Morgunblaðið - 09.06.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
15
Höfundur hylltur eftir að „Timinn og vatnið“ var frumflutt Morgunblaðið/Þorkeii
Tíminn og vatnið
Tónlist
Egill Friðleifsson
Það er með yfírstandandi lista-
hátíð eins og svo margar aðrar, að
umræðan og athyglin beinist mest
að frægum útlendingum, sem sækja
okkur heim. Þannig eru menn eðli-
lega uppteknir af Chagall og Pend-
erecki þessa dagana. En atriði lista-
hátíðar eru fjölmörg og sum, raun-
ar flest, allrar athygli verð. Sú
gagnrýni hefur oft heyrst að hlutur
okkar eigin listamanna sé jafnan
fyrir borð borinn á listahátíð. Þær
raddir hafa raunar ekki verið tiltak-
anlega háværar í þetta sinn og út
í þá sálma verður ekki farið í þessu
greinarkomi. Sé hins vegar efnis-
skrá listahátíðar skoðuð kemur í
ljós að þar er að fínna ýmis áhuga-
verð atriði af heimavígstöðvum.
„Tíminn og vatnið", lagaflokkur
eftir Jón Ásgeirsson við ljóð Steins
Steinars var frumfluttur í íslensku
óperunni sl. þriðjudagskvöld. Þar
var einnig fluttur ballettinn „Af
mönnum" þar sem danshöfundur
er Hlíf Svavarsdóttir en tónlistina
samdi Þorkell Sigurbjömsson, en
ballettinn hlaut sem kunnugt er
fyrstu verðlaun í norrænni keppni
nú nýverið.
Það var Hamrahlíðarkórinn undir
stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur sem
sungu hin torræðu ljóð Steins Stein-
ars, sem reyndust svo afdrifarík
DÓMUR var kveðinn upp á
þriðjudag í Sakadómi í ávana-
og fíkniefnamálum yfir Breta,
sem var gripinn með tæp 800 g
af hassi i fórum sínum í lok
maí. Maðurinn var dæmdur i
þriggja mánaða fangelsi.
Maðurinn er breskur þegn, bú-
settur í Suður-Afríku. Hann hefur
starfað hér á landi af og til frá því
í maí 1987 og nokkmm sinnum
farið utan. Þegar hann kom til
landsins frá Amsterdam þann 25.
maí sl. fundu tollverðir á Keflavík-
urflugvelli 788 grömm af hassi í
fyrir kveðskap á Islandi. Mörgum
hefur reynst erfitt að skilja þessi
ljóð, en tónskáldið leggur áherslu á
að hér sé um ástarljóð að ræða,
full af trega og eftirsjá. Sú skýring
virðist dálítið langsótt óbreyttum
lesanda, sem ekki hefur hugað að
kvæðunum úr þeirri áttinni. En
þessi hugsun skiptir máli þegar tón-
listin er gaumgæfð. Ljóðin em 21
og skiptir tónskáldið þeim í þrjá
kafla, sjö ljóð í hveijum, þar sem
mestu átökin eiga sér stað í mið-
kaflanum.
Þó Steinn Steinar hafí umbylt
formi ljóðsins með „Tímanum og
vatninu" reynir tónskáldið ekki að
breyta tjáningarhætti sínum. Tón-
mál lagaflokksins er í greinilegri
ætt við ýmislegt annað sem hann
hefur samið fyrir kór og þar er
hann á heimavelli. Jón þekkir kór-
inn og möguleika háns manna best
og er sjálfum sér trúr í sköpun sinni.
Honum er greinilega í mun að
koma textanum sem best til skila
og tónvefurinn er aldrei svo þykkur
að kæfi orðin. Sumstaðar „málar
hann í tónum“ eins og t.d. í fjórða
ljóði, hann bregður fyrir sig ein-
röddun eins og í sjötta ljóði og eft-
ir átökin í fjórtánda ljóði endar
hann í björtum dúr eins og Bach í
gamla daga. Víða klæða tónarnir
textann ákaflega vel og Jóni tekst
að bregða nýju og mildu ljósi á
tvíræðni hans.
fórum hans. Maðurinn viðurkenndi
að eiga efnið og að hafa ætlað að
selja það hér á landi. Þann 3. júní
var gefín út ákæra á hendur hon-
um, sem var birt á mánudag og á
þriðjudag kvað Ásgeir FViðjónsson,
sakadómari, upp dóm yfír mannin-
um. Dómurinn hljóðaði upp á
þriggja mánaða fangelsi, auk þess
sem manninum var gert að greiða
um 30 þúsund krónur í málskostnað
og hassið var gert upptækt.
Ekki er enn ljóst hvort maðurinn
unir dóminum eða hvort hann áfrýj-
ar honum til Hæstaréttar.
Og það er ekki að spyija að því
sem hún Þorgerður Ingólfsdóttir
tekur að sér með Hamrahlíðarkóm-
um. Þar er hvergi slegið af ítrustu
kröfum um hreinleik, vandvirkni,
listrænt handbragð, lausan og létt-
an svífandi tón og framburð, sem
er svo skýr, að hvert einasta orð
heyrist greinilega. Það færi betur
að fleiri bæru jafn mikla virðingu
fyrir tónlistinni og móðurmálinu og
Þorgerður Ingólfsdóttir.
P.S.
Þar sem ég geri ráð fyrir að
aðrir fjalli um ballettinn „Af mönn-
um“ vil ég láta nægja að senda
danshöfundi, Hlíf Svavarsdóttur,
tónskáldinu, Þorkeli Sigurbjöms-
syni, dönsumm og hljóðfæraleikur-
um bestu þakkir fyrir skemmtun-
ina.
3. mánaða fangelsi
vegna 800 g af hassi
JEOTOR AR
ABB Asea Brown Boveri
SUNDABORG 15/104 REYKJAVlK/SlMI (91)84000
Tvær góðar þvottavélar frá
SIEMENS
Góð og hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
• íslenskir leiðarvísar.
• Þurrkari fáanlegur með
sama útliti.
WV 2760
Verð
49.600,-
Kjörgripur handa
hinum vandlátu
• Fjöldi þvottakerfa.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Áfangaþeytivinding.
Mesti vinduhraði 1200
sn./mín.
• Hagkvæmnihnappur.
• íslenskir leiðarvísar.
WV 5830
Verð
63.600,-
Hjá SIEMENS eru gæði, ending og fallegt
útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Metsölublað á hverjum degi!
ósa£5slA