Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
fclk í
fréttum
Varðskips-
menn við
æfingar
Ahafnir varðskipanna
stunda reglubundnar
æfingar á ferðum sínum. Að
jafnaði eru haldnar björg-
unaræfingar í hverri ferð Qg
brunaæfingar mánaðarlega.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar fyrir skömmu, þegar
áhöfnin á Óðni, æfði undir stjóm
Höskuldar Skarphéðinssonar
skipherra.
Björgunaræfing í
Grundarfirði. Áhöfnin æfir
meðferð
gúmmíbjörgunarbáta.
Brunaæfing í Dýrafirði. Um borð
í varðskipunum er búnaður sem
setur sjó undir háþrýsting og
breytir í slökkvifroðu.
Uppganga í skip á ferð æfð á
Dýrafirði. Óðinn er keyrður á 6
milum og skipveijar stíga um
borð úr gúmbáti.
Morgunblaðið/Guðmundur Valdimarsson
BRIGITTE NIELSEN
Olétt og ánægð
Hin danska Brigitte Nielsen,
sem hvað þekktust varð fyrir
að vera gift Sylvester Stallone, á
nú von á bami með sínum heittelsk-
aða Mark Gastineau. Kom þetta
fram á blaðamannafundi, sem þau
skötuhjúin héldu nýlega í New
York, og mun vera von á barninu
eftir um það bil sjö mánuði.
Hinn verðandi faðir er 31 árs
gamall, og er þekkt fótboltastjama
í Bandaríkjunum. Hann er búinn
að vera í slagtogi með Brigitte í
nokkra mánuði, og á meðan hún
er stödd í Róm þar sem hún leikur
í kvikmyndinni „Domino“, þá heldur
hann sig heima í New York, þar
sem hann er að ganga frá skilnaði
sfnum og Lisu eiginkonu sinnar, en
með henni á hann fimm ára gamla
dóttur.
Brigitte hefur tvívegis verið gift,
og frá fyrra hjónabandinu á hún
einn son, Julian, sem er fjögurra
ára gamall. Hjónaband hennar og
Sylvester Stallone var aftur á móti
bamlaust.
Skötuhjúin segjast vera ákaflega
hamingjusöm, og þegar Brigitte
fékk það staðfest að hún væri
bamshafandi, þá sendi hún vininum
99 rauðar rósir, en það er einmitt
talan sem hann ber á búningi sínum
í fótboltaliðinu New York Jets. Að
auki hefur hún svo útvegað honum
hlutverk í kvikmyndinni „Domino",
þar sem hann á að leika elskhuga
hennar.
„Ég sagði þeim að ég gæti alls
ekki leikið, en þeir sögðu að hlut-
verkið hentaði mjög vel þeim sem
væri raunverulega ástfanginn",
segir Gastineau.
Brigitte Nielsen með kærastanum, Mark Gastineau, en þau eiga nú
von á barni saman.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
HUÓÐFÆRASMÍÐI
Sýning á strokhljóðfærum
Hans Jóhannsson hljóðfærasmiður, sem búsettur er í Lúxem-
borg, hélt sýningu á nokkrum smíðisgripa sinna í anddyri
Bústaðarkirkju síðastlið'ð sunnudagskvöld. Á meðfylgjandi
mynd sést hvar Hans stendui við borð, sem hlaðið er hljóð-
færum sem hann hefur smfðað.