Morgunblaðið - 05.06.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1988
37
er svo hætt við að maður glati ein-
lægninni í því kapphlaupi, sem lífíð
er. Ég er alveg viss um að þegar
við fæðumst erum við hamingjusöm
— með allt á hreinu. Það er ekki
fyrr en farið er að innræta okkur
alls konar tilbúnar siðferðisreglur,
sem hlutimir fara að brenglast. Það
er svo auðvelt að láta bara reka á
reiðanum — dæma aðra en gera svo
ekkert til að þroska sjálfan sig.
Sumir segja að til sé vont fólk —
ég mótmæli því. Það er ekki vont,
aðeins vanhugsandi."
Nú þegir Pálmi góða stund og
virðist djúpt hugsi. Síðan segir
hann: „Þegar ég var lítill var mér
kennt að karlmenn ættu ekki að
gráta. Þess vegna grét ég á bak
við hús og skammaðist mín fyrir
það. Mér var líka kennt að karl-
menn væru töff og harðir. Ég var
hinsvegar hvorki töff né harður og
það olli mér æðislegum áhyggjum.
Það er þetta sem ég á við þegar
ég segi að tilbúin siðferðis- og rétt-
lætiskennd eyðileggi fólk. Það er
ekki fyrr en okkur tekst að bijóta
þetta mynstur og sættast við okkar
innri mann, sem við verðum fullgild-
ar manneskjur. Þá fyrst losnar um
spennuna. Og það ER gott að geta
grátið."
„Við sjáum þessi mynstur út um
allt — og ekki síst í sjálfu stjómkerf-
inu," segir hann. „Einhverra hluta
vegna virðast stjómmálamenn t.d.
aldrei geta viðurkennt að þeir, eins
og aðrir, gera mistök. Það þykir
ekki virðingarvert. Þess í stað rem-
bast þeir eins og ijúpan við staurinn
að veija alls konar hluti, sem eru
gersamlega óveijandi," bætir hann
við. „Annars er ég ekkert mjög
pólitískur. Ég horfí, hlusta og hugsa
svo mitt. Það sem mér gremst
mest í sambandi við pólitík er
hversu mikla lítilsvirðingu stjóm-
málamennimir sýna okkur, vinnu-
veitendum sínum. Oft og tíðum tala
þeir til okkar eins og við séum
fjórða flokks fólk, sem hugsum
ekki neitt. Ég meina út um allan
bæ er fullt af fólki, góðu fólki, sem
gæti rekið þetta þjóðfélag mun bet-
ur en nú er gert. Gallinn er bara
sá, að þetta fólk gefur sig ekki (
þetta svínarí. Kannske konunum
takist að hleypa heiðarleikanum inn
í stjómmálin á ný — ég hef trölla-
trú á þeim," fullyrðir Pálmi.
„Vildi verða frægur“
Úr pólitík og yfír í popp. — Er
hljómleikaferð um landið framund-
an? „Það er nú eiginlega allt óá-
kveðið, enn sem komið er,“ upplýs-
ir Pálmi. „Sennilega spilum við eitt-
hvað úti um landið, en óvíst hversu
mikið. Við Magnús sömdum einu
sinni upp á það að svo lengi, sem
við hefðum báðir gaman af þessu,
þá myndum við spila saman. Ef við
fáum leið á þessu — þá hættum
við. En trúlega eru nú nokkur ár (
það,“ segir hann.
Það muna eflaust margir eftir
jólaplötunni, sem þeir feðgar Pálmi
og Sigurður Helgi sungu inn á sam-
an. Hvemig litist Pálma á ef sonur
hans, sem nú er þrettán ára, vildi
feta ( fótspor föður síns og gera
tónlistina að sínu ævistarfí? — Nú
fær Pálmi sér sopa af kaffínu,
kveikir sér í annarri sígarettu, hall-
ar sér aftur í sætinu og segir sfðan:
„Ja, það er nú það! ... nei, í alvöru
talað, þá hefur hann spurt mig heil-
mikið út í þennan bransa og ég hef
reynt eftir bestu getu að hvetja
hann hvorki né lelja. Ég hef sagt
honum hvað tónlistin hefur kostað
mig — og svo hvað ég hef fengið
í staðinn. Þegar ég var að byija í
þessu sá ég þetta allt í einhveijum
glorí-balelúja hillingum. Eins og svo
marga aðra langaði mig að verða
„frægur". Ég gerði mér hinsvegar
enga grein fyrir því að þetta er
hörkuvinna. Maður gefur svo mikið
af sjálfum sér í þetta að oft líður
manni eins og tómri tunnu í fleiri
klukkutíma eftir að maður hefur
komið fram. Hann veit þetta allt
saman, svo ef hann ákveður að
leggja músíkina fyrir sig þá ætla
ég ekki að stoppa hann,“ segir
Pálmi.
Pálma Gunnarsson langaði að
verða frægur — og draumur hans
varð að veruleika. Hver er draumur
Pálma í dag? „Æ, þessi er erfíð,
maður," segir hann. „Það ganga
allir með einhvem draum í magan-
um. Eitt af því, sem mig langar að
gera einhvem góðan veðurdag er
að senda frá mér plötu með eigin
textum og lagasmíðum. Ég vann
einu sinni í tæp tvö ár á Sólheimum
og þar kynntist ég besta fólki, sem
ég hef nokkum tíman kynnst. Með-
al þess sem við afrekuðum þar var
að semja og setja upp heilan söng-
leik. Ég hafði alveg rosalega gaman
af því — og væri alveg til í að gera
meira í þeim dúr. Persónulega sæ-
kist ég hinsvegar fyrst og fremst
eftir því í dag að vera í jafnvægi.
Ég vona líka að ég haldi áfram að
þroskast, kynnist mínum innri
manni betur. Það er nefnilega heil-
mikið nám að læra að þekkja sjálf-
an sig. í þeim skóla em fleiri hundr-
uð bekkir og maður útskrifast aldr-
ei. Engu að síður er þetta mjög
gagnlegt nám. Það er nefnilega svo
skrýtið, að innri maðurinn í okkur
veit allt. Það er hann sem þekkir
muninn á réttu og röngu — góðu
og illu. Og það sem meira er —
hann lýgur aldrei. Vinur minn
Magnús Eiríksson samdi einu sinni
texta um þennan innri mann —
manninn, sem ég ætla að reyna að
hlusta á í framtíðinni."
Þú veist að djúpt í þínu hjaita,
er ennþá einn örlítill Guð.
Og þú veist að hann er af því bjarta,
ef þú syndgar, þá heyrirðu suð.
... Og með það er Pálmi Gunnars-
son stokkinn af stað. „Ég er að
fara upp í sveit með alla flölskyld-
una,“ segir hann um leið og hann
fer út úr dyrunum. „Hún Ragn-
heiður dóttir mín, sem er bara
þriggja ára, heimtar að við förum
og heimsækjum litlu nýfæddu lömb-
in...“ — Já, það er sko af, sem
áður var.
Litið inn á Leiti
Hún situr álút við eldhúsborðið og
starir tómum augum á bleksvart
kaffíð í bollanum. Nælonsokkamir,
alsettir lykkjuföllum, krumpast
niður kálfana á henni og rótsterk
sígarettan liggur hálfreykt í
öskubakkanum. Það fer ekki á milli
mála að henni Gróu gömlu á Leiti
líður illa núna. Og lái henni hver
sem vill. Margra ára vinna er fokin
út í veður og vind. Hún hafði lagt
sig alla fram við að koma þessum
Pálma Gunnarssyni fyrir kattamef
— kallað hann forfallna fyllibyttu,
ræfíl og róna. Fyrir tæpum tveimur
ámm hafði hún meira að segja
tilkynnt að hann væri látinn — og
gætt þess vandlega að leyndarmálið
spyrðist út. Það bregður fyrir
ánægjubliki í augum Gróu þegar
hún riflar upp þá gömlu góðu daga,
er landsmenn trúðu öllum hennar
tröllasögum. Skyndilega þyngist
brúnin á ný. Eftir allt þetta erfiði
gerir hann sér lítið fyrir — rís upp
og það með látum og heldur áfram
að syngja inn á hljómplötur, rétt
eins og ekkert hafí í skorist. Hvílík
og önnur eins ósvífni... Gremjan
sýður í Gróu gömlu — hún nennir
ekki einu sinni að gægjast yfír
gardfnuna til að njósna um hana
Fríðu í næsta húsi. Hún drepur í
sígarettunni og stendur á fætur.
Um eldhúsið ómar lag og texti
Magnúsar Eiríkssonar af
nýútkominni plötu Mannakoma.
Lagið er leikandi létt — ljóðið fullt
af lífsgleði, von og trú ... Og viti
menn, það er enginn annar en Pálmi
Gunnarsson sem stendur við
hljóðnemann:
Margir vaða í villu og svíma,
veik ersú skíma, sem læðist inn.
Veistu aðgleðin erbesta víman,
hleyptu gleði inn í huga þinn.
Viðtal: Inger Anna Aikman
Myndir: Bjarni Eiríksson
1
EISMHMIimS
fllsrjgMttfrltahifr
Metsölublad á hverjum degi!
Bæjarhrauni 4 - Sími 652220.
.
SKIPADE/LD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • PÓSTHÓLF 1480- 121 REYKJAVlK
SlMI 28200 • TELEX 2101 -TELEFAX 622827
Sumarskóli
4.-10. og 4-16. júlí:
Norður-evrópskur sumarskóli
og þjálfunarbúðir undir stjórn
Hvita bræðralagsins. Mottó:
Gangið inn í nýja tímann
gegnum Maitreya Buddha,
leið hjartans.
Nánari upplýsingar eru veittar I
símum 91-78189,91 -41478,
96-25095 og 96-24283, einnig:
Rosenhaven, Nerrebrogade 110A
DK - 2200 Kaupmannahöfn
S.451 37 2383.
íslenska heilunarfélagið.
Loksins aftur
Fæst i næstu matvöniverslun.
Væntanlegt einnig í 500 g pakkningu.
Sumartilboð á notuðum bílui
í eigu umboðsins:
Við erum áfram í sumarskapi og nú er hægt að
gera reyfarakaup á eftirtöldum bílum:
i
Tegundir: Gangverð:
1. Citroén CX 25D diesel stw. 8 manna árg. '84 640.000,-
2. Citroén BX árg. ’87 500.000,-
3. Citroén BX 19 TRD, diesel árg. ’85 430.000,-
4. Toyota Corolla DX 5 gíra, árg. '82 240.000,-
5. Toyota Corolla árg. ’78 90.000,-
6. Daihatsu Charmant LGX, árg. '83 340.000,-
7. Peugéot 305, árg. '82 250.000,-
8. BMW 315, árg. '82 290.000,-
9. Nissan Sunny station árg. ’84 330.000,-
10. Honda Civic sedan árg. '83 sjálfsk. 280.000,-
Okkar verð:
550.000,-
460.000,-
350.000,-
210.000,-
50.000,-
290.000,-
190.000,-
260.000,-
290.000,-
250.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi.
G/obus?
Lágmúla 5, Reykjavík, sími 681555.