingum frá embætti borgarfógetans í Reykjavík hef- ur verið talsverð þáttaka i kosn- ingunni, en kjörfundur stendur frá klukkan 10.00 til 15.00 fram til föstudagsins 4. júni næstkom- andi. Frá og með mánudeginum 6. júní verður atkvæðagreiðsla utan lcjör- funda í Ármúlaskóla frá klukkan 10.00 til 12.00, 14.00 til 18.00 og 20.00 til 22.00 alla daga nema sunnudaga, en þá stendur kjörfund- ur frá klukkan 14.00 til 18.00. Flugvirkjar unnu ekki yfirvinnu FRESTA varð svonefndri b-skoðun á einni Boeing flugvél Flugleiða í fyrrinótt vegna þess að flugvirkjar neituðu að vinna yfirvinnu. Hefur verið ákveðið að skoðunin fari fram á morgun, fimmtudag, en b-skoðanir fara fram á 400 flugtima fresti. Ekki var seinkun á flugi í gær af þessum sökum, samkvæmt upplýsingum Flugleiða, en nota þarf DC-8 þotu, sem er miklu stærri flugvél, í stað Boeing þotunnar á morgun, sem hefur aukakostnað í för með sér fyrir félag- ið. Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn- ar náðu til allra félaga flugliða, þar sem samningar höfðu ekki verið gerðir við félög þeirra og þau verið með lausa samninga frá síðustu áramótum. Oddur Pálsson, formað- ur Félags flugvirkja, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þessar aðgerðir væru ekki skipulagðar af hálfu félagsins. Því væri hins vegar ekki að leyna að gremju gætti í röðum flugvirkja með það hvemig Flugleiðir hefðu staðið að samn- ingaviðræðum áður en bráðabirgða- lögin voru sett. Þá hefðu flugvirkjar viljað samningaviðræður innan þess ramma sem bráðbirgðalögin settu, enda þörf á að ræða mörg önnur atriði en þau sem snertu beinlínis launamálin, en forsvarsmenn Flug- leiða túlkuðu bráðabirgðalögin þannig að síðustu kjarasamningar væru framlengdir og það mætti ekki breyta þeim. Flugvirkjar álitu einnig að bráðabirgðalögin útilok- uðu ekki að leyfíleg 10% hækkun væri að einhveiju leyti afturvirk, en Flugleiðir væru ekki til viðræðu um það. Oddur sagðist ekkert geta fullyrt um það hvort framhald yrði á þess- um aðgerðum. Það væri allt eins líklegt, þó hann vonaði ekki, en vinnuandinn hefði verið mjög góður fram að þessu. Mikil yfirvinna tíðkaðist meðal flugvirlq'a og nánast gert ráð fyrir henni við skipulag vinnunnar. Þrjú skip seldu erlendis Þijú skip seldu afla sinn erlendis í gær og fyrradag. Þetta voru Vigri RE, sem landaði i Bremer- haven, Náttfari RE, sem seldi í Grimsby og Huginn VE, sem fór tíl Hull. Vigri seldi í gær og fyrradag 348 tonn af grálúðu, karfa og þorski fyrir 17,8 milljónir og meðalverðið var 51,31 kr. Náttfari seldi í gær 100 tonn fyrir 5,9 milljónir, sem gefur meðalverðið 59,42. Uppistað- an í aflanum var þorskur. Loks seldi Huginn í gær 94 tonn fyrir 5,9 milljónir. Meðaiverðið var 62,12 og uppistaðan í aflanum var þorsk- ur. Norrænt krabbameins- þing haldið í Reykjavík HIÐ ÁRLEGA þing samtaka krabbameinsfélaga á Norður- löndum verður haldið á Holiday Inn f Reykjavfk dagana 1. til 3. júnf 1988. Þátttakendur á þinginu verða um 80, þar af helmingur frá hinum Norðurlöndunum. Um 50 fyrirlestr- ar verða fluttir á þinginu. Guð- mundur Bjamason heilbrigðisráð- herra mun ávarpa þingið og einnig flytur Jan Stjemswárd yfírmaður krabbameinsdeiidar Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar erindi. Aðalefni þingsins verða fyrir- lestrar og umræður um hlutverk krabbameinsfélaganna á Norður- löndum í aðgerðum gegn krabba- meini á næstu árum og áratugum. Verður fjallað um spár um fjölda krabbameinstilfella í framtíðinni og um það á hvað eigi að leggja áherslu í baráttunni við krabbamein, hvaða aðgerðir hafa mest áhrif á heil- brigði einstaklinga eða þjóða, og hvemig fjármunum sé best varið f baráttunni gegn krabbameini. Auk þess verða flutt erindi um margt annað svo sem krabbamein við at- vinnu, umhverfí, mataræði og reykingar. Þá verður fjallað um krabbameinsleit, meðal annars ár- angur leitar hér á landi, segir í frétt frá Krabbameinsfélaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.