Morgunblaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 4
4
ÍPr ÍMTJl G ÍÍTTOACnjTMMI'Tl aiQAJHVIUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
• •
Olduselsskóli:
Réttlætisvitund
okkar misboðið
- segir Sigmar Hjartarson kennari
STARFSFÓLK i Ölduselsskóla
mótmælir harðlega setningu
Sjafnar Sigurbjömsdóttur í emb-
ætti skólastjóra, sem gengur þvert
á vilja starfáfólks skólans og for-
eldra, eins og segir i ályktun
starfsmannafundar er haldinn var
í gærmorgun.
„Þetta misbýður réttlætisvitund-
inni. Álit fólksins sem málið varðar
er fótum troðið með því að ganga
fram hjá yfírkennara skólans, Daníel
Gunnarssyni, og við erum vitaskuld
gífurlega óánægð með þessar mála-
lyktir," sagði Sigmar Hjartarson,
talsmaður kennara við Ölduselsskóla.
Hann bætti við að ljóst væri eftir
fund starfsfólksins að einhveijir
kennarar myndu hætta störfum við
skólann, aðrir litu á það sem upp-
gjöf, en fólk gengi ekki með gleði
til vinnu næsta vetur. Þá sagði Sigm-
ar að boðað hefði verið til annars
fundar 15. júní og þar þar yrði rætt
hvað gera skyldi.
Eins og fram hefur komið í flöl-
miðlum var undirskriftum safnað
meðal foreldra og starfsfólks skólans
til stuðnings Daníel Gunnarssyni.
Hann sótti um skólastjórastöðuna
ásamt Sjöfn Sigurbjömsdóttur sem
menntamálaráðherra skipaði í fyrra-
dag. Að sögn Sigmars Hjartarsonar
studdi allt starfsfólk skólans Daníel,
og mikill meirihluti foreldra, en
fræðsluráð mælti með Sjöfn. Ingi-
björg Sigurvinsdóttir, formaður for-
eldrafélags Ölduselsskóla, sagði
skipun Sjafíiar vonbrigði, stuðning-
urinn við Daniel hafi miðast að því
að farsælu skólastarfí jrrði fram hald-
ið. Hún sagðist gera ráð fyrir að
fulltrúaráð foreldrafélagsins fundi
vegna stöðuveitingarinnar.
AP
Forsætisráðherrahjónin í Finnlandi
Forsætisráðherrahjónin, Þorsteinn Pálsson og Ingibjörg Rafnar, komu til Helsinki í gær í tveggja daga
opinbera heimsókn. Á myndinni má sjá þau ásamt Matti Louekoski, dómsmálaráðherra, en hann tók á
móti þeim á Helsinki flugvelli. Þorsteinn Pálsson mun ræða við Mauno Koivisto, forsætisráðherra, og
ýmsa aðra ráðamenn í Finnlandi í dag, en á föstudag er förinni heitið tii Álandseyja og þaðan til Stokk-
hólms, þar sem fundur forsætisráðherra Norðurlanda hefst á mánudag.
? *
T'ís
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 9. JÚNÍ 1988
YFIRLIT f GÆR: Um 800 km suðsuðvestur af landinu er 1.038
mb hæð en grunnt iægðardrag á vestanverðu Grænlandshafi þok-
ast norðaustur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: f dag veröur suðvestlæg átt á landinu, vtða gola eða kaldi.
Vestanlands verður dálítil rigning eða súld en víðast þurrt og sums
staðar lóttskýjað austantil. Hiti verður á bilinu 9—16 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suövestlæg átt. Víða
rigning eða súld um sunnan- og vestanvert landið, en þvert á
Noröur- og Austurlandi. Hiti á bilinu 9—18 stig, hlýjast á Norðaust-
ur og Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
•ö Léttskýjað
■á Hálfskýjað
*0(lk Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * t
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—j- Skafrenningur
[y Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HBIM
Kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
Akureyri Reykjavík hhi 15 11 ve&ur skýjað alskýjað
Bergen 17 léttskýjað
Helsinkl 26 skýjað
Jan Mayen 1 skýjað
Kaupmannah. 19 skýjað
Narasarasuaq 17 rígnlng
Nuuk 7 alskýjað
Osló 24 háifskýjað
Stokkhólmur 22 skýjað
Þórshöfn 13 léttskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 15 rigning
Aþena vantar
Barcolona 20 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 15 skúr
Glasgow 19 léttskýjað
Hamborg 17 þokumóða
Las Palmas 23 hálfskýjað
London 14 mlstur
Los Angeles 11 heiðsklrt
Luxemborg vantar
Madrld 16 þrumuveður
Malaga 24 skýjað
Mallorca 24 skýjað
Montreal 11 heiðskírt
NewYork 18 léttskýjað
París 18 akýjað
Róm 22 lóttskýjað
San Diego 13 heiðskirt
Winnipeg 16 skýjað
Flugleiðir:
Tafir á innanlandsflugi
TÍU tíl 25 mínútna töf varð á
velflestum innanlandsferðum
Flugleiða í gær og að sögn Andra
Vals Hrólfssonar, stöðvarstjóra á
Reykjavíkurflugvelli eru flug-
menn valdir að töfunum. Flug-
menn neita þvi að þeir tefji flug
af ásettu ráði.
„Flugmennimir hafa ekki lagt sig
fram við að halda áætlun frá því á
fímmtudag og það hefur valdið töf-
um. Þeir biðja um nýjar upplýsingar
um veður, eldsneyti og svo má áfram
telja og segjast nú framfylgja strön-
gustu flugreglum. Það er bama-
skapur að halda því fram. Flugleiðir
hafa alltaf gætt fyllsta öryggis,"
sagði Andri.
Á mánudag var samningafundur
með flugmönnum, þar sem báðir
aðilar kynntu sínar kröfur og skoð-
uðu ÍSAL-samninginn ef hann mætti
vera fyrirmynd að samningi Flug-
leiða.
„Það er útbreiddur misskilningur
að við séum að leika okkur að því
að fresta flugi," sögðu Gunndór Sig-
urðsson flugstjóri og Þorgeir Har-
aldson flugmaður í samtali við Morg-
unblaðið. Vildu þeir ekki samþykkja
að þeir tefðu flug.
Þeir sögðust fyrst og fremst
óánægðir með að samningingamál-
um þeirra hafi verið vísað til ríkis-
sáttasemjara áður en þeir hefðu sett
fram nokkrar kröfur. Ekkert hefði
komið fram á samningafundinum á
mánudag og sögðust þeir ekki vita
til þess að boðað hefði verið til nýs
fundar. Flugleiða væri að stíga
næsta skref.
Djupivogur:
Mannsinser
enn leitað
LEIT stendur enn yfír að mannin-
um sem féll útbyrðis úr gúmbát f
mynni Hamarsfj arðar á laugar-
dagskvöld. Maðurinn heitir Ey-
steinn Guðjónsson. Hann er 39
ára, skólastjóri Grunnskólans á
Djúpavogi. Eysteinn er giftur og
fjögurra barna faðir.
Eysteinn Guðjónsson.
Byggingakrani féll á vegg
MIKIÐ tjón varð í Hafnarfirði i
gær þegar byggingakrani féll á
vegg fiskverkunarhúss, sem er í
byggingu við Óseyrarbraut.
Ohappið varð um kl. 15, þegar
verið var að vinna við húsbygging-
una. Stjórnandi kranans var í stjóm-
klefa hans þegar óhappið varð, en
Dagskráin í dag
Kl. 20.30 Lindarbær
Ánamaðkar, brúðuleikhús
Peter Waschinsky.
Kl. 20.30 Ásmundarsalur
Fyrirlestur Hildebrand Mac-
hleit um sýninguna Byggt í
Berlín.
hann slapp frá fallinu með lítils-
háttar meiðsli á fæti og þykir mikil
mildi að félagar hans lentu ekki und-
ir krananum. Kraninn er mikið
skemmdur og veggurinn, sem hann
féll á, sömuleiðis.
Ekki er enn ljóst hvað olli falli
kranans.
Kl. 20.30 Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit íslands,
Jorma Hynninen, bariton.
Stjómandi Petri Sakari.
Kl. 20.30 Þjóðleikhúsið, Litla
sviðið
Ef ég væri þú eftir Þorvarð
Helgason.
!-• 1 LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVIK