Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNf 1988 Hvítasunnumót Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja: Rigningin o g Kári styttu stangaveiðimótið Sjóstangaveiðimenn í Vest- mannaeyjum héldu sitt 19. hvíta- sunnumót á dögunum. Þetta mót var óvenjulegt í marga staði og léku þeir Kári og regnguðinn aðalhlutverkin. Aðsóknin að mótinu var góð, því á sjó fóru 106 veiðimenn, galvaskir og vel útbúnir í slaginn við þann gula og reyndar alla hina fiskana líka. Lagt var úr höfn klukkan 6 að morgni laugardags, í veðri sem á sjómannamáli kallast „slampandi", en á landkrabbamáli þýðir það þokkalega skipgengur sjór. En þrátt fyrir suddarigningu og 5-6 vindstig af suðaustri voru stanga- veiðimenn hressir þegar komið var að landi klukkan 14. Veiðin þann Eyjabátarnir Sigurbára og Gæfa létu bullandi brælu ekkert á sig fá fyrri dag Hvítasunnumóts Sjó- stangafélagsins. daginn var 4423 kíló, mest þorskur. Nýr bikar, sem Arthur Bogason gaf til keppninnar, bættist í verða- launasafnið að þessu sinni, en hann var veittur fyrir verðmætasta af- lann í hlutfalli við kflóatölu. Jóhann Halldórsson, skipstjóri á Andvara hlaut bikarinn, en afli þeirra á Andvara lagði sig á 37,35 krónur kflóið. Á seinni degi mótsins, á hvíta- sunnudag, lögðu 15 bátar úr höfn klukkan 6 að morgni, en um klukk- an 7 jókst vindur snögglega og gerði úrhellisrigningu. Fór þá að fara um mótsstjórann í landi og upphófust þá símaviðtöl við skip- stjórana þar sem leitað var frétta og ráða. Var samdóma álit manna að best væri að kalla flotann í land, sérstaklega þar sem von var á falla- skiptum klukkan 10. Sagði Magnús Magnússon, mótstjóri, að þetta væri í fyrsta sinn í sextán ár sem grípa hefði þurft til slíkra örþrifar- áða, en þegar jafn kærulausum manni og honum sjálfum væri farið að líða illa yfir að bera ábyrgð á 140 mannslífum í slíku veðri væri tímabært að kalla bátana í land. Þeir sem vildu voru fluttir yfir í stærri bátana áður en haldið var í Faxasund og jrfir Beinakelduna. Magnús mótstjóri og aðrir sem voru úti á hrauni og sáu þegar bátamir komu suður Faxasundið sögðust seint gleyma þeirri sjón. Nokkrir þátttakendur vom teknir tali að sjóferðinni lokinni. Sólveig Erlendsdóttir frá Akureyri: „Ég hefði ekki viljað missa af þessarri lífsrejmslu fyrir nokkum mun, hún var hrikaleg." Elínborg Bemódus- dóttir úr Vestmannaeyjum: „Þetta er ólýsanlegt, stórkostlegt, en ég er alsæl að vera komin í land.“ Ríkharður Ingibergsson, 76 ára Reykvíkingur: „Þetta var rosalegt, en maður fann að sjómennimir Morgunblaflið/Sigurgeir Á þessarri mynd sjást þeir Bogi Sigurðsson, fyrirliði aflahæstu sveitarinnar, og Sveinn Jónsson, aflahæsti einstaklingurinn, ræða málin við Magnús Magnússon, mótstjóra. Aðalbjörg Bernódusdóttir og Ester Oskarsdóttir sjást hér koma að landi, en þær leiddu tvær efstu kvennasveitimar og Ester var þar að auki aflahæsta konan í keppninni. vissu hvað þeir væm að gera og þetta fór allt vel.“ Sjómönnum sem Morgunblaðið hafði tal af kom saman um að fólk- ið hefði staðið sig ótrúlega vel og ekki síst konumar, en þær vom 19 talsins á þessu móti. Þær hefðu sýnt og sannað að þær ættu erindi í þessi mót ekki síður en karlmenn- imir. Að kvöldi hvítasunnudags var haldin veisla í Kiwanishúsinu, þar sem matreiðslumenn Skútans reiddu fram sjávarréttahlaðborð. Að því búnu fór fram verðlaunaaf- hending og síðan skemmti fólk sér fram undir klukkan 2:30. Aflahæsti karlmaðurinn í mótinu var Sveinn Jónsson úr Vestmanna- eyjum, sem dró 190,2 kfló, en afla- hæsta konan var Ester Óskars- dóttir úr Eyjum með 174,2 kfló. Flesta físka dró Brynjar Birgisson, eða 93. Stærsti fiskur mótsins var 9,6 kflóa þungur þorskur, sem Stef- án Einarsson dró, en myndarlegasti marhnúturinn vóg 0,8 kfló, en það var Bogi Sigurðsson úr Eyjum sem náði að snara honum innfyrir borð- stokkinn. Frá fundi íslendingafélaganna í Kaliforníu sem haldinn var í Moro Bay. Samvinna Islendinga- félasranna í Kaliforníu íslendingafélögin í Norður- og Suður-Kaliforníu héldu nýlega sameiginlegan fund í Moro Bay þar sem rætt var um síðustu þorrablót félaganna og væntan- lega hátíð 17. júni. Samþykkt var að fá þorramat að heiman næsta ár eins og að þessu sinni og ennfremur að reyna að fá íslenska hljómsveit. Einnig var rætt um að halda sameiginlega úti- skemmtun félaganna og boða til annars samráðsfundar á næsta ári. Fundinn sóttu frá Norður-Kali- fomíu: Ámi Ámason formaður, Ingi Ólafsson varaformaður, Patsy Þórð- arson, Ámi Geirsson og Einar Sig- urðsson. Frá Suður-Kalifomíu komu Katrín G. Johnson formaður, Sigrún H. Breazile varaformaður, Jóhanna Lewis og Katrín E. Warren. Norðurlandsmótið í bríds: Siglfirðingar í efstu sætunum Brids Amór Ragnarsson Sveit Boga Sigurbjörns- sonar varð Norðurlands- meistari í brids 1988 en mótið var spilað á Sauðár- króki um síðustu helgi. Með Boga spiluðu í sveitinni bræður hans Anton, As- grímur og Jón og systir þeirra Stefanía. Sveitin háði harða keppni um efsta sætið við sveit Valtýs Jónas- sonar sem einnig er frá Si- glufirði en systkinin höfðu betur á lokasprettinum og sigruðu með 8 stiga mun. Þrettán sveitir tóku þátt í mótinu sem er nokkru lakari þátttaka en undanfarin ár en þátttökusveitir hafa oftast verið í kring um 20. Sveit Boga tók strax forystu í mótinu en sveit Valtýs spilaði vel um miðbik mótsins og þegar þremur um- ferðum var ólokið voru sveitimar með jafnmörg stig. Lokaum- ferðimar vom sveit Valtýs hins vegar erfíðar og varð hún að láta sér lynda annað sætið. Aðr- ar sveitir áttu ekki möguleika á sigri í mótinu. Lokastaðan í mótínu varð þessi: Bogi Sigurbjörnsson Siglufirði 266 Valtýr Jónasson Siglufirði 248 Utangarðsmenn Akureyri 221 Hellusteypan Akureyri 218 Kristján Guðjónsson Akureyri 204 Halldór Svanbergsson Ólaf sfirði 204 Eðvarð Hallgrimsson Skagaströnd 198 Gunnar Þórðarson Sauðárkróki 197 Gunnar Berg Akureyri 192 Spiluð voru 192 spil — 16 spila leikir og stóð spilamennskan í yfir 30 klukkustundir. Keppnis- stjóri var Albert Sigurðsson frá Akureyri en mótsstjóri Jón Öm Bemdsen. Albert Sigurðsson stjórnaði Norðurlandsmótinu. Albert er keppnisstjóri á Akureyri og hefir verið viðloðandi Norðurlandsmótið sl. 22 ár. Morgunblaðið/Amór Ragnarsson Siglfirzku sveitímar, sem sigr- uðu í mótínu. Talið frá vinstri: Ásgrímur Sigurbjörnsson, Stef- anía Sigurbjörnsdóttir, Anton Sigurbjörnsson, Bogi Sigur- björasson, Viðar Jónsson, ísak Jóhann Ólafsson, Sigurður Hafliðason og Sigfús Steingr- ímsson. Á myndina vantar einn af bræðrunum í sigursveitinni, Jón Sigurbjörasson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.