Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 19
n Jeep Wagoneer - Cherokee - ekki bara glæsilegir heldur gæðin í gegn EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1988 Fyrir þá sem vilja það besta. Lukkulegur vinningshafi í ferðagetraun Tommaborgara: Steinþór Sigurjónsson ásamt móður sinni, Steinþóru F. Jónsdóttur, að taka við fimm farseðlum til Mallorca úr hendi Karls Sigurhjartarsonar hjá ferðaskrifstofunni Pólaris. Heppinn drengur Það er ekki á hverjum degi sem 10 ára strákur tekur sig til og býður fjölskyldunni með sér í sólar- landaferð. Steinþór Siguijónsson lét sig hins vegar ekki muna um það og dreif móður sína og bræður með sér til Mallorca. Steinþór tók þátt í ferðagetraun Tommaborgara og var dregið í henni á Tommadeginum sem var haldinn á Lækjartorgi þann 4. sept- ember í fyrra. Þá kom í ljós að Steinþór hafði heldur betur dottið í lukkupottinn. Hann hafði unnið sólarlandaferð á vegum ferðaskrif- stofunnar Pólaris og ekki nóg með það, hann mátti þar að auki bjóða systkynum sínum og foreldrum með sér. Þann 12. júní fór Steinþór utan ásamt móður sinni, Steinþóru F. Jónsdóttur, og þremur bræðrum. Fjölskyldan er síðan væntanleg heim á morgun. LANDSMÓT AA S AMTAKANNA 1988 verður haldið í Galtalækjarskógi helgina 8. - 10. júlí og þá verður glatt á hjalla. Diskótek bæði f östudags- og laugar- dagskvöld og óvæntar uppákomur fyrir alla. (Mætið með góða skapið, því ekki er gott að gleyma því heima.) Nú skín sól liátt á lof ti og sólin er þar sem þú verður. Miðaverð kr. 1300,- frítt fyrir 16 ára og yngri. TILBOÐ ÓSKAST íToyota Tercel Dl. SA/V4 W/D árgerð ’85 (ekinn 24 þús. km.), Jeep CJ-74x4, árgerð '85, CherokeeJeep 4x4 árgerð '84, ásamt öðrum bifreiðum er verða sýndará Grensás- vegi 9 þriðjudaginn 5. júlíkl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00. SALA VARNARLIÐSEIGNA iiÆ&SÍ* . Leikarar úr Alþýðuleikhúsinu sem ætla að ferðast um landið með leiksýningu fyrir börn. Talið frá vinstri, Arni Pétur Guðjónsson leik- ari, Margrét Arnadóttir leikstjóri og sögumaður, Erla B. Skúladótt- ir leikari, Margrét Kristín Blöndal tónlistarmaður og Kolbrún Erna Pétursdóttir leikari. ALÞYÐULEIKHÚ SIÐ Ætla að ferðast um landið leiksýningu w | dag leggja nokkrir félagar úr I Alþýðuleikhúsinu upp í sýningar- ferð um landið. Fyrstu viðkomu- staðirnir verða Blönduós og Skaga- strönd. Þau ætla að sýna barnaleikrit sem heitir „Ævintýri á ísnum“. Það fjallar um lítinn dreng sem býr með ömmu sinni á eyju norður í hafi. Hann ákveður að fara í ferðalag yfír ísinn og á leiðinni lendir hann í ýmsum skemmtilegum ævintýrum. Þetta leikrit er leikur án orða en sögumaður segir söguna. í sýning- unni verða notaðar grímur og ýms- ir skemmtilegir búningar. Leikritið var frumsýnt í Reykjavík á 17. júní og var einnig sýnt í Garðabæ sama dag. Þetta er geysilega skemmtileg sýning fyr- ir böm. COSPER ©PIB 10871 CIMMUIO >WU' I COSPER. Nei, sjáðu, sá litli er farinn að ganga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.